Fréttablaðið - 15.02.2023, Blaðsíða 15
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
MIÐVIKUDAGUR 15. febrúar 2023
Vildís Edwinsdóttir er að gera garðinn frægan víða en segir sitt mesta afrek vera að hafa komist í landslið snjóbretta á Íslandi. MYND/DANIEL BERNIE BERNSTÅL
Best er að nota hitaðan hníf til að
skera kökuna. FRéTTABLAðIð/gETTY
jme@frettabladid.is
Þessi bakaða og nær brennda
ostakaka frá Baskalandi í vestan-
verðum Pýreneafjöllum er bæði
gómsæt og einföld að gerð.
Brennd Baskaostakaka
680 g rjómaostur við stofuhita
200 g sykur
¼ tsk. salt
2 tsk. vanillu extrakt
4 stór egg
2 msk. hveiti
3,5 dl rjómi
Rjómaostur, salt, sykur og van-
illa sett í hrærivél og blandað á
miðlungshraða með hrærara, ekki
þeytt. Bættu við einu eggi í einu og
skafðu á milli með sleikju. Sigtaðu
hveitið út í og hrærðu. Minnkaðu
hraðann og helltu rjóma hægt út í
og blandaðu í um 30 sekúndur, uns
deigið er vel blandað (ekki óttast
hvað það er þunnt).
Útbúðu 22 cm (eða hér um bil)
springform, lokaðu því. Þjapp-
aðu bökunarpappírsörkum út í
hornin og brjóttu saman upp eftir
forminu uns pappírinn þekur
innra borð formsins. Helltu deig-
inu í formið og skelltu því í borðið
til að losa loftbólur. Bakaðu við 200
°C (án blásturs) í 45-60 mínútur
eða uns ostakakan skelfur enn smá
í miðjunni þegar hún er hrist og er
dökkbrún að ofan. Láttu kökuna
kólna við stofuhita áður en hún er
kæld í forminu í ísskáp í minnst
fimm klst. áður en hennar er neytt.
Kakan fellur við kólnun. n
Bökuð og brennd
Hættuleg trikk en
samt bara gaman
Snjóbrettastelpan Vildís
Edwins segir nær óhjá-
kvæmilegt að slasa sig í
snjóbrettasporti og hefur
sjálf brotið í sér nokkur
bein. Hún stefnir ótrauð
á Vetrarólympíuleikana á
Ítalíu 2026. 2
Austurmörk 21 • 810 Hveragerði
Hornsteinn
60 ára afmælissýning
11/02 – 20/08 2023
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is