Víkurfréttir - 10.08.2022, Side 4
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is á timarit.is
B Ó N S TÖ Ð
Er að leita að metnaðarfullum, vandvirkum starfskrafti
til að reka bónstöð á góðum stað í Reykjanesbæ.
Góð aðstaða og góðir tekjumöguleikar
fyrir réttan aðila.
Upplýsingar í síma 896 0096 (Jóhann)
Viltu vinna
með litlum
snillingum?
Reykjanesbær óskar eftir
áhugasömum umsækjendum
um leyfi til daggæslu barna
í heimahúsum.
Sjá má frekari upplýsingar inn á heimasíðu
Reykjanesbæjar og einnig veitir Ingibjörg
Bryndís Hilmarsdóttir, leikskólafulltrúi nánari
upplýsingar í síma 421-6700.
Ný sýning opnar á Rokksafni Íslands:
Úrklippubókasafn Kela
Rokksafn Íslands opnar nýja
sýningu næstkomandi laugardag,
13. ágúst, kl.14:00. Nýja sýningin
fjallar um Sævar Þorkel Jensson,
betur þekktur sem Keli, og úr-
klippubókasafn hans en hann hefur
safnað úrklippum og eiginhandará-
ritunum tónlistarfólks frá því að
hann var ungur strákur.
Það væru ekki til neinar stjörnur
ef aðdáendur væru ekki til. Oft er
þetta sama fólkið, en alvöru
safnarar eru samt fámennur
hópur, sem hefur í gegnum
aldirnar haldið til haga
mörgu af því sem er til sýnis
á söfnum um allan heim.
Safnarar á Íslandi safna
ólíklegustu hlutum en það eru
ekki margir sem eru jafn ákafir
safnarar á sviði rokk-, popp- og
hvers konar dægurtónlistar
eins og Keli. Sævar Þorkell
hefur safnað eiginhandarárit-
unum og úrklippum frá árinu
1964 þegar hann sá Hljóma
fyrst á sviði. Keli á eitt stærsta
úrklippusafn um dægurtónlist
á Íslandi. Hann mætir gjarnan á
tónleika með úrklippubók og fær
viðkomandi tónlistarfólk til að rita
nöfn sín í bókina. Honum er jafnan
vel tekið og hefur safnað áritunum
flestra poppara og rokkara landsins.
Hann á líka eiginhandaráritanir
heimsþekktra tónlistarmanna.
Úrklippubækur Kela geyma
margskonar fróðleik og spanna
dægurtónlistarsöguna í rúmlega
hálfa öld. Bækurnar í dag eru rúm-
lega þrjú hundruð og fimmtíu talsins.
Keli á umtalsvert magn af úr-
klippum sem tengjast Bubba Mort-
hens, Björk, Bríet, Helga Björns,
GDRN, Jónasi Sig, Stefáni Jakobs-
syni, Hjálmum, Baggalúti og John
Grant, svo fátt eitt sé nefnt, en Keli
verður með bækur sínar til sýnis á
Rokksafni Íslands á meðan sýningin
stendur.
Opnun sýningarinnar hefst kl.
14:00. Kjartan Már Kjartansson,
bæjarstjóri Reykjanesbæjar, opnar
sýninguna formlega, Jónatan Garð-
arsson, handritshöfundur sýningar-
innar, heldur stutta ræðu um Kela,
tónlistaratriði verður á sviði og í
boði verða léttar veitingar fyrir gesti
opnunarinnar.
Enginn aðgangseyrir verður á
Rokksafn Íslands þennan dag og eru
allir velkomnir.
Már Gunnarsson tónlistarmaður og sundkappi hefur ákveðið að leggja
sundferilinn á hilluna og einbeita sér nú að tónlistinni. Í haust mun hann
hefja krefjandi nám í tónlistarháskóla í Bretlandi og fer þangað einn síns
liðs, ásamt leiðsöguhundinum Max, en fyrir brottför mun hann senda
frá sér nýja tónlist og fara í stutta tónleikaferð um landið þar sem hann
kveður landa sína í bili. Tónleikaröð Más Gunnarssonar núna síðsumars
2022 kallast Sjáumst og verða tónleikar í Sjálandi í Garðabæ 25. ágúst,
í Stapa í Reykjanesbæ 1. september og á Sviðinu á Selfossi 2. september.
Tónleikarnir hefjast allir kl. 20 og er miðasala á tix.is.
„Ég finn að að ég stend á tíma-
mótum, ég hef náð frábærum árangri
í lauginni. Heimsmet og þátttaka á
ólympíuleikum voru markmið sem
ég hafði sett mér! En mér finnst það
sem laugin býður upp á núna vera
meira af því sama. Ég hef keppt
á stærstu mótum heims, ég hef
staðið á verðlaunapalli og nú er lag
að hlusta á hjartað og styrkja mig í
tónlistinni. Þess vegna tek ég þessa
ákvörðun,“ segir Már Gunnarsson á
þessum tímamótum.
„Núna er ég að vinna efni með frá-
bæru tónlistarfólki. Í júlí var ég að taka
upp valin lög sem Þórir Úlfarsson út-
setti með mér. Einar Valur Scheving
spilar með mér á trommur, Birgir Steinn
Theódórsson spilar á bassa og Pétur
Valgarð Pétursson á gítar. Þetta er bæði
gamalt íslenskt efni og svo nýtt efni eftir
mig í stíl við það,“ bætir Már við.
Már heldur áfram að vinna gömul
dægurlög og gera þau að sínum en
um leið hefur hann samið lög sem
hann og Þórir eru að útsetja þannig
að heildarmyndin haldi þræði.
Sjáumst
með Má
FIMMTUDAGURINN 11. ÁGÚST KL. 19:30
HELGI OG GRÉTAR
Í RAFHOLTI
4 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM