Fréttablaðið - 15.02.2023, Qupperneq 24
Ég hlakka alveg ótrúlega
til að opna á fertugsaldur-
inn.
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Merkisatburðir |
Þetta gerðist | | 15. febrúar 1917
Elskuleg systir mín og frænka okkar,
Soffía Rannveig
Valdimarsdóttir
ljósmóðir,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli
föstudaginn 10. febrúar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Svava Valdimarsdóttir
Ásrún Guðmundsdóttir
Lovísa Rúna Sigurðardóttir
Elsku eiginmaður minn, pabbi,
tengdapabbi, afi og langafi okkar,
Einar Ómar Eyjólfsson
hárskerameistari,
Neðstaleiti 6,
lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni
að morgni 26. janúar sl.
Útför hans fer fram föstudaginn 17. febrúar kl. 15.00 í
Áskirkju. Alúðarþakkir færum við starfsfólki Sóltúns fyrir
hlýja og góða umönnun.
Blóm og kransar eru afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast
hins látna er bent á líknarstofnanir.
Bergþóra Lövdahl
Guðrún Einarsdóttir Strömberg Urban Strömberg
Gunnhildur Einarsdóttir Örn Sveinsson
Jóhanna Einarsdóttir Reynir Elís Þorvaldsson
afabörn og langafabörn
Elísabet Ormslev er á stanslaus-
um þönum en ætlar sér þó að ná
að fagna þrítugsafmælinu í dag.
arnartomas@frettabladid.is
„Þetta er bara rétt að byrja, ég er mjög
spennt að verða þrítug,“ segir tónlistar-
konan og afmælisbarnið Elísabet Orms-
lev. „Ég hlakka alveg ótrúlega til að opna
á fertugsaldurinn.“
Síðasta ár segir Elísabet að hafi verið
mjög þroskandi fyrir sig en það sé einkar
góð tilfinning fyrir tímamótunum í ár.
„Ég hef lært svo mikið á leiðinni og
lent í alls konar vitleysu. Ég grínast oft
við vinkonu mína að ég myndi aldrei
vilja endurtaka unglingsárin eða árin
rétt upp úr tvítugu. Ég myndi bara aldr-
ei nenna því!“
Fillet hefðin rofin
Afmælishefðirnar á heimilinu eru mat-
artengdar. Elísabet segir þó að það verði
líklega ekki morgunmatur í rúmið þar
sem hún vesenaðist til að eiga þrítugsaf-
mæli á miðvikudegi.
„Við höfum reynt að fara út að borða
eða að elda eitthvað fyrir hvert annað,“
segir Elísabet. „Við erum að fara út
að borða núna en tökum börnin og
mömmu með, þetta verður svona fjöl-
skyldurækið.“
Elísabet hefur í gegnum tíðina haldið
tryggð við afmælisréttinn en stefnir á að
breyta til í ár.
„Í mörg ár, ábyggilega síðasta áratug,
fékk ég alltaf lambafille, eins og mamma
eldaði alltaf fyrir mig,“ útskýrir hún.
„Mig langaði alltaf bara í lambafille,
sveppasósu, salat og geggjaðar kartöflur.
En núna ætlum við að fara og fá okkur
pitsu í Ráðagerði á Gróttu – ég er rosa-
lega spennt að prófa.“
Talsetning og tónleikar
Þegar Fréttablaðið náði á Elísabetu var
hún nýkomin frá því að talsetja nýju
myndina um Ástrík og Steinrík sem er
væntanleg í bíó á næstunni. Elísabet
hefur sinnt talsetningu samhliða tón-
listinni undanfarin ár og líkar vel.
„Mér finnst þetta ótrúlega gaman. Það
brýtur upp vikuna að mæta, sitja fyrir
framan míkrófón og horfa á eitthvað
sem er oftast eitthvað skemmtilegt og
fá að nota grínraddir,“ segir Elísabet en
bætir við að börnin fatti ekki alltaf að
það sé röddin í mömmu sem þau heyri
þegar þau horfa á skjáinn.
„Strákurinn minn er bara nýorðinn
eins árs en dóttur minni, sem er fjögurra
og hálfs, finnst mikið sport þegar ég segi
henni að þarna sé mamma að tala.“
Þá er nóg fram undan hjá Elísabetu í
tónlistinni.
„Við Stefanía Svavars ætlum að halda
tvenna Adele heiðurstónleika í apríl,
salan á fyrri tónleikana gekk það vel að
við hentum í aðra,“ segir hún. „Svo verð
ég á Celine Dion tónleikum hjá Jóhönnu
Guðrúnu, er að gefa út nokkur lög sjálf
og ég veit ekki hvað og hvað.“
Lítið um frítíma
Það virðist gagnslaust að spyrja Elísa-
betu hvað hún geri í frítímanum, heldur
liggur betur við að spyrja hvort hún eigi
sér nokkurn frítíma almennt.
„Nei! Ég á í rauninni engan frítíma á
daginn,“ segir hún og vísar í stöðu leik-
skólamála á Íslandi. „Ég er búin að vera
föst heima með fallega strákinn minn í
fjórtán mánuði. Ég á örugglega eftir að
horfa til baka einn daginn og sakna þess
hvað hann var lítill en ég er samt tilbúin
að fá smá breik á daginn. Ef það eru ein-
hverjar dagmömmur þarna úti með laus
pláss þá megið þið endilega heyra í mér!“
Aðspurð að lokum um hvort einhver
afmælisminning sé í eftirlæti rifjar Elísa-
bet upp fimm ára afmælisdaginn.
„Þá var ég með Spice Girls-þema í
afmælinu og fékk alls konar gjafir í þeim
dúr. Ég fékk Spice Girls regnhlíf, mynd-
ina Spice World á VHS og meira til.“
Veistu hvar regnhlífin er í dag?
„Ekki hugmynd! Þetta væri sko safn-
gripur í dag.“ n
Týndi regnhlífinni
og frítímanum
elísabet hefur í gegnum árin haldið tryggð við lambafille á afmælinu en brýtur það upp með pitsu í ár. Fréttablaðið/anton brink
1637 ferdinand 3. verður keisari hins Heilaga rómverska
ríkis.
1645 enska borgarastyrjöldin: enska þingið stofnar at-
vinnuher, New Model army, með 22.000 mönnum.
1662 ragnheiður brynjólfsdóttir eignast son sinn og
Daða Halldórssonar.
1759 breska þjóðminjasafnið (british Museum) er opnað.
1763 Sjö ára stríðinu lýkur með friðarsamningum milli
Prússa og austurríkismanna.
1902 Neðanjarðarlestin í berlín, U-bahn, tekur til starfa.
1960 Margeir Pétursson, íslenskur stórmeistari í skák,
fæðist.
1964 bandaríski gamanmyndaleikarinn
Chris farley fæddur.
1965 fáni Kanada er tekinn upp.
1972 ríkisstjórn
Íslands
ákveður
að færa
fiskveiðilög-
sögu Íslands að
50 mílum.
1985 bandaríska kvik-
myndin break-
fast Club
frumsýnd.
1989 Sovétríkin
tilkynna
að allir
hermenn
þeirra
hafi yfir-
gefið afg-
anistan.
1992 fyrsta fokker 50-flugvél flugleiða hf., Ásdís, kemur
til landsins og lendir á akureyri.
Kristín Ólafsdóttir varð fyrsta konan
til að útskrifast frá Háskóla Íslands
þegar hún lauk prófi í læknisfræði
þann 15. febrúar 1917. Þar áður hafði
hún verið þriðja konan á Íslandi til
að ljúka stúdentsprófi þegar hún út-
skrifaðist frá Latínuskólanum 1911.
Í læknisnáminu kynntist Kristín
eiginmanni sínum, Vilmundi Jónssyni,
og eignuðust þau saman þrjú börn.
Hún starfaði sem læknir í Svíþjóð,
Danmörku og síðar á Ísafirði áður en
hún opnaði sína eigin læknastofu í
reykjavík.
Utan starfa sinna sem læknir þýddi
Kristín einnig ýmsar ævisögur og
rit um heilsufar auk þess sem hún
skrifaði sínar eigin bækur á því sviði,
til dæmis Heilsufræði handa hús-
mæðrum og Manneldisfræði handa
húsmæðraskólum. Hún var einn
stofnenda félags háskólakvenna 1928
og sat einnig um tíma í barnaverndar-
nefnd og skólanefnd Húsmæðraskól-
ans í reykjavík.
Á hundrað ára afmæli Háskóla Ís-
lands færði formaður félags kvenna
í læknastétt skólanum málverk af
Kristínu að gjöf. Verkið má finna í aðal-
byggingu skólans. n
Fyrsta konan útskrifast frá HÍ
20 tímamót FRÉTTABLAÐIÐ 15. FeBRúAR 2023
mIÐVIKUDaGUR