Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.12.2022, Side 2

Víkurfréttir - 28.12.2022, Side 2
 FINNDU OKKUR Á FACEBOOK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K 845 0900 FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM HREINSUM RIMLAGARDÍNUR OG MYRKVUNARGARDÍNUR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS Barnavernd Suðurnesjabæjar annast fylgdarlaus börn sem koma til landsins, eins og er eru 29 börn í þeirra umsjá en fyrir aðeins ári síðan voru þau færri en tíu. Staðsetning Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar innan sveitarfélagsmarka Suðurnesjabæjar er ástæða þess að barnaverndarþjónusta Suðurnesjabæjar sér um að sinna þeim hópi barna sem kemur með flugi og sækja um alþjóðlega vernd hjá lögreglunni í flugstöðinni. Bæjarráð Suðurnesjabæjar hefur falið bæjarstjóra að fylgja eftir málum þessa hóps með ráðherra um stöðu málaflokksins. Þetta kemur fram í bókun sem bæjarráðið lagði fram á dögunum en bókunin hljóðar svo: „Mál fylgdarlausra barna, útlendinga í neyð og mál þar sem grunur leikur á mansali sem upp koma í Flug- stöð Leifs Eiríkssonar hafa hingað til verið á ábyrgð barnaverndar- þjónustu Suðurnesjabæjar, áður Sandgerðisbæjar, þar sem Flug- stöð Leifs Eiríkssonar er í Suður- nesjabæ. Barnaverndarþjónusta sveitarfélagsins tekur við tilkynn- ingum vegna fylgdarlausra barna og byggir málavinnslan m.a. á lögum um útlendinga nr. 80/2016 og barna- verndarlögum nr. 80/2002. Þessu mikilvæga samfélagslega verkefni hefur sveitarfélagið sinnt af alúð og metnaði síðustu áratugi og hefur mikil sérþekking skapast í kjölfarið hjá sveitarfélaginu. Nú eru 32 fylgdarlaus börn í umsjá barnaverndarþjónustu Suðurnesja- bæjar og innviðir komnir yfir þol- mörk hvað varðar þjónustuna við börnin og búsetuúrræði. Áætlað er að 1-3 fylgdarlaus börn komi til landsins á tíu daga fresti næstu misseri og ríkir ákveðið neyðar- ástand. Sveitarfélagið hefur ítrekað komið því á framfæri við Mennta- og barnamálaráðuneytið að það geti ekki tekið við fleiri fylgdarlausum börnum að óbreyttu. Suðurnesjabær skorast ekki undan því að sinna verkefninu áfram og vill sinna því með hags- muni fylgdarlausra barna að leiðar- ljósi. Ríkið verður hins vegar að standa undir sinni ábyrgð í málinu með því að móta skýra stefnu og standa straum að kostnaði aukinna stöðugilda í barnavernd Suðurnesja- bæjar þannig að hægt sé að tryggja þá þjónustu sem ríkinu ber að veita. Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir með ráðherra um stöðu málaflokksins í samræmi við ofangreint.“ Mikilvægt að fylgja málunum eftir Magnús Stefánsson, bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fjölda fylgdar- lausra barna vera að aukast og að innviðir og þjónustugeta sveitar- félagsins sé komin yfir þolmörk, því þurfi að byggja gott samstarf milli ríkisins og sveitar- félagsins til að tryggja góðar mót- tökur fyrir börnin. „Þetta er orðið það viðamikið verkefni að það er mikil áskorun fyrir jafn litla fé- lagsþjónustu og er í Suðurnesjabæ að sinna þessum málum eins og vera ber. Við höfum verið að sækja á ríkið í von um aukinn stuðning. Fjármagn og stefnumótun sveitarfélagsins og ríkisins þarf að mæta því sem raun- verulega er í gangi,“ segir Magnús. Hann bætir við að það sé ekki nóg að taka á móti börnunum heldur þarf að fylgja máli hvers og eins eftir. „Það er ekki nóg að taka bara á móti þessum börnum, það verður að taka utan um þau og veita þeim þjónustu. Þetta eru börn sem eru að koma úr allskonar aðstæðum, jafn vel með áföll sem þau hafa upplifað. Því þarf að fylgja eftir í þágu hvers barns fyrir sig.“ En hver eru næstu skref? „Við höfum síðustu vikur verið í miklu sambandi við mennta- og barnamálaráðuneytið, sem heldur utan um málefni barna. Það hefur aðeins liðkast og ríkið er aðeins að koma til móts við okkur með því að leggja til fjármagn til að ráða fólk til starfa,“ segir Magnús og bætir við: „Næstu skref hjá mér eru að fylgja eftir bókun bæjarráðs. Ég er núna að fara í það og það er ýmislegt sem við þurfum að ræða við ríkið um þessi mál, almennt. Það er mín skoðun að í fyrsta lagi þurfum við að fá á hreint hver lögbundin skylda okkar er í þessu máli. Við erum með engu móti að skorast undan þessu verkefni, við erum eitt af örfáum sveitarfélögum sem býr að reynslu og þekkingu starfsfólks til að vinna að þessum málum og við viljum halda því áfram. Ég mun leita eftir þeirri niðurstöðu að gerður verði samningur milli sveitarfélagsins og ríkisins um þetta verkefni og að þetta verði gert með sóma. Að það verði tekið á móti börnunum, haldið utan um þau, hlúð að þeim, þeim veitt öryggi, fæði og heilbrigðisþjón- usta með sómasamlegum hætti. Við viljum gera þetta vel og því verður ríkið að standa með okkur í því og bera kostnað af þessu líka.“ M a r í a R ó s Skúladóttir, deild- arstjóri félags- þjónustu Suður- nesjabæjar, segir verkefnið snúast fyrst og fremst um hag barnanna e n m i k i l væ g t sé að kerfin tali saman í slíkum samfélagslegum verkefnum. „Við höfum byggt upp mikla sérfræði- þekkingu í málaflokknum og tökum þetta verkefni föstum tökum. Við erum jákvæð fyrir þessu, við leggjum mikla áherslu á að hlúa vel að börnunum þannig að þau upp- lifi öryggi og stöðugleika. Okkar ósk er að færa þjónustuna við þau nær og geta þannig veitt þeim enn betri þjónustu. Stór hluti barnanna hefur verið staðsettur á höfuðborgar- svæðinu að undanförnu og barna- vernd Suðurnesjabæjar þurft að veita þeim þjónustu þar. Það tekur tíma og krafta og með því að hafa börnin í búsetu í nærumhverfinu getum við sinnt okkar starfi mun betur. Það er algert lykilatriði að kerfin virki, það eru mjög margir sem koma að málum sem þessum. En kerfin þurfa að virka, þau þurfa að ná að tala saman, eins og megin- þemað er í öllum stærri verkefnum,“ segir hún. Mikil fjölgun fylgdarlausra barna sem koma til landsins Tuttugu og níu fylgdarlaus börn í umsjón Suðurnesjabæjar Thelma Hrund Hermannsdóttir thelma@vf.is María Rós Skúladóttir, deildarstjóri félagsþjónustu Suðurnesjabæjar Magnús Stefánsson, bæjarstjóri Suðurnesjabæjar HS Orka hefur hafið vinnu við stækkun orkuversins í Svartsengi. Í orkuverinu verður ein framleiðslu- eining sem mun koma í stað nokkurra eldri véla og búnaðar. Með að nýta gufu sem áður fór í eldri vélar eykst framleiðslugetan og viðhalds- og framleiðslukostnaður lækkar. Þá er gert ráð fyrir því að með stækkuninni verði hægt að ná betri nýtingu úr auðlindinni í Svartsengi í framtíðinni. Öll tilskilin leyfi hafa fengist fyrir stækkuninni og kom það í hlut Al- berts Albertssonar að taka fyrstu skóflustunguna ásamt verktök- unum. Albert er hugmyndasmiður Auðlindagarðsins sem hefur það markmið að draga úr sóun og full- nýta allt það sem fellur til við jarð- hitavinnslu fyrirtækisins. Þá hefur Albert komið að uppbyggingu allra hluta virkjunarinnar í Svartsengi. Framleiðsluaukningin í Svartsengi er fengin með betri nýtingu á núver- andi upptekt úr jarðhitageyminum og því við hæfi að Albert tæki fyrstu skóflustunguna. Eftir stækkun mun framleiðslugeta orkuversins í Svarts- engi verða 85 MW. HS Orka hefur tryggt 61,9 milljón dollara fjármögnun frá núverandi lánveitendum til verkefnisins. Þá munu hluthafar HS Orku leggja til viðbótarfjármögnun til að styðja við stækkunina. Fjármögnun verk- efnisins undirstrikar það traust sem bæði lánastofnanir og hluthafar hafa á fyrirtækinu og þau verkefni sem það vinnur að til að auka framboð raforku á Íslandi til að mæta þörfum markaðarins. „Við erum mjög spennt fyrir því að hefja stækkun á virkjuninni í Svarts- engi í beinu framhaldi af því að klára stækkun virkjunarinnar á Reykja- nesi. Bæði verkefnin ná vel utan um markmið HS Orku um að nýta sem best þær auðlindir sem okkur er treyst fyrir þar sem við erum að auka raforkuframleiðslu inná raf- orkukerfið án þess að fara inná ný svæði, sem dregur úr áhættu og kostnaði,“ segir Tómas Sigurðsson, forstjóri HS Orku. HS Orka var stofnuð 1974 og hefur verið leiðandi í framleiðslu endurnýjanlegrar orku alla tíð. Nýsköpun hefur alltaf verið hluti af kjarna fyrirtækisins sem sést best á Auðlindagarðinum, þar sem áherslan er á að nýta affalsstrauma frá virkjunum sem auðlind. HS Orka á og rekur tvær jarðvarmavirkjanir á Reykjanesi auk 9,9 MW rennslis- virkjunar í Biskupstungum. HS Orka eykur framleiðslugetu á Reykjanesi um 22 MW Það kom í hlut Alberts Albertssonar að taka fyrstu skóflustunguna ásamt verktökunum. Albert er hugmyndasmiður Auðlindagarðsins sem hefur það markmið að draga úr sóun og fullnýta allt það sem fellur til við jarðhitavinnslu fyrirtækisins. VF-myndir: Hilmar Bragi Tómas Sigurðsson, forstjóri HS Orku, Albert Albertsson, sem tók fyrstu skóflustunguna, og Sunna Björg Helgadóttir, framkvæmdastjóri tæknisviðs HS Orku. 2 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.