Víkurfréttir - 28.12.2022, Blaðsíða 8
Þorlákur Guðmundsson eða Láki
í Salthúsinu eins og Grindvíkingar
og aðrir þekkja hann best, er mat-
reiðslumaður og hefur rekið veit-
ingastað í Grindavík síðan árið
2005. Láki hafði eins og svo margir
grindvískir karlmenn, farið á sjóinn
og vann síðustu árin sem kokkur
en ákvað að söðla um árið 2005 og
hefur ekki litið til baka síðan:
„Ég byrjaði ungur á sjónum, vann
bæði sem messagutti og háseti en
eldamennskan togaði alltaf í mig
svo ég endaði sem kokkur síðustu
tuttugu árin á sjónum. Ég kunni vel
við það en þegar tækifæri gafst á að
fara út í veitingarekstur árið 2005
þá stökk ég á það. Gamli Hafur-
björninn sem Árni Björn Björnsson
rak við góðar undirtektir til fjölda
ára, hafði breyst í Cactus þegar
Hjálmar Erlingsson keypti staðinn
en þegar annar veitingastaður í
Grindavík, Sjávarperlan, var sett
á sölu þá ákvað Hjalli að færa sig
þangað og því gat ég keypt Cactus
og breytti nafninu í Lukku Láka.“
Sjávarperlan breyttist í Salthúsið
og nokkrum árum síðar bauðst Láka
að kaupa staðinn.
„Áramótin 2008/2009 keypti
ég Salthúsið og rak Lukka Láka
samhliða fyrsta árið en einbeitti
mér síðan bara að Salthúsinu. Auð-
vitað var og er um venjulegan opn-
unartíma veitingastaðar að ræða en
mest hefur verið að gera í kringum
hópa, þá aðallega ferðamanna-
hópa. Grindavík hefur vaxið sem
ferðamannastaður og hingað koma
margar rútur allan ársins hring,
fullar af ferðamönnum og þeir þurfa
að borða. Ég hef myndað góð tengsl
við fjölmarga ferðaleiðsögumenn og
þeir koma aftur og aftur.“
Árin á Lukku Láka og fyrstu árin
á Salthúsinu, gekk viðskiptamódelið
líka út á að halda böll.
„Til að byrja með varð ég bjóða
líka upp á dansleiki og má segja að
hljómsveit hafi spilað hjá mér að
lágmarki einu sinni í mánuði. Þegar
veitingareksturinn fór svo að vefja
upp á sig þá sá ég að það var erfitt að
samtvinna þetta, að vera með dans-
leik langt fram á sunnudagsmorgun
og með stóran hóp í hádeginu stuttu
síðar gekk eðlilega ekki upp. Þess
vegna dró ég úr því en er alltaf með
eitt og eitt ball við sérstök tilefni,
t.d. á sjómannahelginni og ég reyni
líka að halda tónleika reglulega og
þá helst blústónleika, ég elska þá
tónlist.“
Eitt hefur haldið velli nánast
undantekningarlaust síðan Láki hóf
reksturinn á Lukka Láka árið 2005,
grindvíska hljómsveitin Geimfar-
arnir hefur alltaf haldið árlegt jóla-
og áramótaball en þó hefur hljóm-
sveitin legið í dvala síðan 2018.
„Ég kynntist þessum góðu
drengjum strax á Lukku Láka ár-
unum en grindvískt samfélag hefur
alltaf verið svona, ef eitthvað grind-
vískt er í gangi þá mætir heimafólk.
Þeir byrjuðu hjá mér á Lukka Láka
en hafa svo verið hér í Salthúsinu
síðan. Þeir tók sér nú pásu 2018
en ég fékk þá til að dusta rykið af
hljóðfærunum og þeir ætla að trylla
Grindvíkinga og vonandi, aðra gesti
föstudagskvöldið 30. desember. Ég
heyri á meðal grindvískra ungmenna
að mikil stemning er fyrir þessu
balli en ég á líka von á því að gömlu
aðdáendurnir flykkist á Salthúsið
og úr verði ekta frábær, grindvísk
stemning,“ sagði Láki að lokum.
Á fundi bæjarstjórnar Grindavíkur 13. desember, var tekið fyrir erindi
frá Kölku sem barst öllum sveitarfélögunum á Suðurnesjum, varðandi
sorphirðumál en Kalka óskar eftir samþykki bæjarfélaganna þess
efnis að Kalka sjái um söfnun úrgangs frá heimilum vegna fjögurra
úrgangsflokka og sjái líka um fjármögnun söfnunarílátanna. Kalka
hefur sinnt heimilissorphirðu Grindvíkinga síðan 2018.
Ný lög taka gildi um áramótin og þá verður þess krafist að sorpi
verði safnað í fjóra úrgangsflokka, pappír og plast í sitthvora tunnuna
og söfnun á lífrænum úrgangi og almennu sorpu til brennslu í tvískiptri
þriðju tunnunni.
Fannar Jónasson, bæjarstjóri tjáði sig um málið á fundinum og benti
á að mikilvægt sé að hugsa þetta gaumgæfilega en við flest heimili er
gert ráð fyrir tveimur tunnum og nokkuð ljóst að þó nokkur fyrirhöfn
og kostnaður muni hljótast af því að hafa þrjár tunnur.
Fannar kom líka inn á að Sorpa sem sér um sorphirðumál á höfuð-
borgarsvæðinu, býður upp á tveggja tunnu lausn. Að mati Fannars er
mikilvægt að samræmi sé á milli sorphirðufyrirtækja og því var ákveðið
að fresta afgreiðslu málsins þar til frekari upplýsingar liggi fyrir. Bæj-
arráð hafði fjallað um málið en eftir þessar nýju upplýsingar um þrjár
tunnur var ákveðið að skoða þyrfti málið betur.
Sjókokkurinn sem fór út
í eigin veitingarekstur
Þrjár sorptunnur
í stað tveggja?
GRINDAVÍK
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
sigurbjorn@vf.is
Svona sorptunnuskýli eru algeng í Grindavík, eingöngu fyrir tvær tunnur.
Svona líta sorptunnur Sorpu út, tvær tvískiptar tunnur.
Þorlákur Guðmundsson,
eða Láki eins og hann
er oftast kallaður.
„Ég bara verð að kasta hrósi á mitt
fólk í björgunarsveitum landsins.
Ég er ekki viss um að allir geri
sér grein fyrir því hversu mikið
þetta fólk hefur lagt á sig síðustu
daga við að koma öðru fólki til
síns heima og láta tannhjól lífsins
snúast,“ skrifar Otti Sigmarsson,
formaður Slysavarnafélagsins
Landsbjargar, í færslu á fésbókina
nú um hátíðirnar. Og hann bætir
við: „Þetta á líka við um alla hina,
sem hafa lítið sem ekkert verið
heima hjá sér undanfarið. Þolin-
mæði, þrautseigja og samvinna
einkenna síðustu daga. Ef þið
þekkið einhvern sem hefur verið
úti að brasa síðustu daga þá væri
mjög gott að þakka viðkomandi
fyrir og jafnvel gefa honum knús.
Við erum öll mannleg en það er
einmitt hrósið og þakklætið sem er
drifkrafturinn í björgunarsveitar-
starfinu.
Björgunarsveitir Slysavarna-
félagsins Landsbjargar á Suður-
nesjum hafa átt annríkt frá því fyrsti
snjórinn féll nú fyrir jólin. Færðin
hefur verið þung á Suðurnesjum og
um tíma voru margir vegir ófærir. Þá
hefur ófærðin leikið Grindvíkinga
sérstaklega grátt en Grindavíkur-
vegur hefur verið ófær og innan-
bæjar í Grindavík hefur verið mikil
snjósöfnun.
Hrósið og þakklætið er drifkraftur-
inn í björgunarsveitarstarfinu
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurnesjum hafa átt annríkt frá
því fyrsti snjórinn féll nú fyrir jólin. Færðin hefur verið þung á Suðurnesjum og um tíma
voru margir vegir ófærir. Meðfylgjandi myndir eru teknar í ófærðinni á Grindavíkurvegi
þar sem Björgunarsveitin Þorbjörn og aðrar sveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar
hafa komið hundruðum til aðstoðar síðustu sólarhringa.
„Grindavík hefur vaxið sem ferðamannastaður og ferðamenn
þurfa að borða. Mikil stemmning fyrir Geimfaraballinu
30. desember,“ segir Láki á Salthúsinu.
Ný lög taka gildi um áramót varðandi sorphirðumál,
safnað í fjóra flokka. Þó nokkur fyrirhöfn og
kostnaður að hafa þrjár sorptunnur.
8 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM