Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.03.2022, Qupperneq 8

Víkurfréttir - 23.03.2022, Qupperneq 8
8 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Samkaup hafa gefið út samfélags- skýrslu fyrir árið 2021. Í skýrslunni kemur m.a. fram að Samkaup hafa nú náð jöfnu kynjahlutfalli á meðal stjórnenda, þá var sérstök velferð- arþjónusta fyrir starfsfólk tekin í gagnið og fram kemur að Samkaup losuðu í fyrra 27% minna af kolefni en árið áður, þrátt fyrir að versl- unum hafi fjölgað. Þennan árangur má þakka umræðu og áherslu síð- ustu ára á aukið vægi samfélags- legrar ábyrgðar á öllum stigum reksturs fyrirtækja, stefnumótunar og í daglegum ákvörðunum. Samkaup hafa lagt mikla áherslu á að vinna kerfisbundið að samfélagslegri ábyrgð. Til marks um það hlutu Sam­ kaup jafnvægisvog FKA og Hvatn­ ingarverðlaun jafnréttismála, bæði á sviði fjölmenningar og atvinnumála starfsmanna með skerta starfsgetu. Árangurinn á þessum sviðum má ekki síst þakka farsælu samstarfi við Samtökin ‘78, Þroskahjálp og Mirru rannsókna­ og fræðslusetur fyrir er­ lent starfsfólk. „Jafnréttti er áfram í miklum brennidepli hjá okkur. Samkaup hlaut jafnlaunavottun árið 2018 og fór í gegnum fjórðu úttektina á jafnlaunakerfinu í nóvember í fyrra þar sem niðurstaðan er einungis 0,4% launamunur. Sé heildarfjöldi stjórnenda hjá Samkaupum skoð­ aður út frá kynjahlutföllum, er jafn­ vægi milli kynja afar gott eða 48% karlar og 52% konur. Þá höfum við lagt áherslu á að fjölga konum í efsta stjórnendalagi félagsins sérstaklega og í dag er helmingur framkvæmda­ stjóra félagsins kvenkyns. Þetta skiptir gríðarlegu máli og við viljum hvetja önnur fyrirtæki til að gefa þessum málaflokki aukna athygli. Það ber árangur,“ segir Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Samkaupa. Sálfræði- og lögfræðiráðgjöf Í fyrra var sérstakri velferðarþjón­ ustu Samkaupa hleypt af stokk­ unum sem miðar að því að stuðla að auknum lífsgæðum starfsfólks. Þetta er nýjung en í þjónustunni felast úr­ ræði til að takast á við óvænt áföll og aðra erfiðleika, starfsfólkinu að kostnaðarlausu og án milligöngu stjórnenda. Heilsuvernd hefur um­ sjón með velferðarþjónustunni, sem nær m.a. til hjónabands­ og fjöl­ skylduráðgjafar, streitu­ og tilfinn­ ingastjórnunar, sálfræðiráðgjafar, lögfræðiráðgjafar og svefnmeðferða. „Meginmarkmið Samkaupa er að vera eftirsóknarverður vinnustaður, þar sem áhersla er lögð á jákvæða og heilbrigða menningu, jafnrétti og sterka liðsheild. Að auki höfum við lagt okkur fram um að hvetja starfs­ fólk til aukinnar menntunar og við viljum virkja fólk til að bæta við sig þekkingu. Við höfum mótað öfluga menntastefnu sem mætir starfsfólki hvar sem það er, hvort sem er í formi símenntunar (dæmi um slíkt verk­ efni er Fræðsluskot kaupmannsins), fagnáms í verslun og þjónustu í sam­ vinnu við Verslunarskóla Íslands eða diplómanám í viðskiptafræði og verslunarstjórnun við Háskólann á Bifröst og Háskólann í Reykjavík. Auk þess settum við á fót árið 2021 sérstaka leiðtogaþjálfun fyrir versl­ unarstjóra Samkaupa með yfir­ heitinu Forysta til framtíðar en það er 12 ECT eininga nám í samstarfi við Háskólann á Bifröst og er ein­ stakt í atvinnulífinu,“ segir Gunnur Líf. Losuðu 27% minna af kolefni þrátt fyrir fjölgun verslana Heiður Björk Friðbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Samkaupa segir að stærsti vendi­ punkturinn í loftslagsmálum hjá Samkaupum hafi verið þegar fyrir­ tækið skrifaði undir yfirlýsingu sem afhent var á loftslagsráðstefnunni í París árið 2015. Samkaup hafi verið leiðandi í að minnka losun á dag­ vörumarkaði síðan. Í fyrra losaði Samkaup 27% minna af kolefni en ári áður, þrátt fyrir að verslunum hafi fjölgað og þá dróst eldsneytis­ notkun vegna ökutækja fyrirtækisins saman um 8,36%. „Við gerðum margar smærri breyt­ ingar í fyrra sem þó hafa allar mikil áhrif, svo sem að taka upp rafrænar hillumerkingar í stað límmiða, hefja notkun á rafrænum kvittunum í Samkaupa­ appinu, og setja upp fyrstu hraðhleðslustöðvarnar við verslanir. Þá hefur matarsóunará­ takið „Minni sóun ­ allt nýtt“ verið í gangi í nokkur ár en árið 2021 var al­ gjört metár þegar afslættir í gegnum átakið námu tæplega 320 milljónum króna. Við opnuðum líka aðra græna Nettó verslun, þar sem hugmynda­ fræði grænu skrefanna er höfð til hliðsjónar. Við ætlum að halda áfram á þessari braut. Loks innleiddum við umhverfisstjórnunarhugbúnað frá Klöppum sem gerir okkur kleift að mæla og fylgjast með kolefnis­ spori fyrirtækisins í rauntíma auk ýmissa annarra aðgerða með það fyrir augum að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum, bæði beinum og afleiddum,“ segir Heiður Björk. Auka sölu á íslenskum afurðum „Við gerðum samstarfssamning við Skógræktarfélag Íslands um Opna skóga árið 2020,“ segir Stefán Ragnar Guðjónsson, framkvæmda­ stjóri innkaupasviðs Samkaupa. Hann segir markmiðið að bæta að­ stöðu og auka aðgengi að opnum skógræktarsvæðum þannig að al­ menningur geti nýtt sér skóga til útivistar og heilsubótar. „Við höfum líka gert mikið í innkaupadeildinni, svo sem með því að bjóða neyt­ endum upp á umhverfisvæna kosti og sjálfbæra framleiðendur eins og Änglamark en það er dæmi um vörumerki þar sem gæðahráefni og lífræn ræktun mætast. Þá skiptir líka máli að við höfum á undanförnum árum náð að auka sölu á íslenskum afurðum. Með því náum við að lág­ marka innflutning á vörutegundum sem einnig eru framleiddar hér­ lendis, enda hefur það sýnt sig að neytendur kjósa helst íslenskt, sé slíkur kostur í boði,“ segir Stefán. Nýsköpun og áframhaldandi stafræn þróun Samkaupa­appinu var hrint úr vör um mitt ár 2021 og var því vel tekið. Í árslok voru notendur orðnir um 40.000 og 20% af sölu verslana fór í gegnum appið. Þar með er appið orðið að einu stærsta vildarkerfi landsins að sögn Gunnars Egils Sig­ urðssonar, framkvæmdastjóra versl­ unarsviðs Samkaupa. „Við höfum verið dugleg að til­ einka okkur nýja tækni og nýta fleiri leiðir við að mæta viðskiptavinum okkar. Netverslunin, sem fór í loftið árið 2017, hefur vaxið hratt og í fyrra var hvert metið slegið á fætur öðru í nýtingu hennar hjá okkar við­ skiptavinum. Við fengum vissulega heimsfaraldur með tilheyrandi sam­ komutakmörkunum en við teljum að neytendahegðunin hafi breyst til langframa og við hlökkum til að stíga næstu skref á þessari veg­ ferð. Nýsköpun er eina leiðin til að lifa af og það má geta þess að við höfum stutt við viðskiptahraðalinn „Til sjávar og sveita ­ frá hugmynd í hillu“, sem er brú á milli nýsköpunar og viðskiptavina. Þar hefur skapast góður vettvangur til vöruþróunar, m.a. á sviði hátækni í matvælaiðnaði, nýjum lausnum í landbúnaði og haf­ tengdum iðnaði, með betri nýtingu hráefna þar sem sjálfbærni og ný­ sköpun eru höfð að leiðarljósi. Ég get lofað því að neytendur eiga von á ýmsu góðu á þessu sviði á árinu framundan,“ segir Gunnar Egill. Stjórn Samkaupa er þannig skipuð: Sigurbjörn Gunnarsson (KSK) form., Skúli Skúlason, Guðfinna S. Bjarna­ dóttir, Margrét Guðnadóttir frá KB, Halldór Jóhannsson frá (KEA) og Anna Birgitta Geirfinnsdóttir. Jafnrétti og umhverfið í brennidepli hjá Samkaupum Stjórnendur hjá Samkaupum eru 52% konur og 48% karlar. Samkaupsappið með yfir 40.000 notendur og þar með orðið eitt stærsta vildarkerfi á Íslandi. Stjórn KSK:: Guðbjörg Ingimundardóttir, Sigurbjörn Gunnarsson, Skúli Skúlason form., Gerður Pétursdóttir, Eysteinn Eyjólfsson, Inga Brynja Magnúsdóttir. Sitjandi frá vinstri Jóhann Geirdal og Jóngeir Hlinason. „Þetta er mjög ánægjulegt. Rekstur móðurfélags og dótturfélaga gekk mjög vel og starfsemin hefur aukist jafnt og þétt. Félagið er í meiri- hluta eigu Suðurnesjamanna en reksturinn hefur styrkst með út- víkkun um landið á síðustu tveimur áratugum,“ segir Skúli Skúlason, stjórnarformaður Kaupfélags Suðurnesja en aðalfundur KSK var haldinn þann 17.mars. Hagnaður móðurfélagsins nam 510 milljónum sem er líklega besti árangur í sögu félagsins sem fagnaði 75 ára afmæli fyrir tveimur árum. Eiginfjárhutfall félagsins er 74% og félagið stendur traustum fótum. Félagslegir eigendur í KSK voru um síðustu áramót 7747. Rekstur Samkaupa gekk sam­ kvæmt áætlun á s.l. ári, salan voru rúmir 40 milljarðar í 65 verslunum um allt land. Hagnaður Samkaupa var 460 milljónir en Kaupfélagið á 51% hlut í Samkaup. Samkaup opnaði 3 nýjar verslanir á síðasta. ári. Ómar Valdimarsson lætur af störfum sem forstjóri um næstu mánaðarmót eftir alls 26 ár hjá fé­ laginu og við tekur Gunnar Egill Sig­ urðsson sem gegnt hefur starfi fram­ kvæmdastjóra verslunarsviðs. Í máli Skúla kom fram að 4 einstaklingar hafa gegnt starfinu frá því að félagið var stofnað 1998 og allir vaxið upp innan félagsins. Fasteignafélagið KSK eignir var með veltu upp á 580 milljónir og hagnaður var 46 milljónir. Fasteigna­ félagið á 30 fasteignir í 21 sveitar­ félagi, alls 32 þúsund fermetra hús­ næðis sem nánast allt er í útleigu og nýting því góð. Í samstæðureikningi kemur fram að heildarumfang samstæðu KSK eru 16 milljarðar króna, eiginfjárhlut­ fallið 30% og veltufjárhlutfall 1.04. Besti árangur í sögu Kaupfélags Suðurnesja Lykilstjórnendur Samkaupa hf., f.v. Heiður Björk, Stefán Ragnar, Gunnur Líf, Gunnar Egill og Ómar Valdimarsson. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, var gestur aðalfundar KSK og fór yfir þróun mála hjá bæjarfélaginu. Alexandra Chernyshova, sópransöngkona, söng á aðalfundi KSK en hún er alin upp í Úkraínu. Frá aðalfundi Kaupfélags Suðurnesja í síðustu viku.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.