Fréttablaðið - 15.02.2023, Page 27
Þorvaldur segist stundum verða uppiskroppa með hluti til að mála og detta ekkert nýtt í hug.
Ein myndin á sýningunni varð til 2022 en flestar urðu þó til á þessu ári.
Fréttablaðið/Sigtryggur ari
Þorvaldur Jónsson málar
skemmtilega skrýtna karakt-
era og hluti sem fastir eru í
hringiðu tímans á nýrri mál-
verkasýningu.
tsh@frettabladid.is
Listamaðurinn Þorvaldur Jónsson
sýnir sjö ný málverk á sýningunni
Hringiða í Þulu gallerí. Þema sýn-
ingarinnar er tíminn sem er alltaf á
iði og snýst sögusvið verkanna hring
eftir hring eins og vísar á klukku. Á
málverkunum má sjá nokkra kar-
aktera sem birtast aftur og aftur og
áhorfendur fylgjast með í gegnum
hringiðu tímans.
„Þetta eru sjö myndir og tíminn
líður á hverri mynd, fólkið þroskast,
eldist og deyr. Þetta eru sjö sögu-
hetjur sem myndirnar eru nefndar
eftir, það er hús, köttur, egg, hæna,
kall, kona og svín. Svínið er að labba
um og verður svo að beikoni á einni
myndinni, svo er kötturinn alltaf
að lenda í einhverjum óskunda og
deyja á myndunum. Karlinn eldist,
heggur niður tré, smíðar sér líkkistu
og deyr. Konan stækkar og stækkar
og hænan verpir egginu sem rúllar
um, brotnar svo og verður að fúl-
eggi,“ segir Þorvaldur.
Hvernig vinnurðu málverkin,
verða karakterarnir til fyrst?
„Já, ég ákvað þá aðeins áður en
ég byrjaði á myndunum. En svo eru
þetta líka bara fígúrur sem ég hugs-
aði að ég myndi nenna að mála sjö
sinnum. Hlutur eins og eggið, sem
er svona fjölbreyttur hlutur og er til
í mörgum myndum. Þetta er egglaga
form en getur orðið að fúleggi og
spæleggi eða verið í hreiðri þar sem
verið er að verpa því.“
Karlarnir ræflar og dólgar
Af hverju er konan alltaf að stækka
og stækka, er þetta einhvers konar
tröllkona?
„Já, það var svona hugmyndin.
Hún er til dæmis að elta köttinn og
reyna að éta hann. Hún átti fyrst að
vera að éta á öllum myndunum og
verða stærri og stærri. En svo er þetta
líka það að karlinn eldist, þannig ég
vildi ekki að þau væru bæði að eldast
á myndunum og vildi hafa smá fjöl-
breytni í þessu.“
Þorvaldur bætir því við að hann
máli iðulega karla og konur á nokkuð
mismunandi hátt í verkum sínum.
„Mér finnst gaman að mála karla
og konur, konurnar eru oft smá æðri
verur í myndunum mínum og karl-
arnir, þeir eru alltaf einhverjir ræflar.
Mér finnst oft skemmtilegt að hafa
þá fulla einhvers staðar, þetta eru allt
svona dólgar,“ segir hann og hlær.
Vildi hafa söguþráð
Myndir Þorvaldar eru gjarnan upp-
fullar af alls kyns persónum og til-
vísunum. Spurður um hvort hann
hugsi verk sín sem sögur segir lista-
maðurinn:
„Ég hef oft verið spurður um það.
Venjulega er þetta bara eitthvað
sem mér dettur í hug sem ég mála
en í þessari seríu vildi ég hafa sögu-
þráð. Svo er það hvað maður nennir
að mála sjö sinnum, það skiptir líka
máli. Að það sé enn þá skemmtilegt
á seinustu myndinni.“
Þorvaldur kveðst hafa viljað
forðast að hafa sögusviðið einsleitt
og því má sjá umhverfi myndanna
breytast frá hverri mynd þrátt fyrir
að persónurnar séu þær sömu.
„Árstíðirnar breytast, lækirnir
eru mismunandi, þetta er ekki allt-
af sami staður þannig séð. Stundum
sér maður húsið frá mismunandi
sjónarhornum, á einni myndinni
er það á haus og svo sér maður bak-
hliðina á því á annarri myndinni.
Þetta er svona smá Hvar er Valli?,
maður er alltaf að leita að ein-
hverjum hlutum,“ segir Þorvaldur
og vísar þar í hinar þekktu teikni-
myndasögur.
Ólínuleg framvinda
Ertu að nota sömu karaktera og
sömu hlutina í mismunandi mynd-
um og seríum?
„Já, það er stundum þannig.
Stundum dettur manni ekkert nýtt
í hug og maður er að verða uppi-
skroppa með hluti til að mála. Ég
gerði eina mynd fyrir hálfu ári síðan
og hún er eiginlega innblásturinn að
þessari seríu.“
Þema sýningarinnar er sem áður
sagði hringiða tímans og kveðst
Þorvaldur ekki hafa viljað vinna
með hefðbundna línulega frásögn
á milli verka.
„Myndirnar eru merktar frá eitt
til sjö en ég vildi samt ekki hafa einn
byrjunarpunkt og einn endapunkt
því þá myndu allir verða dauðir á
síðustu myndinni. Ég vildi aðeins
dreifa því svo það yrði ekki of niður-
drepandi,“ segir hann.
Spurður um hvað sé næst á döf-
inni hjá honum kveðst Þorvaldur
vera með tvær aðrar sýningar fram
undan á þessu ári, annars vegar hjá
Listamenn innrömmurum og hins
vegar í Gallery Port. n
Konur æðri verur en karlar ræflar
Mér finnst gaman að
mála karla og konur,
konurnar eru oft smá
æðri verur í mynd-
unum mínum og
karlarnir, þeir eru alltaf
einhverjir ræflar.
Á Listahátíð er sérstök
áhersla lögð á frum-
sköpun og verkefni þar
sem ólíkar listgreinar
skarast.
tsh@frettabladid.is
Kallað er eftir hugmyndum frá
listafólki að verkefnum til að flytja
á Listahátíð í Reykjavík 2024. Lista-
hátíð fer fram í júní 2024 og er þema
hátíðarinnar HÉR.
„Hvaða viðfangsefni og hvaða
spurningar er brýnast að takast á
við hér og nú? Hvað kemur í ljós ef
fingurinn er settur á púls tíðarand-
ans?“ segir í tilkynningu frá Lista-
hátíð.
Þemað HÉR er sagt opna á vanga-
veltur um tengsl manns og náttúru,
við landið, en jafnframt spurning-
ar um hvar manneskjan stendur í
sögunni og hvaða áhrif menning-
ararfur og tungumál hafa á hugsun
hennar og skynjun.
Tekið er á móti hugmyndum á
Opið kall hjá Listahátíð í Reykjavík
Sýningin ActRed var á glæsilegri opnunarhátíð Listahátíðar í Reykjavík 2022.
Fréttablaðið/Ernir
Thelonious Monk er eitt af höfuð-
skáldum djassins og einn þekktasti
píanóleikari 20. aldarinnar.
tsh@frettabladid.is
Jazzklúbburinn Múlinn stendur
fyrir tónleikum í dag, miðviku-
daginn 15. febrúar, þar sem Hilmar
Jensson, gítarleikari, Daníel Friðrik
Böðvarsson, gítarleikari, og Matthí-
as Hemstock, trommuleikari, f lytja
tónlist djasstónskáldsins Thelon-
ious Monk í Björtuloftum í Hörpu.
Thelonious Monk er eitt af höfuð-
skáldum djassins og einn þekktasti
píanóleikari 20. aldarinnar. Höf-
undarverk hans hefur verið hljóð-
ritað af fleirum en nokkrum öðrum
djasshöfundi, að Duke Ellington
undanskildum.
Í fréttatilkynningu frá Múlanum
segir að Hilmar, Daníel og Matthías
muni varpa ljósi á tónlist Monks
með ögn óvenjulegri hljóðfæraskip-
an, tveimur gíturum og trommum,
og verður píanóið því fjarverandi.
„Það sama má kannski segja um
tónlistina. Hún er ögn óvenjuleg,
kunnugleg í ókunnugleika sínum,
einföld en marglaga. Tríóið mun
þræða sig í gegnum þekkt og aðeins
minna þekkt lög Theloniusar. Þar
koma við sögu glitrandi smaragðar,
draumar og stemning, sönnunar-
gögn og eina lagið sem Monk samdi
í 3/4.“
Jazzklúbburinn Múlinn stendur
fyrir spennandi vordagskrá á mið-
vikudagskvöldum í Björtuloftum,
Hörpu fram til loka maí. Múlinn er
að hefja sitt 26. starfsár en hann er
samstarfsverkefni Félags íslenskra
hljómlistarmanna (FÍH) og Jazz-
vakningar.
Klúbburinn heitir í höfuðið á
Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt
var heiðursfélagi og verndari Múl-
ans. Múlinn er styrktur af Reykja-
víkurborg, Tónlistarsjóðnum og
SUT sjóðnum og er í samstarfi við
Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.
Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi
Íslensku tónlistarverðlaunanna.
Tónleikarnir hef jast í kvöld
klukkan 20.00 í Björtuloftum á
fimmtu hæð Hörpu, miðaverð er
3.900 kr. en 2.700 kr. fyrir nemendur
og eldri borgara og eru seldir í miða-
sölu Hörpu og á tix.is. n
Monk á Múlanum
hvaða stigi sem er og er öllu lista-
fólki frjálst að senda inn hugmyndir.
Þó er tekið fram að stærri og dýrari
verkefni þurfa að vera komin áleiðis
með eigin fjármögnun til þess að
koma til greina.
„Á Listahátíð er sérstök áhersla
lögð á frumsköpun og verkefni þar
sem ólíkar listgreinar skarast. Við
leitum að viðburðum frá alls konar
listafólki, sem höfða til fjölbreyttra
áhorfendahópa.
Viðburðir mega vera hugsaðir
jafnt innan sem utan miðborgar-
innar og höfuðborgarsvæðisins.
Við leitum jafnframt að þátttöku-
verkefnum og verkefnum í almenn-
ingsrými sem teygja sig út fyrir
hefðbundið umhverfi lista.“
Kjarni stefnu Listahátíðar er að
listir og menning séu ekki forrétt-
indi fárra heldur réttur allra. Hátíð
sem endurspeglar fjölbreytileika
mannlífsins er sterkari hátíð.
Nánari upplýsingar má finna á
heimasíðu Listahátíðar og skila-
frestur er til miðnættis 13. mars
2023. n
FRéttabLaðið menning 2315. FebRúaR 2023
miÐViKUDAgUR