Fréttablaðið - 15.02.2023, Qupperneq 22
Vanda Sigurgeirsdóttir,
núverandi formaður
KSÍ, er fyrsta konan í
sögu sambandsins til
þess að gegna embætt-
inu.
aron@frettabladid.is
Fótbolti Sjálfkjörið verður í þau
sæti stjórnar Knattspyrnusam-
bands Íslands sem kjósa átti í á 77.
ársþingi sambandsins sem fer fram
á Ísafirði þann 25. febrúar næst-
komandi. Frá þessu hefur samband-
ið greint í tilkynningu á vef sínum.
„Alls bárust fjögur framboð í
stjórn (fjögur sæti) og eru þau Hall-
dór Breiðfjörð Jóhannsson, Helga
Helgadóttir, Tinna Hrund Hlyns-
dóttir og Unnar Stefán Sigurðsson
því sjálfkjörin,“ segir í tilkynningu
KSÍ en frestur til að skila inn fram-
boðum rann út á miðnætti þann 11.
febrúar síðastliðinn.
Tvö þeirra framangreindu, Helga
og Unnar Stefán, eiga nú þegar sæti
í stjórn KSÍ en Halldór og Tinna
Hrund myndu taka skrefið upp frá
varastjórn til aðalstjórnar.
Ekkert framboð hefur borist í
varastjórn sambandsins en kjósa á
í þrjú sæti þar. Sökum þessa hefur
framboðsfrestur til varastjórnar
verið framlengdur til miðviku-
dagsins 15. febrúar næstkomandi.
KSÍ setti af stað, fyrir ekki svo
löngu síðan, átaksverkefnið „Konur
í fótbolta“ þar sem leitast var við að
hvetja til og efla þátttöku kvenna á
öllum stigum knattspyrnunnar.
Í aðdraganda ársþingsins hvetur
stjórn KSÍ aðildarfélög sín því til
þess að huga vel og vandlega að
kynjaskiptingu við val á þingfull-
trúum en á ársþingi sambandsins í
fyrra var þar aðeins að finna þrjátíu
kvenkyns þingfulltrúa af 149. Því
voru aðeins 20% þingfulltrúa á árs-
þinginu kvenkyns.
Sú staða stangast að miklu leyti
á við stöðuna sem blasir við þegar
hlutdeild knattspyrnukvenna meðal
knattspyrnuiðkenda á Íslandi er
skoðuð en um þriðjungur skráðra
knattspyrnuiðkenda á Íslandi er
kvenkyns. Þegar kemur að öðrum
hlutverkum í knattspyrnuhreyfing-
unni er hlutfall kvenna mun lægra. n
Sjálfkjörið í stjórn KSÍ á komandi ársþingi sambandsins
Vanda Sigurðardóttir er formaður KSÍ. Fréttablaðið/Ernir
Andri Rúnar Bjarnason
skrifaði í gær undir eins árs
samning við Val í Bestu deild
karla, möguleiki er á að fram-
lengja þann samning um eitt
ár. Andri lék á síðasta sumri
með ÍBV en af fjölskyldu-
ástæðum gat hann ekki
lengur búið í Vestmanna-
eyjum og hefur nú fundið sér
nýtt heimili á Hlíðarenda.
hordur@frettabladid.is
Fótbolti Framherjinn Andri Rúnar
Bjarnason klæðist rauðu á næstu
leiktíð en eftir fimm ár í atvinnu-
mennsku snéri Andri heim til
Íslands á síðustu leiktíð og skoraði
10 mörk í 21 deildarleik hjá ÍBV.
Framherjinn fékk samningi sínum
í Vestmannaeyjum rift á dögunum.
„Þetta gerðist bara allt frekar fljótt,
ég var ekkert að tala við nein lið
fyrr en ég var líkamlega klár í að
fara á æfingar. Ég beið með það að
taka spjallið,“ segir Andri Rúnar um
félagaskiptin en hann hafði glímt
við meiðsli stóran hluta síðasta
tímabils sem þurftu að fá tíma til
að jafna sig.
Eftir tvö erfið ár vilja Valsmenn
snúa taflinu við, Arnar Grétarsson
var ráðinn þjálfari liðsins og Sig-
urður Heiðar Höskuldsson aðstoðar
hann. Andri heillaðist af plönum
þeirra á fundi. „Það fyrsta og síðasta
sem ég var að spá í var að fara í lið
sem ætlar sér að berjast um eitt-
hvað, ég tók fund með þjálfarateymi
Vals og eftir 15 sekúndna spjall vildi
ég láta þetta ganga,“ segir Andri.
Æfa eins og atvinnumenn
Valsmenn hafa á síðustu árum
verið að stíga skrefin nær atvinnu-
mennsku, flestir leikmenn félagsins
hafa það að atvinnu að spila fótbolta
og sökum þess æfir liðið snemma
dags og er saman stóran hluta úr
deginum. „Það er heillandi og hjálp-
ar mér að taka þessa ákvörðun, ég
finn að það ýtir við mér. Umhverfið
sem þú ert í hjálpar þér að halda þér
á tánum,“ segir Andri.
Andri vonast til þess að Valur geti
látið til skarar skríða og keppt um
titla í ár. „Þú horfir á hópinn og sérð
að þetta eru frábærir fótboltamenn,
með þessa aðstöðu og allt í kringum
félagið. Þá finnst manni að það eigi
að stefna á titla, ég ætla samt ekki
að setja neina pressu á þetta því
ég hef ekki mætt á eina einustu
æfingu. Ég held samt að viljinn hjá
klúbbnum sé að keppa um titla,“
segir Andri sem fagnar því að fara
í þá miklu samkeppni sem er hjá
Val. Hann fær tækifæri til að eigna
sér stöðu fremsta manns í upphafi
móts. Danski framherjinn Patrick
Fjölskyldan í fyrsta sæti og Andri fór í Val
Nýir leikmenn Vals í vetur
n Adam Ægir Pálsson
n Andri Rúnar Bjarnason
n Elfar Freyr Helgason
n Hlynur Freyr Karlsson
n Kristinn Freyr Sigurðsson
n Lúkas Logi Heimisson
n Óliver Steinar Guðmundsson
Pedersen fór í aðgerð og verður lík-
lega ekki klár fyrr en í júlí.
„Ég held að það sé gott fyrir alla,
mér finnst það gott fyrir mig að
kveikja í mér, að vera með þá pressu
á sér að standa sig á öllum æfingum
og í leikjum.“
Fjölskyldan réð ferðinni
Eins og fyrr segir átti Andri Rúnar
fína spretti hjá ÍBV á síðasta ári en
glímdi við meiðsli sem hjálpuðu
ekki til. „Í raun fékk ég aldrei neinn
tíma til þess að jafna mig, ÍBV var
með lítinn hóp og það mátti lítið
út af bregða. Ég fékk smá frí þegar
við tryggðum sætið okkar, ég myndi
ekki segja að ég hafi verið meiddur
en spilaði og æfði í gegnum sársauka
sem á ekki að vera. Við höfðum bara
ekki tíma í að láta þetta gróa,“ segir
Andri.
„Ég held að það sé horft í það
núna, það gleymist í umræðunni
um meiðsli. Þetta voru 10 mörk í
21 leik fyrir úrslitakeppnina, ég er
spenntur að sjá hvernig ég verð í
enn þá betra standi og í liði sem er
að berjast um titla.“
Unnusta Andra er ófrísk að öðru
barni þeirra og það spilaði stórt
hlutverk í því að fjölskyldan ákvað
að f lytja í höfuðborgina. „Það voru
fjölskylduástæður, kærastan var
að vinna hjá Play síðasta sumar og
bjó í Eyjum. Það tók mjög mikið
á hjá henni og ég var mikið einn
með strákinn í Eyjum. Svo verður
hún ófrísk og við eigum von á öðru
barni, þá vildi hún fara í bæinn
og ég skildi það mjög vel. Það var
mjög erfitt að púsla saman síðasta
ári, ég spjallaði við Hemma (Her-
mann Hreiðarsson, þjálfara ÍBV)
og við reyndum að láta það ganga
áfram en það gekk ekki. Það var
fjölskyldan sem varð að fá að ganga
fyrir,“ segir Andri sem er sjöundi
leikmaðurinn sem Arnar Grétars-
son fær til Vals. n
Allt sem er rautt, rautt finnst mér vera fallegt. mynd/aðsEnd
Ég tók fund með þjálf-
arateymi Vals og eftir 15
sekúndna spjall vildi ég
láta þetta ganga.
18 Íþróttir FRÉTTABLAÐIÐ 15. FeBRúAR 2023
MiÐViKUDAGUr