Fréttablaðið - 15.02.2023, Page 28
Tölvuleikir
Hogwarts Legacy
Portkey Games
Leikjatölvur: PlayStation 5 og
PlayStation 4, Xbox Series X og
Series S, Nintendo Switch og PC
Oddur Ævar Gunnarsson
Hogwarts Legacy er tölvuleikurinn
sem margir Harry Potter aðdáendur
hafa látið sig dreyma um frá barn-
æsku. Loksins getur maður prófað
það sjálfur að fá bréf frá Hogwarts
galdraskólanum, kaupa sér töfra-
sprota og láta flokka sig á heimavist.
Ekki nóg með það heldur getur
maður líka gengið um öll gólf
Hogwarts-skóla og meira til, maður
getur kíkt til Hogsmeade galdra-
þorpsins og rölt um hættulega
króka og kima hins forboðna skógar
við enda skólalóðarinnar.
Leikurinn er svokallaður RPG-
leikur þar sem spilarinn býr til sinn
eigin nemanda og kynnist galdra-
heiminum og að þessu sinni vindur
sögunni fram á 19. öld, hundrað
árum áður en Harry Potter bæk-
urnar og hinar sálarlausu Fantastic
Beasts kvikmyndir áttu sér stað.
Spilarinn bregður sér í hlutverk
nemanda sem fær ekki inngöngu
í Hogwarts fyrr en á fimmta ári af
óútskýrðum ástæðum. Vegna ann-
arra óútskýrðra ástæðna er per-
sónan haldin dularfullum galdra-
mætti sem hjálpa henni að bregðast
við uppreisn svartálfa undir forystu
svartálfsins Ranrok.
Valið á illmennum í leiknum
hefur verið gagnrýnt mjög en hug-
myndin um svartálfa, sem alla jafna
gæta Gringotts-banka í söguheimi
Harry Potter, hefur verið sögð inn-
blásin af meintu gyðingahatri vegna
líkinda við fordómafullar frásagnir
af gyðingum í Evrópu í aldanna rás.
Aðalsöguþráður leiksins er ein-
mitt helsti veikleiki hans, og eru
samræður oft stirðar og framvinda
sögunnar ekkert sérlega spennandi.
Óvenju mikið andleysi ríkir yfir
þessum galdraheimi, allt frá því að
Fantastic Beasts myndirnar komu í
bíó og J.K Rowling opinberaði ógeð-
felldar skoðanir sínar á trans fólki.
Helsti styrkur leiksins er hins
vegar án alls vafa Hogwarts-kastal-
inn, sem gegnir sannkölluðu aðal-
hlutverki í leiknum. Séu spilarar
sérlegir Harry Potter aðdáendur þá
mun sá hluti leiksins alls ekki valda
vonbrigðum en aukaverkefni verða
fljótlega mjög þreytandi og eru ansi
kunnugleg; fara hingað eða þangað
að ná í eitt eða annað.
Þá eru óvinirnir sem er að finna
í leiknum og ráðast á þig fyrir-
varalaust ansi kunnuglegir í hvert
einasta skipti, meðal annars svart-
álfar og tröll. Það mætti vera meiri
fjölbreytileiki. Að galdra í leiknum
er þó hin besta skemmtun og frekar
auðvelt að læra að ná tökum á þeirri
iðju. Skorturinn á Quidditch er hins
vegar grátlegur og skondið að ætla
að græða á að selja þá íþrótt í ein-
hverjum aukapakka síðar. n
NiðursTaða: Hogwarts kastal-
inn er risastór og ætti að kæta
Harry Potter aðdáendur en fyrir
aðra má þetta líklega teljast leikur
í meðallagi.
Sálarlaus snilld fyrir Harry Potter aðdáendur
Það er líf og fjör á göngum Hogwarts í nýja leiknum. mynd/skjáskot
Íslenska húðvörumerkið
BIOEFFECT kynnti nýja vöru,
EGF Power Serum, fyrir helgi
og auðvitað var íslenskum
konum boðið að prófa
dropana á eigin skinni.
bjork@frettabladid.is
Það var glatt á hjalla í höfuðstöðv-
um Bio Effect fyrir helgi þegar
hópum kvenna var boðið að koma
og prófa nýju dropana, spjalla og
njóta veitinga.
EGF serumið hefur fyrir löngu
slegið í gegn hér á landi sem erlendis
en droparnir komu á markað árið
2010. Nú hefur fyrirtækið hannað
nýja útgáfu dropanna, EGF Power
serum, sem eru sagðir með enn
meiri virkni og hugsaðir fyrir eldri
og þroskaðri húð. Vörur Bio Effect
eru framleiddar úr vaxtarþáttum
sem Orf Líftækni framleiðir úr bygg-
plöntum í gróðurhúsum sínum á
Reykjanesi. Byggið er ræktað í vikri
í vistvænu hátæknigróðurhúsi og
vökvað með hreinu íslensku vatni
svo um er að ræða alíslenska vöru.
Sigrún Dögg Guðjónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri rannsókna og þróun-
ar hjá BIOEFFECT, segir: „EGF Power
Serum var sérstaklega þróað fyrir
þroskaða húð til að styrkja varnar-
lag hennar og jafna húðlit auk þess
að vinna á helstu sýnilegu merkjum
öldrunar.
Auk lykilinnihaldsefnanna EGF
og KGF inniheldur þessi framsækna
formúla hýalúronsýru, NAG og
fleiri náttúruleg efni sem sjá til þess
að draga úr sýnileika hrukka, auka
raka og lágmarka litamisfellur,“
útskýrir Sigrún.
„Við erum virkilega stolt af þess-
ari nýju vöru og hlökkum til að
kynna hana fyrir markaðinum,“
segir hún að lokum. n
Fengu að reyna
nýja húðdropa á
eigin skinni
Svana Lovísa, kennd við Svart á hvítu á Trendneti, augljóslega alsæl.
Elísabet
Margeirsdóttir
með Bio Effect
maskann.
myndir/ALdís PáLs-
dóttir
Leik-
konan Svan-
dís Dóra naut
þess að fá förðun
frá MAC eftir húð-
rútínuna frá Bio
Effect.
Karítas
Diðriks-
dóttir og Elísabet
Gunnarsdóttir.
Sigrún
Dögg Kjartans-
dóttir, fram-
kvæmdastjóri
rannsóknar og
þróunar.
Liv
Bergþórs-
dóttir, forstjóri
ORF Líftækni,
ásamt Hildi Björgu
Halldórsdóttur.
24 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 15. FeBRúAR 2023
MiðViKUDAGUR