Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.08.2022, Side 9

Víkurfréttir - 10.08.2022, Side 9
Algalíf Iceland ehf. leitar eftir starfs- fólki til starfa hjá sér sem fyrst Algalíf sérhæfir sig í framleiðslu á örþör- ungum og starfa um 50 manns hjá fyrirtækinu sem er lifandi og skemmtilegur vinnustaður. Algalíf Iceland ehf. is seeking staff to join the team Starfsfólk í þrif Helstu verkefni og ábyrgð: l Aðstoða við frágang í mötuneyti l Uppþvottur og almenn þrif l Þrif í almenningsrýmum, skrif- stofum, verksmiðju og starfs- mannaaðstöðu l Þvottur og frágangur l Hæfniskröfur: l Lipurð í mannlegum samskiptum l Frumkvæði og sjálfstæð vinnu- brögð l Snyrtimennska og stundvísi l Enska skilyrði Um er að ræða 100% störf Cleaning Technician l Main tasks and responsibilities: l General cleaning, dishwashing, and laundry l Cleaning offices, manufacturing plant, staff locker rooms and rest rooms l Qualifications: l Independence and initiative l Punctuality and good work ethics l Good communication skills l English speaker The positions are full time (100%). Verkafólk í uppsetningu l Helstu verkefni og ábyrgð: l Uppsetning á framleiðslukerfi í nýrri verksmiðju Algalífs l Önnur tilfallandi verkefni l Hæfniskröfur og ábyrgð l Lipurð í mannlegum samskiptum l Sjálfstæð vinnubrögð l Stundvísi og vandvirkni í starfi l enska skilyrði l Vinnuvélaréttindi eru kostur Um er að ræða 100% störf General worker for expansion l Main tasks and responsibilities: l Uppsetning á framleiðslukerfi í nýrri verksmiðju Algalífs l Önnur tilfallandi verkefni l Qualifications: l Independence and initiative l Punctuality and good work ethics l Good communication skills l English speaker l Common sense and dexterity l Experience with construction is an advantage l Forklift license is an advantage The positions are full time (100%) Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst 2022. Ferilskrá sendist á careers@algalif.com Please submit your CV to careers@algalif.com before August 25th 2022. Fagradalsfjallseldar gosrásir eru fyrst taldar geta opnast þegar þrengingar verða í þeim sem fyrir eru, sem geta orðið þegar gígar byrja að myndast yfir gossprung- unni. Gígamyndun er nú hafin í yfir- standandi gosi en gossprungan hefur dregist saman í virkni í nokkrum gos- opum sem fram til þessa hafa aðal- lega fóðrað stóra hrauntjörn sem svo rennur úr í Meradalina. Getur staðið mánuðum saman Vísindamenn segja að núverandi gos geti staðið yfir mánuðum saman eins og það fyrsta. Það sé líka skilgrein- ingaratriði hvort gosið sem hófst 3. ágúst sé nýtt gos eða framhald af gosinu í Geldingadölum frá 19. mars 2021. Menn eru þó sammála um að nú sé hægt að tala um Fagradals- fjallselda og búast megi við eldsum- brotum á Reykjanesskaganum næstu ár, áratugi og aldir. Kvikan sem nú kemur upp er sömu gerðar og kvikan úr fyrsta gosinu og kemur djúpt úr iðrum jarðar, alla leið frá möttlinum. Leiðin erfið yfirferðar Þúsundir hafa lagt leið sína í Mera- dali á þessari fyrstu viku eldgossins. Leiðin þangað er erfið yfirferðar og gangan í raun aðeins fyrir vant göngufólk. Björgunarsveitir hafa þurft að koma mörgum til aðstoðar og fjölmargir hafa lagt vanbúnir af stað, illa klæddir og ekki með nauð- synlegan búnað og vistir. Gosglaðir Íslendingar og erlendir ferðamenn átta sig ekki á vegalengdum og að- stæðum og ágætur Suðurnesja- maður vakti athygli á því í athuga- semd á samfélagsmiðlum að við erum að fást við eldgos í óbyggðum en ekki varðeld og brekkusöng við bílastæðið. Taka gosið föstum tökum Grindavíkurbær hefur tekið eldgosið föstum tökum, ef svo má segja, og ætlar að ráðast í að bæta innviði við Fagradalsfjall og mun standa straum af kostnaði við ýmsa þætti svo þeir verði unnir sem fyrst. Þannig áætlar Fannar Jónasson, bæjarstjóri, að gosið kosti bæjarsjóð um 60 milljónir króna og væntir þess að kostnaður sem lendi á bænum vegna gossins verði gerður upp síðar. Eldgosið er þegar farið að hafa jákvæð áhrif á ferðaþjónustu í Grindavík. Veitingastaðir eru þétt setnir og jafnvel hafa sést raðir inn í verslun Nettó þegar gosgestir hafa verið að hlaða á birgðir fyrir gönguna í fjallið. Skoða sprungur nærri Grindavík Jarðhræringarnar í lok júlí og fyrstu dagana í ágúst hafa valdið raski í náttúrunni. Víða hefur mátt sjá hvar stórgrýti hefur rúllað niður hlíðar. Þá hafa sprungur myndast, sumar hverjar mjög áberandi í landslaginu og eru tugir sentimetra á breidd. Vísindafólk Veðurstofu Íslands er að kortleggja þessar sprungur. VÍKURFRÉTTAMND: INGIBERGUR ÞÓR JÓNASSON Atvinna Óskum eftir að ráða hellu- lagnamenn og verkamenn Hægt er að hafa samband við grjotgardar@grjotgardar.is eða í síma 771-4645, Hjalti. . . . við erum að fást við eldgos í óbyggðum en ekki varðeld og brekkusöng við bílastæðið  . . . vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM // 9

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.