Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.08.2022, Side 6

Víkurfréttir - 10.08.2022, Side 6
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421-0000. Ristjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Blaðamenn: Jóhann Páll Kristbjörnsson, Thelma Hrund Hermannsdóttir og Sigurbjörn Daði Dagbjartsson. Útlit og umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Hilmar Bragi Bárðarson. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Ufsaveiðar ganga vel Eins og kom fram í síðasta pistli þá hafa strandveiðibátarnir lokið veiðum en það er ekki þar með sagt að handfærabátarnir séu hættir. Nei, ekki aldeilis – því ansi margir bátar voru á handfærunum í júlí og núna fyrstu dagana í ágúst og voru þá að veiða ufsa í Röstinni og út við Eldey. Veiðarnar hjá bátunum gengu mjög vel en þetta er langt út að sækja og því þarf að vera nokkuð gott veður til þess að bátarnir fari þetta langt út. Ef við lítum á nokkra handfæra- báta sem voru á ufsanum og hérna eru bátar sem lönduðu í Sandgerði, þá má t.d. nefna Snorra GK 1 sem var með nítján tonn í átta róðrum og af því var ufsi átján tonn, Arnar ÁR 55 með 12,8 tonn í ellefu og ufsi af því 4,5 tonn, Guðrún GK 90 með 33 tonn í aðeins níu róðrum og mest sex tonn, af þessu var ufsi um 31 tonn, Sindri GK með 26 tonn í sjö, mest 4,8 tonn og var ufsi af þessu 24 tonn, Addi Afi GK 44 tonn í átta og mest 7,1 tonn, ufsi af þessu um 42 tonn, Ragnar Alfreðs GK 39,4 tonn í sjö, mest 7,9 tonn, og Sara ÍS 34 tonn í sjö og mest 6,1 tonn. Það má bæta við þetta að núna í byrjun ágúst kom Ragnar Alfreðs GK með 5,3 tonn, Sindri GK 4,4 tonn, báðir í einni löndun, og Mar- grét SU 6,2 tonn í tveimur róðrum. Svo ágúst byrjar nokkuð vel hjá ufsabátunum. Hérna eru bátar sem lönduðu í Grindavík; Líf NS 14,3 tonn í sex og var það allt ufsi, Von ÓF átta tonn í fjórum en báturinn hefur verið í smá bilanaveseni og reri því lítið í júlí. Annars er svo til allur flotinn búinn að vera stopp í júlí og sem dæmi var enginn stór línubátur á veiðum allan júlí, hvorki hjá Vísi ehf. né Þorbirni ehf. Sama á við um bátana hjá Nes- fiski en dragnótabátarnir hófu þó veiðar núna í ágúst og byrja ansi vel. Siggi Bjarna GK var með um 35 tonn í einni löndun, Sigurfari GK um 34 tonn í einni löndun. Pálína Þórunn GK er líka byrjuð en afla- tölur um fyrstu löndun hennar voru ekki komnar inn þegar þessi pistill er skrifaður. Margrét GK er kominn austur á Neskaupstað eftir að hafa róið á línu í júní og júlí frá Sandgerði, sem er nokkuð merkilegt því að undan- farin ár hefur svo til enginn af minni bátunum stundað línuveiðar frá Suðurnesjunum, því hafa allir farið í burtu. Annars er ágústmánuðurinn síðasti mánuðurinn á þessu fisk- veiðiári 2021–2022, því nýtt kvótaár hefst núna 1. september næstkomandi og þá fer allur flotinn af stað og stóru línubátarnir frá Grindavík fara út á land og fisk- flutningar verða allsráðandi í haust. Netabátarnir hans Hólmsgríms hófu veiðar í júlí og núna í byrjun ágúst hefur Hraunsvík GK líka hafið netaveiðar frá Grindavík og hefur Hraunsvík GK landað um 7,3 tonn í tveimur róðrum sem er nú bara nokkuð gott. Hinir netabátar hans Hólmgríms voru Halldór Afi GK sem var með þrettán tonn í átta róðrum í júlí og núna í ágúst um 2,9 tonn í tveimur róðrum. Maron GK var með 34 tonn í tólf róðrum í júlí og núna í ágúst kominn með þrettán tonn í þremur róðrum. Grímsnes GK var á ufsaveiðum í net og gekk ansi vel, var með 120 tonn í sjö róðrum og auk þess 24 tonn í einni löndun núna í ágúst. Er- ling KE fór líka á ufsann en aflatölur um hann voru ekki komnar þegar þetta var skrifað. aFlaFrÉttir á suðurNEsJuM Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is w Áratuga reynsla Sjónmælingar Góð þjónusta Linsumælingar Falleg vara Sjónþjálfun Nýjungar í sjónglerjum og tækjum Tímapantanir í síma 420-0077 og á heimasíðu www.reykjanesoptikk.is Fylgdu okkur á Instagram og Facebook @reykjanesoptikk.is Verið velkomin í nýja og glæsilega gleraugnaverslun Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langa- langafi, GUÐLAUGUR TÓMASSON Laugi Kirkjuvegi 11, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 31. júlí. Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hins látna. Jón Guðlaugsson Ástríður Guðmundsdóttir Tómas S. Guðlaugsson Kristín Rósný Guðlaugsdóttir Rúnar Már Bjarnason Grétar Ingólfur Guðlaugsson Brynja Þóra Valtýsdóttir Álfhildur Guðlaugsdóttir Hrafn Jónsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Fallegustu garðar Reykjanesbæjar Umhverfis- og skipulagsráð Reykja- nesbæjar ætlar í ár að veita viður- kenningar fyrir fallega garða og bætt umhverfi. Ábendingar og tilnefningar óskast sendar með tölvupósti á umhverfismal@ reykjanesbaer.is, fyrir 19. ágúst næstkomandi. Þann sama dag mun ráðið fara yfir ábendingar á fundi sínum og meta. Farið verður í skoðunarferð í þá garða sem verða fyrir valinu og veittar verða viður- kenningar fyrir fallegustu garðana að mati ráðsins. Þá verða einnig veittar viður- kenningar fyrir þá einstaklinga og/eða fyrirtæki sem hafa farið í umhverfisbætur á húsnæði og/ eða umhverfi húsnæðis í sveitar- félaginu. Gróður og ásýnd umhverfis skiptir máli fyrir okkur öll en fjöl- breyttur gróður hjálpar okkur að binda kolefni og bæta loftgæði í sveitarfélaginu okkar. Við hvetjum því bæjarbúa til að hlúa vel að nær- umhverfi sínu og hjálpa okkur að gera sveitarfélagið okkar aðlaðandi þar sem okkur öllum líður vel. Viðurkenningar verða veittar í Ráðhúsi Reykjanesbæjar fimmtu- daginn 1. september kl. 13 eftir söngstund sem fer þar fram í tilefni setningu Ljósa nætur 2022. Ljósberinn, ljóðasamkeppni á Suðurnesjum Menningarfélagið Bryggjuskáldin efnir til ljóðasamkeppni á Suður- nesjum. Reglur keppninnar eru ein- faldar: Innsent ljóð má ekki hafa birst áður og æskilegt er að það fjalli um Suðurnesin á einn eða annan hátt. Veitt verða verðlaun fyrir besta ljóðið að mati dómnefndar og auk þess fá tvö ljóð í viðbót viðurkenn- ingu. Í dómnefnd sitja skáldin Anton Helgi Jónsson, Eyrún Ósk Jóns- dóttir, Guðmundur Magnússon og þýðandinn Helga Soffía Einarsdóttir. Ljóðin skal merkja með dulnefni ásamt nafni, heimili, netfangi og símanúmeri höfundar í öðru lokuðu umslagi með sama dulnefni merkt „Ljósberinn“ til Bókasafns Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ. Skilafrestur rennur út 30. ágúst. Einnig má senda ljóðin ásamt upplýsingum um höfund á netfangið: Stefania. Gunnarsdottir@Reykjanesbaer.is ef það hentar betur. Tilkynnt verður um úrslit á Ljósanótt 2022. Þá munu vinnings- hafar lesa upp ljóðin sín og taka við viðurkenningu. Frekari upplýsingar veitir Guð- mundur Magnússon gudmundur@ steinbogi.is Göngustígur milli Garðs og Reykjanesbæjar til skoðunar Reykjanesbær hefur lagt fram erindi við Suðurnesjabæ með ósk um af- stöðu sveitarfélagsins til fyrirliggj- andi gagna og fyrirspurna vegna fyrirhugaðs göngustígs milli Garðs og Reykjanesbæjar. Framkvæmda- og skipulagsráð Suðurnesjabæjar tók málið til um- fjöllunar á dögunum. Ráðið leggur til við bæjarstjórn að unnið verði að áætlun um lagningu göngu- og hjól- reiðastígs milli þéttbýlisins í Garði og Reykjanesbæjar á allra næstu árum í samráði við Reykjanesbæ og Vega- gerðina í samræmi við fyrirliggjandi forhönnun og kostnaðaráætlun. Gert er ráð fyrir legu stígsins í tillögu að aðalskipulagi sveitarfélagsins sem brátt verður auglýst til kynningar. Betri Vogastrætó til umfjöllunar Nokkrar tillögur að aðgerðum til að bæta Vogastrætó voru teknar fram á síðasta fundi bæjarráðs Sveitar- félagsins Voga. Bæjarráð þakkar ábendingarnar sem eru lagðar fram og felur umhverfisdeild að óska eftir því við Strætó bs. að komið verði upp tímatöflu við Gamla pósthúsið, ásamt upplýsingaskilti um biðstöð. Bæjarráð samþykkir að vísa til fjárhagsáætlunar beiðni um að komið verði upp biðskýli við Gamla pósthúsið, ásamt því að leitað verði samstarfs við eigendur veitingastað- arins um staðsetningu biðskýlisins. Þá felur bæjarráð umhverfisdeild að koma óskum og ábendingum og fjölgun ferða til Vegagerðarinnar, sem annast umsjón með skipu- lagningu almenningssamgangna í dreifbýli. Bæjarráð vilji ekki koma til móts við barnafjölskyldur Henríetta Ósk Melsen óskar eftir því að bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga snúi við ákvörðun sinni um styttingu dvalartíma barna á leikskóla, eða undanþágu til að hún geti nýtt allan dvalartíma sem leikskólinn er opinn. Bæjarráð Sveitarfélagsins tók málið til afgreiðslu á síðasta fundi. Þar var erindi Henríettu hafnað og sagt að bæjarráð geti ekki orðið við erindinu. Fulltrúi L-listans bókaði við af- greiðsluna: „Við undrumst að bæjar- ráð vilji ekki koma til móts við barna- fjölskyldur sem þurfa að stunda vinnu utan Voga á meðan ekki er mikla atvinnu að hafa í Vogunum“. Vogar uppfylla ekki lágmarks- viðmið eftirlitsnefndar Bréf frá eftirlitsnefnd með fjár- málum sveitarfélaga til sveitar- stjórnar Sveitarfélagsins Voga vegna ársreiknings 2021 var lagt fram á síðasta fundi bæjarráðs. „Bæjarráð er meðvitað um fjár- hagsstöðu sveitarfélagsins, og að sveitarfélagið uppfylli ekki sem stendur lágmarksviðmið eftirlits- nefndar. Samkvæmt samþykktri fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árin 2022–2026 er gert ráð fyrir að lágmarksviðmiðum sveitarstjórnar- laga verði náð fyrir lok fjárhagsáætl- unartímabilsins,“ segir í afgreiðslu bæjarráðs. Skemmtilegur göngustígur við Garðskaga. 6 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.