Fréttablaðið - 15.02.2023, Qupperneq 4
Stuttmyndasamkeppn-
in Sexan var hluti
af viku Sex, þar sem
áhersla er á kynfræðslu
í grunnskólum.
Fólk horfir á stöðug-
leikann og fólk horfir á
vextina.
Jón Steindór
Valdimarsson,
formaður Evr
ópuhreyfingar
innar.
Stuðningur við íslensku
krónuna er innan við 40 pró
sent samkvæmt nýrri könnun
Prósents fyrir Fréttablaðið.
Stuðningur við evru er 52,2
prósent.
kristinnhaukur@frettabladid.is
efnahagsmál Meirihluti lands
manna vill taka upp evru sem
gjaldmiðil á Íslandi samkvæmt
nýrri könnun Prósents fyrir Frétta
blaðið. 52,2 prósent þeirra sem tóku
afstöðu segjast vilja taka upp evru
en aðeins 39,6 prósent vilja halda
krónunni. Stuðningur við aðra
gjaldmiðla er mjög lítill. 6,3 prósent
vilja taka upp Bandaríkjadollar, 0,3
prósent breskt pund og 1,6 prósent
einhvern annan gjaldmiðil.
Jón Steindór Valdimarsson, for
maður Evrópuhreyfingarinnar,
segir að þessar niðurstöður komi
sér ekki á óvart. Þær rími vel við þá
almennu viðhorfsbreytingu sem er
að eiga sér stað á Íslandi í Evrópu
málum.
„Almenningur er farinn að efast
um að þetta fyrirkomulag með
krónuna sé það besta,“ segir Jón
Steindór. „Ástæðurnar eru margar.
Fólk horfir á stöðugleikann og fólk
horfir á vextina.“ Hafi stýrivextir
hækkað mörgum sinnum í röð og
það virðist ekkert lát vera á. Gríðar
legur kostnaður fylgi vaxtamun
inum milli krónunnar og evrunnar,
fyrir ríki, sveitarfélög og heimilin í
landinu.
Aðspurður um hvort hægt sé að
taka upp evru án þess að ganga í
Evrópusambandið segir Jón Stein
dór að sennilega sé það möguleiki.
„En ég tel að það sé ákaflega óskyn
samlegt. Eina leiðin til þess að gera
þetta almennilega er að ganga í Evr
ópusambandið,“ segir hann.
Kjósendur Viðreisnar eru hrifn
astir af því að taka upp evruna, eða
84 prósent, á meðan aðeins 11 pró
sent vilja halda krónunni. 79 pró
sent Samfylkingarfólks vill taka
upp evruna, 77 prósent Pírata, 62
prósent Sósíalista, 58 prósent kjós
enda Flokks fólksins, 41 prósent
Vinstri grænna, 31 prósent Mið
f lokksmanna, 29 prósent Fram
sóknarmanna og 26 prósent Sjálf
stæðismanna.
Stuðningur við íslensku krónuna
er mestur innan Miðflokksins, eða
64 prósent, en þar á eftir koma Sjálf
stæðismenn og Framsóknarmenn
með 61 og 60 prósent.
Sjálfstæðismenn eru hrifnastir
af Bandaríkjadollar, þó vilja aðeins
12 prósent þeirra taka gjaldmiðil
inn upp hér. Það sama á við um 10
prósent Framsóknarmanna og 7
prósent kjósenda Flokks fólksins.
Stuðningur við breska pundið er
mestur hjá Flokki fólksins, 2 pró
sent.
Munurinn á milli höfuðborgar
svæðisins og landsbyggðarinnar
mælist nánast enginn, ögn meiri
stuðningur er við upptöku evru á
höfuðborgarsvæðinu. Hins vegar
mælist nokkur munur á kynjum,
aldurshópum og tekjuhópum.
Hjá konum er nokkurn veginn
jafnt hlutfall sem vill taka upp evru
og halda krónunni. 55 prósent karla
vilja hins vegar taka upp evru en
aðeins 34 halda krónunni. Þrefalt
fleiri karlar vilja taka upp dollar en
konur, 9 prósent á móti 3.
Aldurshópurinn 55 til 64 ára er
hrifnastur af evru, 63 prósent, en
yngsta fólkið, undir 25 ára, síst,
það er 29 prósent. Þegar kemur að
tekjuhópum er stuðningurinn fyrir
upptöku evru mestur hjá þeim sem
hafa 800 þúsund krónur eða meira
í mánaðartekjur, 62 prósent, en 43
prósent hjá þeim sem hafa 400 þús
und eða minna.
Könnunin var netkönnun, fram
kvæmd 27. janúar til 6. febrúar.
Úrtakið var 2.400 og svarhlutfallið
51,4 prósent. n
Rúmur helmingur vill taka upp evru
Ágæti íslensku krónunnar hefur verið umdeilt mál á undanförnum áratugum.
Fréttablaðið/Ernir
?
Já, evru
Já, dollara
Já, pund
Já, annan
gjaldmiðil
nei
52,2%
6,3%
0,3%
1,6%
39,6%
Vilt þú taka upp annan gjaldmiðil og þá hvern?
kristinnhaukur@frettabladid.is
stjórnmál Drífa Lýðsdóttir, for
maður Ungra Vinstri grænna
(UVG), segir að f lokkurinn sé að
greiða of hátt verð fyrir stjórnar
samstarfið og forsætisráðherrastól
inn, en eins og Fréttablaðið greindi
frá í gær mælist f lokkurinn aðeins
með 5,9 prósent í nýrri könnun
Prósents. Vinstri grænum sé kennt
um öll umdeild mál. „Þetta er mjög
erfið staða. Ef eitthvað slæmt gerist
í samfélaginu bitnar það alltaf á
VG,“ segir Drífa.
Samkvæmt könnuninni styðja
aðeins 4 prósent fólks undir 25 ára
Vinstri græn. Aðspurð um nýliðun
í UVG segir Drífa að ný fram
kvæmdastjórn hafi verið kosin í
haust en ekki hafi tekist að manna
allar stöður. Fjögur séu í stjórninni,
öll nýbyrjuð.
Drífa segir að ríkisstjórnarsam
starfið sé að reynast f lokknum
dýrkeypt. „Við hjá UVG höfum
aldrei verið hlynnt þessu ríkis
stjórnarsamstarfi. Það er eins og
r ík isstjórnarsamstar f ið sk ipti
meira máli en annað,“ segir hún.
Málið sé þó ekki svart og hvítt og
Vinstri græn geti ekki komið sínum
málum að nema í stjórn. Einnig
hafi forystunni ekki tekist að koma
sínum sjónarmiðum nægilega vel
til almennings.
Í ljósi þess að fylgi flokksins hjá
lágtekjufólki mælist aðeins 2 prósent
tekur hún undir það að umhverfis
málin hafi fengið sviðið hjá flokkn
um á kostnað hefðbundinna vinstri
málefna, svo sem kjaramála.
„Við erum ekki sammála gjörðum
flokksins í einu og öllu,“ segir Drífa.
Meðal annars hafi UVG barist gegn
brottvísunum hælisleitenda. Hún
segir UVG muni sýna forystunni
aðhald. n
Vinstri græn greiði of mikið fyrir forsætisráðherrastólinn
Drífa Lýðsdóttir,
formaður UVG.
benediktboas@frettabladid.is
samfélag Sjöundi bekkur Selás
skóla sigraði stuttmyndasamkeppn
ina Sexuna sem haldin var í fyrsta
sinn í ár.
Myndin fjallar um hvernig tæling
birtist ungmennum sem eru að feta
sín fyrstu skref á stafrænum miðl
um en ungmenni mega byrja að
nota samfélagsmiðla 13 ára gömul.
Í tengslum við keppnina fengu
nemendur fræðslu um hvernig
stafrænt of beldi birtist ungu fólki
og áttu svo að búa til stuttmynd
um eitt af fjórum viðfangsefnum:
Tælingu, samþykki, slagsmál eða
nektarmynd en þátttaka fór fram
úr björtustu vonum, segir í tilkynn
ingu. n
Selásskóli með
vinningsmyndina
Vinningsmyndin bar heitið „Friend
Request“. Mynd/aðsEnd
Sjálfvirkur
opnunarbúnaður og
snertilausir rofar frá
Þýsk gæðavara.
Snertilausir rofar
Skútuvogi 1h - Sími 585 8900
www.jarngler.is
benediktarnar@frettabladid.is
Björgunarstörf Ís lenski hópur
inn sem tók þátt í björgunar að
gerðum á Anta kyasvæðinu eftir
jarð skjálftann í Tyrk landi sneri aftur
heim til Ís lands í gær.
Björn J. Gunnars son, einn af hóp
stjórum ís lenska hópsins, sagði
að mark mið hópsins hafi verið að
koma að góðum notum. Hann hrós
aði tyrk neskum al manna vörnum
á þessum gríðar lega erfiða tíma.
„Það er náttúrlega fólk með ættingja
grafið undir húsum alls staðar,“ sagði
Björn í Skógarhlíðinni í gær.
„Til finningin var að við værum
komin til að vinna á kveðið verk
efni, í krafti mjög góðs sam starfs
við utan ríkis ráðu neytið, Land
helgis gæslu Ís lands og Icelandair,
þá komumst við þarna niður eftir,“
sagði Björn.
Segir Tyrki standa sig gríðarlega vel
„Tyrkir hafa gríðar lega sterkt
al manna varna kerfi. Þeirra rústa
björgunar sveitir eru mjög góðar. En
þetta voru svo of boðs lega stór svæði
og miklar ham farir að flestar er lendu
björgunar sveitirnar eru sendar inn
á þetta svæði sem við vorum á,
Hatayhérað. Þess vegna voru svona
margar sveitir þar sem þurftu að
vinna saman. Tyrk nesku sveitirnar
voru að standa sig gríðar lega vel í
því sem þeir voru að gera, eins og að
flytja mat og vistir og allt sem þurfti
að gera á svæðinu,“ sagði Björn. n
Björn J.
Gunnars son,
einn af hóp
stjórum ís lenska
hópsins.
Fréttablaðið/
sigtryggur ari
4 fRéTTiR FRÉTTABLAÐIÐ 15. FeBRúAR 2023
MiÐViKUDAGUR