Fréttablaðið - 15.02.2023, Síða 17
Ég mæli með Digest
fyrir alla sem vilja
hjálpa meltingunni og
sérstaklega þá sem finna
fyrir magaónotum eftir
máltíðir og vilja koma í
veg fyrir þau.
Lína Birgitta
Digest meltingar-
ensímin hafa
breytt lífi mínu til hins
betra.
Lína Birgitta
Vegan Health
Sérstaklega samsett bætiefnablanda fyrir þá sem eiga erfitt með að
taka upp B12 og járn úr fæðunni og þá sem neyta ekki dýraafurða.
Valið BESTA NÝJA BÆTIEFNIÐ á Natural & Organics í London 2019
Hámarksupptaka tryggð þegar úðað er út í kinn.
Hröð og mikil upptaka.
Betra og öruggara en töflur eða hylki.
Pakkningar gerðar úr endurunnu plasti úr sjónum
48 skammtar
• Vegan D3 • B12 • Járn & Joð
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
Lína Birgitta hefur verið að
notast við meltingarensímin
frá Enzymedica í mörg ár
með frábærum árangri og
segir þau hafa breytt lífi sínu
til hins betra.
Ensím taka þátt í hverju einasta
efnafræðilega ferli sem á sér stað
í líkamanum, meðal annars að
hámarka upptöku næringarefna í
líkamanum ásamt því að hjálpa til
við að breyta fæðu í orku. Líkam
inn framleiðir meltingarensím
sjálfur en margt getur orðið til þess
að hann framleiði ekki nægilega
mikið.
Afleiðingar vegna skorts á
meltingarensímum geta verið afar
víðtæk og hugsanlega finnum
við fyrir öðrum einkennum en
ónotum í meltingu. Sumir hverjir
verða varir við húðvandamál,
eymsli í liðum og jafnvel andleg
heilsuvandamál.
Ensím í bætiefnaformi eru
einstakur kostur og hafa það að
markmiði að koma í veg fyrir skort
ásamt því að draga úr einkennum
ef skortur gerir vart við sig. Að auki
hafa ensím í formi bætiefna reynst
afar vel fyrir þá sem glíma við
hvers konar fæðuóþol. Að taka inn
meltingarensím getur haft marg
vísleg jákvæð áhrif á líkamsstarf
semina umfram bætta meltingu.
Byrjaði að taka Digest Basic og þá
var ekki aftur snúið
Lína Birgitta, 32 ára áhrifavaldur
og eigandi Define The Line fata
línunnar, hefur tekið inn Digest
meltingarensímin í nokkur ár
og segir þau hafa breytt lífi sínu.
Lína Birgitta hefur verið að taka
inn Digest Basic, sem er fyrir væg
meltingarvandamál og hefur það
reynst henni gríðarlega vel. Vegna
magakvilla sem Lína Birgitta
hefur glímt við í gegnum tíðina
segist hún hafa verið opin fyrir því
að prófa alls kyns bætiefni fyrir
meltinguna en það var ekki fyrr en
hún prófaði Digest Basic sem hún
byrjaði að finna fyrir alvöru mun.
„Ég kynntist Digest vörunum
fyrir um fimm árum síðan, gat
ekki annað en prófað þær og eftir
það var ekki aftur snúið. Ég fann
strax mikinn mun á mér og finn
aðallega fyrir því að ég verð léttari
í maganum eftir máltíðir. Ég finn
ekki lengur fyrir uppþembu og
líður almennt mun betur. Það
skiptir mig ótrúlega miklu máli.
Þegar ég veit að ég mun borða
glúten hef ég einnig tekið inn
Digest Spectrum, en það er sér
staklega hannað fyrir þá sem eru
með fæðuóþol. Ég er með glúten
óþol og Digest Spectrum gerir það
að verkum að ég höndla það mun
betur, sem er frábær kostur,‘‘ segir
Lína Birgitta um góð áhrif Digest
meltingarensímanna.
Náttúruleg ensím án aukaefna
Digest meltingarensímin eru mest
seldu ensímin á bandarískum
markaði. Þau eru 100 prósent nátt
úruleg og án allra aukaefna. Ens
ímin eru sérstaklega hönnuð með
það að markmiði að draga úr eða
jafnvel koma í veg fyrir einkenni í
kjölfar skorts á ensímum.
Digest meltingarensímin eru
einkaleyfisvarin með aðferð sem
kallast Therablend. Hún blandar
saman mörgum stofnum ensíma
sem vinna á mismunandi pH
gildum en þannig ná þau að melta
hvert orkuefni mun betur og
hraðar. Therablendaðferðin skilar
5 til 20 sinnum öflugri ensímum
og vinna þau um það bil þrisvar til
sex sinnum hraðar en sambærileg
meltingarensím á markaði. Digest
vörulínan er að jafnaði góð fyrir
alla sem vilja bæta meltingu sína.
Lína Birgitta mælir með Digest
meltingarensímum fyrir alla.
Mælt er með því að taka eina töflu
fyrir eða með máltíð, en hins vegar
getur það verið breytilegt eftir
hverjum og einum einstaklingi.
Sumum nægir að taka ensím ein
ungis þegar um ákveðnar máltíðir
er að ræða, svo sem kjöt, pasta,
mjólkurvörur eða aðrar þungar
máltíðir. Aðrir þurfa að taka ensím
Hugum að góðri
meltingu með Digest
meltingarensímum
með eða fyrir hverja máltíð til að
finna árangur.
„Ég tek ensímin rétt fyrir máltíð
eða strax á eftir ef ég gleymi að
innbyrða þau. Persónulega elska ég
að taka hylkin með kvöldmatnum
þar sem sú máltíð er aðeins þyngri
en í hádeginu. Ég mæli með Digest
fyrir alla sem vilja hjálpa melting
unni og sérstaklega þá sem finna
fyrir magaónotum eftir máltíðir
og vilja koma í veg fyrir þau. Mín
reynsla af Digest er frábær, og ég
mæli mikið með því,“ segir Lína
Birgitta og bætir við að Digest vör
urnar séu eitthvað sem hún mælir
með fyrir alla að eiga til taks heima
hjá sér. n
Lína Birgitta
hefur notað
Digest melt-
ingarensím með
góðum árangri.
Hún finnur ekki
lengur fyrir
uppþembu og
höndlar glú-
tenóþol mun
betur.
MYND/AÐSEND
ALLT kynningarblað 3MIÐVIKUDAGUR 15. febrúar 2023