Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.03.2022, Qupperneq 22

Víkurfréttir - 23.03.2022, Qupperneq 22
Endurskoðun á aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2020 - 2035 Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á fundi þann 21. desember 2021 að auglýsa tillögu að Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2020-2035 samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr 123/2010. Samhliða er auglýst tillaga að umhverfisskýrslu samkvæmt 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 og hjá Skipulagsstofnun frá og með 24. mars 2022 til 6. maí 2022. Tillagan er einnig aðgengileg á heimasíðu Reykjanesbæjar (reykjanesbaer.is) Íbúafundir um efni tillögunnar verður haldinn á auglýsingatíma og er nánar útlistað á heimasíðu Reykjanesbæjar (reykjanesbaer.is) Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 6. maí 2022. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ eða á netfangið skipulag@reykjanesbaer.is   Reykjanesbæ, 24. mars 2022. Skipulagsfulltrúi Berjast fyrir sæti í úrslitakeppninni Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Grindvíkinga í Subway-deild karla, er bjartsýnn á framhaldið. Sverrir Þór tók við liði Grindvíkinga seint á tímabilinu en Grindvíkingar heyja nú harða baráttu fyrir sæti í úrslitakeppni Subway-deildarinnar. Þegar þrjár umferðir eru eftir er Grindavík í kjörstöðu til að tryggja sig áfram með sigri í næsta leik. Víkurfréttir heyrðu í Sverri og ræddu um boltann. „Við eigum þrjá leiki eftir og við förum í þá alla til að vinna. Við mætum ÍR á föstudaginn og við þurfum að ná í sigur til að vera öruggir,“ segir Sverrir og heldur áfram: „Öll liðin eru að keppa að einhverju og fyrir okkur er núna bara að duga eða drepast. Við erum bara að hugsa um þennan eina leik, það er allur fókus settur á hann og hinir bara geymdir. Settir til hliðar á meðan.“ Nú kemur þú náttúrlega seint inn í þetta. Hvernig finnst þér deildin búin að vera í vetur? „Það eru búin að vera skrítin úrslit í deildinni. Bara ef við tölum um Grindavík sem er búið að vinna leiki á móti toppliðunum og tapa fyrir tveimur neðstu. Skrítin úrslit en deildin er mjög sterk og það lítur út fyrir hörkuúrslitakeppni framundan. Vonandi fáum við að sjá óvænt úr- slit í henni. Út á við er það skemmtilegast þegar óvænt úrslit verða í svona keppni. Eins og staðan er hjá okkur Grindvíkingum, við erum að berjast fyrir að komast áfram og ef okkur tekst það þá þurfum við að koma á óvart í sjálfri úrslitakeppninni því þá er líklegast að við séum að mæta einhverju af efstu liðunum – nema það spilist það vel úr þessu fyrir okkur í síðustu þremur leikjunum, okkar og önnur úrslit.“ Gæði í liðinu Hvernig er staðan á hópnum, allir heilir? „Já, nú er búið að vera svolítið frí frá leikjum út af bikarkeppninni, sem við vorum náttúrlega dottnir úr. Við erum svo sem ekki með stóran æfingahóp en nógu stóran til að fara af fullum krafti í það sem eftir er af tímabilinu. Hópurinn hefur sýnt í vetur að það eru gæði í liðinu, þrátt fyrir að þetta hafi verið svolítið kaflaskipt hjá okkur en við stefnum á að koma okkur í úrslitin í næsta leik og erum bjartsýnir á framhaldið.“ En þú sjálfur, samdir þú ekki bara fram á vorið? „Jú, ég tók bara við liðinu út tímabilið og við ákváðum að ég myndi klára þetta. Það hefur svo ekki verið rætt neitt frekar.“ Er þetta ekki miklu skemmtilegra en að mála? „Jú, þetta er rosalega skemmti- legt en fyrst maður kom svona óvænt inn í þetta þá er bara best að klára tímabilið áður en maður fer að taka einhverjar ákvarðanir lengra fram í tímann. Ég er samt að hafa virkilega gaman að þessu, fann það strax þegar ég mætti á fyrstu æfinguna hvað ég var að fíla þetta vel.“ Þú heldur nú áfram ef þið gerið góða hluti í úrslitakeppninni, er það ekki? „Ég er alveg opinn fyrir því en það er líka ágætt fyrir mig, og Grindavík, að klára tímabilið og taka þá stöðuna.“ Sverrir er ekki alveg ókunnur innan herbúða Grindavíkur – hér er hann að stýra liðinu fyrir nærri tíu árum síðan. Jóhann Páll Kristbjörnsson johann@vf.is sport

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.