Fréttablaðið - 15.02.2023, Qupperneq 2
Hér verður komið
upp ófremdarástand.
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri SA
Um er að ræða áttunda
Bretann sem hefur
látist í stríðinu.
Enginn er verri þótt hann vökni
Ný árkvísl myndaðist í Elliðaám og rann yfir göngu- og hjólastígana sem renna þvert yfir dalinn í átt að Elliðarárstöðinni. Útivistarfólk á svæðinu lét ekki
blauta sokka skemma göngutúrinn sinn. Fréttablaðið/ErNir
Aðalfundur
ÍSTEX hf. verður haldinn á Hótel Natura
Reykjavík í tengslum við Búgreinaþing 2023
fimmtudaginn 23. febrúar 2023, kl. 16:00
Dagskrá
1. Almenn aðalfundarstörf samkvæmt 15. grein samþykkta félagsins.
2. Heimild aðalfundar fyrir félagsstjórn að lækka hlutafé og til kaupa á
eigin hlutabréfum.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Ársreikningur er til sýnis á skrifstofu Ístex í Mosfellsbæ og er sendur
hverjum þeim hluthafa sem þess óskar. Hægt verður að skrá sig á
istex.hf@istex.is eða í 566 6300 til að fylgjast með fundinum rafrænt.
Umboðsmenn þurfa að leggja fram dagsett og skriflegt umboð.
Aðgöngumiðar, fundargögn og hlekkur á fundinn verða afhent eftir
skráningu á fundardag.
Mosfellsbæ, febrúar 2023.
Stjórn ÍSTEX hf.
Halldór Benjamín Þorbergs-
son, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, úti-
lokar samninga við Eflingu á
öðrum grunni en við önnur
stéttarfélög. Hann segir sam-
félagið lamast vegna verkfalla.
gar@frettabladid.is
kjaramál „Ég sé fyrir mér að verk-
föll muni lama íslenskt samfélag að
öllu leyti fyrir eða eftir helgi,“ segir
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, um afleiðingar verkfalls félags-
manna Eflingar sem hefst í dag.
Verkfall tuga bílstjóra, sem eru
félagsmenn í Eflingu og annast akstur
olíuflutningabíla á starfssvæði félags-
ins, hefst á hádegi í dag. Þá hefst verk-
fall hundruð hótelstarfsmanna til
viðbótar við þá sem þegar eru í verk-
falli hjá Íslandshótelum.
„Hér verður komið upp ófremdar-
ástand sem mun snerta alla Íslend-
inga með beinum hætti, annars vegar
í gegnum verkfall Olíudreifingar og
hins vegar vegna afleiddra áhrifa þess
á samfélagið,“ segir Halldór Benja-
mín. „Samgöngur lamast og rekstur
fyrirtækja lamast. Þúsundir ferða-
langa verða á vergangi og geta ekki
innritað sig á hótel og þar fram eftir
götunum.“
Ástráður Haraldsson héraðsdóm-
ari, sem skipaður hefur verið ríkis-
sáttasemjari í stað Aðalsteins Leifs-
sonar í deilu Samtaka atvinnulífsins
og Eflingar, boðaði í gær samninga-
nefndir aðilanna á fund klukkan níu
fyrir hádegi í dag.
Ekki náðist í Sólveigu Önnu Jóns-
dóttur, formann Eflingar, í gærkvöldi
en í færslu á Facebook lýsti hún
ánægju með Ástráð Haraldsson sem
sáttasemjara.
„Ég trúi því að skipun nýs sátta-
semjara geti orðið upphaf að nýjum
og betri kafla í þessari löngu kjara-
deilu, sem hefur snúist upp í að verða
deila ekki bara um kaup og kjör held-
ur um sjálfan samningsréttinn, okkar
heilagasta rétt,“ skrifaði Sólveig Anna.
„Ég geri ráð fyrir að ríkissátta-
semjari muni fara yfir stöðu mála
með samningsaðilum og setja sig inn
í deiluna. Og væntanlega verða sam-
töl á milli samninganefndanna líka,“
svarar Halldór Benjamín spurður við
hverju hann búist. Engar þreifingar
hafi verið milli aðila undanfarna
daga. Hann minnir á að fulltrúar
Eflingar hafi ekki mætt á boðaðan
fund á þriðjudaginn í síðustu viku.
Trúnaður Samtaka atvinnu-
lífsins liggur gagnvart níutíu pró-
sent íslensks vinnumarkaðar sem
þegar hefur undirritað samninga
við Samtök atvinnulífsins og við
getum ekki brugðist trúnaði þeirra
einstaklinga,“ svarar Halldór Benja-
mín spurður hvort SA sæi fyrir sér að
teygja sig lengra til að koma til móts
við kröfur Eflingar og forða þannig
því ástandi sem hann sér fyrir.
„Við höfum gengið frá sams konar
kjarasamningum við allan almenna
vinnumarkaðinn. Ef við myndum
lita út fyrir þær línur myndi það
hafa áhrif á alla kjarasaminga sem
búið er að undirrita og það þyrfti að
endurskoða þá frá grunni,“ heldur
Halldór Benjamín áfram. Það muni
gerast jafnvel þótt ekki sé ákvæði
um slíkt í þegar gerðum samning-
um. „Ef menn þekkja sögu íslensks
vinnumarkaðar þá er það með þeim
hætti.“ n
Semja ekki við Eflingu um
annað en nú þegar er boðið
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Halldór Benjamín Þorbergs-
son, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Fréttrablaðið/aNtoN briNk
ser@frettabladid.is
NEYTENDUr Kostnaður heimila
vegna dreifingar á rafmagni á árun-
um 2018 til 2023 hækkaði um allt
að þriðjung, að því er fram kemur í
nýrri samantekt Alþýðusambands
Íslands.
Mesta hækkunin var hjá HS veit-
um á umræddu tímabili, ríf 32 pró-
sent, en minnst hjá RARIK í dreif-
býli, 10 prósent.
Kostnaður heimila vegna f lutn-
ings og dreifingu raforku er mis-
jafn milli landshluta, lægstur hjá
Veitum, 50.282 krónur á ári miðað
við meðalnotkun, en 86 prósentum
hærri hjá Orkubúi Vestfjarða í dreif-
býli þar sem hann er hæstur, 93.489
krónur. n
Mikill munur á rafmagnsverði heimila
Lægstur raf-
magnskostnað-
ur er hjá Veitum.
Fréttablaðið/
ErNir
benediktarnar@frettabladid.is
ÚkraíNa Breskur ríkisborgari lést
í Úkraínu í átökum við rússneskar
hersveitir. Þetta staðfestir utanríkis-
ráðuneyti Bretlands.
Í tilkynningu frá utanríkisráðu-
neytinu kemur fram að fjölskyldu
hins látna verði veittur tilheyrandi
stuðningur.
Ekki hafa verið veittar nánari upp-
lýsingar um andlát Bretans, en þetta
er áttunda manneskjan frá Bretlandi
sem hefur látið lífið á vígvellinum
síðan innrás Rússa í Úkraínu hófst.
Í janúar létust bresku ríkisborgar-
arnir Andrew Bagshaw og Christop-
her Parry í Austur Úkraínu á meðan
þeir reyndu að aðstoða fólk að flýja
stríðið. n
Breti í Úkraínu
lést á vígvellinum
Átökin halda áfram. Fréttablaðið/GEtty
2 fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 15. FeBRúAR 2023
MiÐViKUDAGUr