Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.02.2023, Qupperneq 17

Fréttablaðið - 15.02.2023, Qupperneq 17
Ég mæli með Digest fyrir alla sem vilja hjálpa meltingunni og sérstaklega þá sem finna fyrir magaónotum eftir máltíðir og vilja koma í veg fyrir þau. Lína Birgitta Digest meltingar- ensímin hafa breytt lífi mínu til hins betra. Lína Birgitta Vegan Health Sérstaklega samsett bætiefnablanda fyrir þá sem eiga erfitt með að taka upp B12 og járn úr fæðunni og þá sem neyta ekki dýraafurða. Valið BESTA NÝJA BÆTIEFNIÐ á Natural & Organics í London 2019 Hámarksupptaka tryggð þegar úðað er út í kinn. Hröð og mikil upptaka. Betra og öruggara en töflur eða hylki. Pakkningar gerðar úr endurunnu plasti úr sjónum 48 skammtar • Vegan D3 • B12 • Járn & Joð Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna Lína Birgitta hefur verið að notast við meltingarensímin frá Enzymedica í mörg ár með frábærum árangri og segir þau hafa breytt lífi sínu til hins betra. Ensím taka þátt í hverju einasta efnafræðilega ferli sem á sér stað í líkamanum, meðal annars að hámarka upptöku næringarefna í líkamanum ásamt því að hjálpa til við að breyta fæðu í orku. Líkam­ inn framleiðir meltingarensím sjálfur en margt getur orðið til þess að hann framleiði ekki nægilega mikið. Afleiðingar vegna skorts á meltingarensímum geta verið afar víðtæk og hugsanlega finnum við fyrir öðrum einkennum en ónotum í meltingu. Sumir hverjir verða varir við húðvandamál, eymsli í liðum og jafnvel andleg heilsuvandamál. Ensím í bætiefnaformi eru einstakur kostur og hafa það að markmiði að koma í veg fyrir skort ásamt því að draga úr einkennum ef skortur gerir vart við sig. Að auki hafa ensím í formi bætiefna reynst afar vel fyrir þá sem glíma við hvers konar fæðuóþol. Að taka inn meltingarensím getur haft marg­ vísleg jákvæð áhrif á líkamsstarf­ semina umfram bætta meltingu. Byrjaði að taka Digest Basic og þá var ekki aftur snúið Lína Birgitta, 32 ára áhrifavaldur og eigandi Define The Line fata­ línunnar, hefur tekið inn Digest meltingarensímin í nokkur ár og segir þau hafa breytt lífi sínu. Lína Birgitta hefur verið að taka inn Digest Basic, sem er fyrir væg meltingarvandamál og hefur það reynst henni gríðarlega vel. Vegna magakvilla sem Lína Birgitta hefur glímt við í gegnum tíðina segist hún hafa verið opin fyrir því að prófa alls kyns bætiefni fyrir meltinguna en það var ekki fyrr en hún prófaði Digest Basic sem hún byrjaði að finna fyrir alvöru mun. „Ég kynntist Digest vörunum fyrir um fimm árum síðan, gat ekki annað en prófað þær og eftir það var ekki aftur snúið. Ég fann strax mikinn mun á mér og finn aðallega fyrir því að ég verð léttari í maganum eftir máltíðir. Ég finn ekki lengur fyrir uppþembu og líður almennt mun betur. Það skiptir mig ótrúlega miklu máli. Þegar ég veit að ég mun borða glúten hef ég einnig tekið inn Digest Spectrum, en það er sér­ staklega hannað fyrir þá sem eru með fæðuóþol. Ég er með glúten­ óþol og Digest Spectrum gerir það að verkum að ég höndla það mun betur, sem er frábær kostur,‘‘ segir Lína Birgitta um góð áhrif Digest meltingarensímanna. Náttúruleg ensím án aukaefna Digest meltingarensímin eru mest seldu ensímin á bandarískum markaði. Þau eru 100 prósent nátt­ úruleg og án allra aukaefna. Ens­ ímin eru sérstaklega hönnuð með það að markmiði að draga úr eða jafnvel koma í veg fyrir einkenni í kjölfar skorts á ensímum. Digest meltingarensímin eru einkaleyfisvarin með aðferð sem kallast Therablend. Hún blandar saman mörgum stofnum ensíma sem vinna á mismunandi pH­ gildum en þannig ná þau að melta hvert orkuefni mun betur og hraðar. Therablend­aðferðin skilar 5 til 20 sinnum öflugri ensímum og vinna þau um það bil þrisvar til sex sinnum hraðar en sambærileg meltingarensím á markaði. Digest vörulínan er að jafnaði góð fyrir alla sem vilja bæta meltingu sína. Lína Birgitta mælir með Digest meltingarensímum fyrir alla. Mælt er með því að taka eina töflu fyrir eða með máltíð, en hins vegar getur það verið breytilegt eftir hverjum og einum einstaklingi. Sumum nægir að taka ensím ein­ ungis þegar um ákveðnar máltíðir er að ræða, svo sem kjöt, pasta, mjólkurvörur eða aðrar þungar máltíðir. Aðrir þurfa að taka ensím Hugum að góðri meltingu með Digest meltingarensímum með eða fyrir hverja máltíð til að finna árangur. „Ég tek ensímin rétt fyrir máltíð eða strax á eftir ef ég gleymi að innbyrða þau. Persónulega elska ég að taka hylkin með kvöldmatnum þar sem sú máltíð er aðeins þyngri en í hádeginu. Ég mæli með Digest fyrir alla sem vilja hjálpa melting­ unni og sérstaklega þá sem finna fyrir magaónotum eftir máltíðir og vilja koma í veg fyrir þau. Mín reynsla af Digest er frábær, og ég mæli mikið með því,“ segir Lína Birgitta og bætir við að Digest vör­ urnar séu eitthvað sem hún mælir með fyrir alla að eiga til taks heima hjá sér. n Lína Birgitta hefur notað Digest melt- ingarensím með góðum árangri. Hún finnur ekki lengur fyrir uppþembu og höndlar glú- tenóþol mun betur. MYND/AÐSEND ALLT kynningarblað 3MIÐVIKUDAGUR 15. febrúar 2023

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.