Rökkur - 01.12.1930, Side 39

Rökkur - 01.12.1930, Side 39
R Ö K K U R 149 vera að eyða orku sinni í að verjast þeim. Nú vill lesandinn e. t. v. spyrja livort búnaðurinn erlend- is sé kominn það langt að þar sé fóðrað eftir bestu reglum sem þektar eru, en svo er ekki. Meira að segja í Danmörku, sem stendur framarlega með allan búnað, vantar mikið á að svo sé, þar eru kýrnar fóðraðar of jafnt, eins og þær séu bara kýr, en ekki tekið nægilegt tillit til hve misjafnlega mikið þær af- kasta. VII. Það skemtilegasta við búnað- inn og búnaðarframkvæmdirn- ar er það, að takmarkið er ó- endanlegt, „það flytur sig“, eins og merkur vísindamaður hefir komist að orði. Við getum t. d. sett okkur það takmark að hver einasta kýr á landinu mjólkaði 3500 lítra yf- ir árið, og eftir ötula baráttu mundum við geta náð því tak- marki, þar sem við eigum marga það góða stofna, og tak- markinu er hægt að ná með því að fjölga þeim góðu og eyða hinum lélegu, en því aðeins get- um við f jölgað þeim góðu að við vitum hvar þeir eru, og það vitum við aðeins ef við mælum og vegum. Þess vegna þurfum við að mæla þótt einstaklingur- inn sem mælt er úr mjólki ekki meira fyrir mælinguna eina, og því var svarið að vissu leyti rétt hjá bóndanum, sem getið er um að framan, en það sýnir þröng- sýni hans. En mundum við þegar því takmarki væri náð stansa allar kynbótaumbætur? Áreiðanlega ekki, við mundum setja markið hærra, „það flytur sig“. Æskilegt væri t. d., að geta fengið eina kú sem svarar handa einu heimili. Heimili sem þarfn- ast 4000 lítra á ári fengi kú sem mjólkaði það mikið yfir árið, og heimili sem þarfnast 10000 lítra yfir árið, fengi kú, sem mjólk- aði það mikið. vhi. Að verkaskiftingin innan búnaðarins eykst stöðugt, er, eins og þegar er sagt, eðlileg af- leiðing aukinnar þekkingar. Þegar komast á langt á einu sviði, og kynnast því til lilýtar, er vart hægt að hafa fíeirá í takinu svo vel fari. Þess vegna klofna fleiri og fleiri af grein- um landbúnaðarins út sem sér- stæðar atvinnugreinar eftir því sem hann þróast. Mætti þar fyrst nefna byggingarlistina sem snemma verður sjálfstæð, þá vefnaðariðnaður og fleiri iðngreinir, sem hafa heyrt bún- aðinum til, en eru nú sérstæðar

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.