Víkurfréttir - 10.08.2022, Side 16
Mundi
Nú vantar bíó í Grindavík ...
... fyrir börnin sem mega ekki
fara og skoða gosið!
Hjá okkur er allt
innifalið
Ljósleiðari
10.490 kr/mán.
ENGINN AUKAKOSTNAÐUR, FRÍR ROUTER
NET
SÍMI
SJÓNVARP
K a p a l v æ ð i n g • H a f n a r g a t a 2 1 • 4 2 1 4 6 8 8
w w w . k v . i s • k v @ k v . i s
Opið 10 - 18 opticalstudio.is 511-5800
*Afslátturinn gildir ekki af tilboðsvöru
Áskorun til bæjarstjórnar
Má ekki segja að það sé komið
haust? Veðrið undanfarna daga
bendir a.m.k. til þess en þetta er
búið að vera vægast sagt dapurt
í sumar. Margir taka haustinu
reyndar fagnandi enda byrjar þá
blessuð rútínan en það er samt
erfitt þegar sumarið hefur ekki
ennþá mætt til leiks.
En nú þegar tekur að hausta er
kannski tilvalið að auka þrýsting
á meirihlutann í Reykjanesbæ um
að lækka álagsprósentu fasteigna-
skatts. Afar brýnt mál finnst mér
fyrir íbúa og fyrirtækin á svæðinu.
Nokkur sveitarfélög gáfu það út
strax í byrjun sumars að álagspró-
sentan yrði lækkuð verulega til þess
að bregðast við gríðarlegri hækkun
fasteignamats. Bæjarfulltrúar í
Reykjanesbæ hafa gefið það út að
þetta verði rætt við gerð fjárhagsá-
ætlunar nú í haust. Persónulega er
ég afar vonsvikinn að sjá ekki álíka
bókun og kom t.d. frá bæjarráði
Kópavogs um að fasteignaskattar
muni lækka samfara hækkun fast-
eignamats og á það við um íbúðar-
og atvinnuhúsnæði. Þetta skiptir
íbúa og fyrirtæki í bæjarfélaginu
miklu máli þegar heildarmat fast-
eigna á Íslandi hefur hækkað að
meðaltali um 20% á yfirstandandi
ári eða langmesta hækkun fast-
eignamats frá hruni. Hérna í bæ er
hækkunin yfir meðaltali.
Maður trúir varla öðru en að
Reykjanesbær bregðist við eins
og mörg önnur sveitarfélög eru
nú þegar að gera. Annað væri óaf-
sakanlegt að mínu mati þegar mörg
heimili eiga nú þegar í vandræðum
að ná endum saman. Hér með
er komin áskorun á bæjarstjórn
Reykjanesbæjar og mikið væri nú
gaman að sjá 100% samstöðu í
þessu máli.
Gleðilegt haust.
LO
KAO
RÐ
ÖRVAR Þ. KRISTJÁNSSON
Loka afgreiðslu póstsins í Grindavík
Bæjaryfirvöld í Grindavík fengu
kynningu á fyrirhuguðum breyt-
ingum á afgreiðslu Íslandspóst
í Grindavík þann 5. júlí síðast-
liðinn. Mesta breytingin er fyrir-
huguð lokun á afgreiðslu póstsins
á Víkurbraut 56 sem er starfs-
stöð Landsbankans í Grindavík.
Í staðinn á að fjölga póstboxum
vegna pakkasendinga og nýta
póstbíl til að afhenda heim að
dyrum.
Fram kom í kynningu Íslands-
póst að fyrirhugaðar breytingar
væru þær sömu og innleiddar
hafa verið á Hellu og Hvolsvelli en
reynslan þar er þannig að íbúar eru
afar ósáttir við þær breytingar og
segja um mikla þjónustuskerðingu
að ræða. Póstbíllinn þar er bara á
ferðinni virka daga milli 9–14.
„Nú um nokkurt skeið hefur
verið póstbox við verslunina
Nettó, Víkurbraut 60 í Grindavík.
Reynsla af því póstboxi hefur
verið misjöfn, iðulega er einhver
bilun sem er þess valdandi að ekki
er hægt að nálgast pakka sem þar
eru. Auk þess eru margir íbúar sem
ekki hafa tök á að nýta sér þessa
tækni og fara í póstafgreiðsluna
til að sinna sínum erindum vegna
sendinga, kaupum á frímerkjum,
umslögum og kössum undir pakka.
Hvað varðar aukna þjónustu
póstbíls þá hefur bæjarráð Grinda-
víkur miklar efasemdir um skil-
virkni þess að afhenda pakka
heim. Almennt er fólk í vinnu á
þeim tíma sem póstbíllinn er í út-
sendingum og því næst ekki að
koma sendingum til skila. Þegar
svo háttar til fara sendingar í af-
greiðslu póstsins þar sem íbúar
geta nálgast sendingar þegar þeim
hentar, s.s. í hádeginu.
Bæjaryfirvöld í Grindavík telja
þetta vera mikla þjónustuskerð-
ingu og lýsa andstöðu sinni við
þessar fyrirhuguðu breytingar sér-
staklega í ljósi þess að Grindavík er
3.650 manna samfélag og er í örum
vexti,“ segir í afgreiðslu bæjarráðs
Grindavíkur.
Íbúum Reykjanesbæjar
fjölgað um þúsund
manns á átta mánuðum
Íbúum í Reykjanesbæ hefur
fjölgað um 1.036 íbúa, eða um
5,1%, á tímabilinu frá 1. des-
ember 2021 til 1. ágúst 2022,
eða á átta mánaða tímabili.
Íbúar Reykjanesbæjar voru
21.417 þann 1. ágúst síðast-
liðinn. Íbúar Grindavíkur voru
3.640 og hafði fjölgað um 51 frá
1. desember síðastliðinn, sem
gerir 1,4% fjölgun. Íbúar í Sveit-
arfélaginu Vogum eru 1.400 og
hafði fjölgað um 62 á tímabilinu,
eða 4,6%. Þá eru íbúar Suður-
nesjabæjar 3.846 talsins og þar
hefur fjölgað um 102 á umræddu
tímabili, eða 2,7%.