Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.08.2022, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 10.08.2022, Blaðsíða 1
Erfiðlega hefur gengið að hefta för foreldra með ung börn inn að gosinu í Meradölum. Gosið hófst skömmu eftir hádegi 3. ágúst síðastliðinn. Í flestum tilfellum er um erlenda ferðamenn að ræða og það þrátt fyrir góða upplýsingagjöf um að gossvæðið sé ekki staður fyrir ung börn að dvelja á. Börn og foreldrar þeirra hafa í mörgum tilfellum verið mjög illa búin og svo virðist sem fólk geri sér enga grein fyrir því hvar það er statt og hvað bíður þeirra á erfiðri og langri göngu að gosstöðvunum, segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Að gefnu tilefni og með hagsmuni barna að leiðarljósi hefur lögreglu- stjórinn á Suðurnesjum því ákveðið að takmarka aðgengi barna yngri en 12 ára að gosstöðvunum þegar svæðið er opið. Heimild fyrir að- gerðum lögreglustjóra er sótt í 23. gr. laga um almannavarnir nr. 82/2008. Þá verður eftirlit lögreglu og björg- unarsveita með umferð ökutækja um Suðurstrandarveg. Settir hafa verið upp lokunarpóstar austan Grinda- víkur á meðan lokað er að eldstöð- inni vegna veðurs og aðeins þeim hleypt í gegn sem eiga erindi eftir Suðurstrandarvegi. Nánar er fjallað um eldgosið í Meradölum í miðopnu Víkurfrétta í dag. VIÐ SÝNUM ALLAR EIGNIR, FÁÐU TILBOÐ Í FERLIÐ. ÁSTA MARÍA JÓNASDÓTTIR A S TA@A L LT.I S | 560-5507 UNNUR SVAVA SVERRISDÓTTIR U N N U R@A L LT.I S | 560-5506 ELÍN FRÍMANNSDÓTTIR E L I N@A L LT.I S 560-5521 JÓHANN INGI KJÆRNESTED J O H A N N@A L LT.I S | 560-5508 DÍSA EDWARDS D I S A E@A L LT.I S | 560-5510 ELÍNBORG ÓSK JENSDÓTTIR E L I N B O RG@A L LT.I S | 560-5509 PÁLL ÞOR BJÖRNSSON PA L L@A L LT.I S | 560-5501 studlaberg.is 16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Börnum meinaður aðgangur að eldgosi Nú er það þannig að lögreglan hefur sett upp lokunarpósta í stað þess að björgunarsveitirnar reyni að halda aftur af fólki. Lokunarpósturinn inná svæðið Grindavíkurmegin er austur í Þórkötlustaðahverfi og er þeim hleypt framhjá sem eru á leið um suðurstrandarveg og í gegnum svæðið en þeim sem ætla sér að skoða gosið er snúið við. VF-mynd: Jón Steinar Sæmundsson Mikið hefur mætt á björgunarsveitarfólki frá því jarðeldurinn braust út í síðustu viku. Síðustu daga hefur viðrað illa í fjallinu og þurft að leita að fólki sem jafnvel hefur verið illa búið til fjallaferða. Myndina hér að ofan tók ljósmyndari okkar í Grindavík, Ingibergur Þór Jónasson, af björgunarsveitarfólki úr Björgunarsveitinni Þorbirni, sem hefur staðið vaktina daga og nætur síðustu daga, vikur, mánuði og misseri. Hér er björgunarsveitarfólkið á fyrsta degi gossins í Meradölum. Bjartir tímar framundan „Sem þriggja barna móðir í fullu starfi þá er sjaldan lognmolla í kringum mig en nákvæmlega þannig líður mér best,“ segir Inga Lára Jónsdóttir, nýr útibússtjóri Securitas á Reykjanesi. Hún er í viðtali á síðu 12 í blaðinu í dag. 11.–14. ágúst Miðvikudagur 10. ágúst 2022 // 29. tbl. // 43. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.