Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Page 7

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Page 7
ljósmæðrablaðið ljósmæðrablaðið 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 76 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 ávarp formanns verk á forsíðu Ávarp formanns Ljósmæðrafélagsins Aldarafmæli Ljósmæðrablaðsins Endurhönnun blaðsins og verk á forsíðu höfundur unnur berglind friðriksdóttir höfundur sóley ylja a. bartsch Það er mér mikill heiður að fá að skrifa ávarp for­ manns nú þegar þeim merkilega áfanga er náð að Ljósmæðrablaðið hefur komið út í hundrað ár. Eiga fyrri stjórnir Ljósmæðrafélags Íslands, ritstjórar og rit nefndir síðustu aldar hrós skilið fyrir sitt vinnu­ framlag við að halda útgáfu blaðsins gangandi. Mikið strit og viðleitni liggur að baki hverju einasta tölu­ blaði en það hefur allt verið unnið samhliða öðrum störfum. Lestur fyrsta tölublaðs Ljósmæðrablaðsins er áhugaverður. Þar kemur fram að tekin var ákvörðun á öðrum aðalfundi Ljósmæðrafélags Íslands, sem haldinn var þann 29. júlí 1922, að skora á stjórn Ljós mæðra félags Íslands að kanna mögulegan kostnað þess að gefa út blað sérstaklega ætlað ljós mæðrum. Það þótti djarft af svona fámennri stétt að ráðast í útgáfu blaðsins því árið 1922 var „mikil dýr tíð og prent kostnaður hár.“ Stjórn félagsins á þeim tíma þótti samt ekki annað rétt en að láta á það reyna þar sem það þótti mikilvægt að gefa út blað til hags bóta og fræðslu fyrir ljósmæður þessa lands. Var ætlast til þess að blaðið myndi birta greinar um „allt það, sem varðar stöðu ljósmæðra og starf þeirra allt, eftir því, sem framast er unnt“ og voru ljósmæður um allt land hvattar til að senda inn ritgerðir eða ábendingar „um hitt og þetta“ sem þær teldu vert að vekja at­ hygli á. Blaðið hefur frá upphafi eflt þekkingu og færni ljósmæðra og gerir það svo sannarlega enn þann dag í dag. Fyrr á þessu ári fékk ég það verkefni í hendurnar að endurhanna Ljósmæðrablaðið í tilefni af aldarafmæli þess. Við tók heilmikil rannsóknarvinna þar sem ég sat á Þjóðarbókhlöðunni og fletti í gegnum tölu­ blöðin sem þar er að finna. Ég ákvað strax að sækja innblástur í hönnun fyrstu árganga blaðsins; það er létt yfir þeim, mikið andrými á síðunum auk þess sem mér þykir hönnun þeirra draga fram kvenleika og fágun. Að mínu mati endurspegluðu nýrri tölu­ blöð aftur á móti ekki það sem ljósmóðurstarfið stendur fyrir, þau eru of steríl og klínísk. Ljósmóðirin er miklu meira en heilbrigðisstarfsmaður. Ég vildi því sækja í söguna sem og mína upp­ lifun af því hver ljósmóðirin er; hún er mjúk, björt og hlý. Um leið er hún sterk; því starfi ljósmóðurinnar fylgir ekki alltaf gleði og birta en hún er alltaf til staðar. Eins og klettur í hafinu sem slípast og mýkist Útgáfa fyrsta blaðsins fyrir hundrað árum var unnin í tilraunastarfi, framhaldið væri undir ljós­ mæðrum þessa lands komið; „hvort þær hefðu þann metnað, að gera það sem þær geta til þess að halda út blaði fyrir stjett sína, eða kjósa heldur að hýrast, hver í sínu horni, og láta ekkert á sjer kræla, og láta sjer standa á sama um stjettarmálefni sín, hvort það sem til frama er eða fræðslu.“ Það verður seint hægt að segja að ljósmæður á Íslandi hafi ekki metnað fyrir sinni stétt og fagi. Þrátt fyrir að ljúka fyrst sex ára háskólanámi til að öðlast starfsréttindi ljósmóður, eins og krafa er um í dag, þá hafa margar því til viðbótar tekið meistaragráðu eða á annan hátt sérhæft sig á ákveðnum fagsviðum innan ljósmóðurfræðinnar. Örlög Ljósmæðrablaðsins urðu því ekki þau að vera „látin lognast út af úr hor og hungri“ heldur sýndi stéttin samhug um að gera sitt til að blaðið gæti lifað og gerir það enn í dag. Hér gefa ljósmæður út, enn að hundrað árum liðnum, veglegt blað ætlað ljósmæðrum um allt er varðar það helsta sem er á döfinni hjá stéttinni, og inniheldur blaðið áhugaverðar og ritrýndar greinar jafnt til fræðslu sem yndis. Ég vil að lokum óska ritstjórum og ritstjórn blaðsins innilega til hamingju með þennan stóra á fanga, sem og ljósmæðrum öllum. Að gefa út fag­ tímarit í heila öld er ekki hægt nema með sam ­ stöðu og samhug stéttarinnar allrar. við hvert flóð og sem stirnir á í fjörunni. Hönnun blaðsins er því blanda af mýkt og styrk, rétt eins og þræðir köngulóarinnar. Við sköpun forsíðunnar vildi ég heiðra þennan merka áfanga sem blaðið er nú að fagna; óslítandi útgáfu í 100 ár, heila öld. Ég tók allar forsíður blaðsins til þessa, sem eru ekki nema 380 talsins, og flokkaði þær eftir birtustigi. Þegar því var lokið raðaði ég þeim upp, þær björtustu fyrir miðið og dekkstu út við jaðarinn. Þannig vildi ég túlka ljósið sem ljós móðirin og hennar starf stendur fyrir. Bæði hið augljósa ljós; nýtt líf sem fæðist í heiminn, og ljósið í myrkrinu sem ljósmóðirin reynist á þung bærum tímum. Ég hlakka til áframhaldandi samtarfs við Ljós­ mæðrablaðið og Ljósmæðrafélag Íslands. Ósk mín er að mín verk séu því til sóma.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.