Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.03.2022, Blaðsíða 24

Víkurfréttir - 23.03.2022, Blaðsíða 24
Mundi Drónhóll ... Aldurs­ komplexar Fyrr í þessum mánuði fagnaði ég hálfrar aldar afmælisdegi. Ég var svo sem búin að ganga með þann hnút í maganum í yfir ár að nú færi dagurinn að nálgast með öllum þeim kostum og göllum sem ég gat gert mér í hugarlund. Hafði t.d. fagnað rækilega með öllum mínum æskuvin­ konum sem náðu sama áfanga á síð­ asta ári. Aldrei hefði mig þó grunað hversu mikla gleði dagurinn átti eftir að veita mér og þeim tímamótum sem mér finnst ég vera á akkúrat í dag. Fyrir ykkur sem lesið hafa pistlana mína (kannski enginn) vil ég viðurkenna að eftir því sem árin líða verð ég væmnari og þakklátari útgáfa af sjálfri mér. Lífið hefur gefið mér svo margt, bæði gott og slæmt. Þannig að fyrirfram vil ég biðjast afsökunar á því ef ykkur finnst ég vera of persónuleg. Ég kýs að nota þennan vettvang til þess að ræða frekar eitthvað sem mig langar að deila úr mínu lífi í stað þess að fara í pólitískar skotgrafir, þó það hafi nú alveg gerst. En allar ábendingar vel þegnar. Því hvað veit ég svo sem? En aftur að afmælisdeginum. Við maðurinn minn erum jafngömul þó hann tali nú alltaf um að hann sé yngri en ég, á afmæli seinna á árinu. Við vorum búin að ákveða að halda sameiginlega afmælisveislu og ætt­ móðirin, mamma mín sem er karla­ holl með eindæmum og á það til að vera frekar í hans liði en mínu, var búin að ákveða að dagurinn yrði að vera mitt á milli afmæla okkar. Þannig að búið var að ákveða að maí væri tilvalinn í verkefnið. Við vorum því búin að stilla upp plani (eins og excel­nördarnir í okkur báðum gera við svona tilefni), tala við vini varðandi veislustjórn og ákveða skemmtiatriði. Meira að segja svo langt komin að bóka þau í gegnum góðan vin sem á sambönd í bransanum. Tilhlökkunin var mikil og við ætluðum nú aldeilis að njóta þess með okkar bestu. Eftir að ég fagnaði mínum áfanga þá fannst mér hins vegar momentið mitt vera búið. Þar sem ég átti svo dásamlegan tíma með mínu nánasta fólki á afmælis­ deginum fannst mér sérdeilis ekki ástæða til að endurupplifa daginn. Því var ákveðið að hætta við stóra sameiginlega daginn. Á reyndar eftir að ræða það við ættmóðurina sem leikur sér í þessum töluðu í golfi á Spáni. En þá veit hún það núna. Á af­ mælisdegi mannsins míns mun það svo bara koma í ljós hvað hann vill gera. Kannski verður partý. Kannski förum við bara í fjölskyldufrí. Hver veit? Mögulega finnst einhverjum ykkar sem náð hafa þessum áfanga þetta óttalegt væl og sjálfsmiðun. Ég vil þá beina orðum mínum sérstaklega að ykkur sem eigið eftir að upp­ lifa þetta og jafnvel mínum gömlu skólafélögum í Keflavík. Þessum tímamótum að verða fimmtugur er sko engin ástæða til að kvíða. Ég er ekkert eldri í hausnum en ég var fyrir ári eða tíu árum ef því er að skipta. Svo er ég líka svo einstak­ lega heppin hvað ég er mikill „late bloomer“ ef ég er þá „bloomer“ á annað borð. Það er kannski meira því að þakka hversu falleg og heil­ brigð móðurfjölskyldan mín er. Þar er jú hreysti og langlífi svo ég tali nú ekki um allar fegurðardrottningarnar sem fæðst hafa í móðurlegginn. Frænkur þið vitið hverjar þið eruð! Ég er þó aðallega heppin að ná að fagna þessum áfanga. LO KAO RÐ INGU BIRNU RAGNARSDÓTTUR KYNNING Á VINNSLUTILLÖGU AÐALSKIPULAGS SUÐURNESJABÆJAR 2022-2034 Tillagan er sett fram í greinargerð, á þremur skipulagsuppdráttum á einu kortablaði, auk umhverfismatsskýrslu. Skipulagið er sett fram eftir málaflokkum, þ.e.: ■ Sjálfbært og aðlaðandi samfélag ■ Blómlegt og fjölbreytt atvinnulíf ■ Traustir og hagkvæmir innviðir ■ Vel menntað og heilbrigt samfélag Vinnslutillaga Aðalskipulags Suðurnesjabæjar 2022–2034, ásamt umhverfismatsskýrslu er kynnt skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 15. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og er aðgengileg á vef Suðurnesjabæjar, www.sudurnesjabaer.is. Auk þess mun vinnslutillagan liggja frammi á skrifstofu Suðurnesjabæjar Sunnubraut 4 í Suðurnesjabæ. Umsagnir eða athugasemdir skulu berast til Suðurnesjabæjar á afgreidsla@sudurnesjabaer.is undir yfirskriftinni „Aðalskipulag Suðurnesjabæjar - vinnslutillaga“ fyrir 14. apríl 2022. Umsagnir má einnig senda bréfleiðis á Sunnubraut 4, 250 Suðurnesjabæ. Íbúafundur vegna tillögunnar þar sem vinnslu- tillaga aðalskipulagsins verður kynnt verður auglýstur síðar. Aðalskipulag Suðurnesjabæjar 2022–2034 er nýtt aðalskipulag sem felur í sér endurskoðun gildandi aðalskipulaga, þ.e. Aðalskipulags Garðs 2013–2030 og Aðalskipulags Sandgerðisbæjar 2008–2024. Innan sveitarfélagamarka er einnig í gildi Aðalskipulag Keflavíkurflugvallar 2013–2030, en það er ekki hluti af endurskoðuninni. Fjölmargir töpuðu drónum við eldgosið í Fagradalsfjalli sem stóð í hálft ár frá 19. mars til 18. september á síðasta ári. Sögusagnir eru um að hundruð dróna hafi farið í gíginn eða tapast í glóandi hrauninu þá mánuði sem gosið stóð yfir. Vísindamaður sem fór á dögunum til að mæla sprungur á stað sem kallaður hefur verið Gónhóll við eldgíginn í Fagradalsfjalli fann sex dróna á svæðinu, að því er Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlis­ fræði, upplýsti á fundi í menningarhúsinu Kvikunni í Grindavík í vikunni sem leið í tilefni af því að ár er liðið frá því eldsumbrot hófust í fjallinu. Mældi sprungur og fann sex dróna á Gónhóli Undirbúningur fyrir Ljósanótt 2022 er hafinn og fer hátíðin fram dagana 1.–4. september næst- komandi. Markið er sett á fullbúna hátíð með dagskrá frá fimmtudegi til sunnudags. Menningar- og at- vinnuráð Reykjanesbæjar hvetur alla hagsmunaaðila til að taka höndum saman um að skapa frá- bæra Ljósanótt 2022. Allir sem luma á góðum hugmyndum eða hafa áhuga á að leggja hátíðinni lið með fjölbreyttum hætti eru hvattir til að setja sig í samband við menn- ingarfulltrúa Reykjanesbæjar. Markið er sett á fullbúna Ljósanótt Guðbjörg Kristmunds- dóttir, formaður Verka- lýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis hefur ákveðið að gefa kost á sér sem varaformaður Starfsgreinasambandsins, SGS. „Þar vil ég leggja mitt á vogaskálarnar í starfi hreyfingarinnar og mína krafta í að gera hreyfinguna öfluga og kraft­ mikla til að berjast fyrir réttindum verkafólks. Ég hef átt gott samstarf við alla formenn SGS og á auðvelt með að vinna með fólki og tel því ég eiga fullt erindi í þetta hlutverk. Mér finnst mikilvægt að rödd og áherslur míns félags og félagsmanna og okkar Suðurnesjamanna heyrist innan verkalýðs­ hreyfingunnar í komandi kjaravið­ ræðum og vil leggja mitt af mörkum til þess,“ segir Guðbjörg í tilkynningu sem hún birtir á Facebook. Guðbjörg sækist eftir varaformennsku í SGS Eldgosið myndað með dróna. VF-mynd: Jón Steinar Sæmundsson

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.