Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 28

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 28
ljósmæðrablaðið ljósmæðrablaðið 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 2928 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 almennt efni Ljósmæðradraumar Frá stefnumótun til aðgerða Í lok ársins 2020 var gefin út ný stefna fyrir barneignarþjónustu á Íslandi til ársins 2030 og í framhaldinu aðgerðaráætlun sem fylgir stefnunni. Í síðasta Ljósmæðrablaði var birtur pistill um helstu nýjungar sem má finna í stefnunni og aðgerðaráætluninni, en gera má ráð fyrir að þær nýjungar geti verið ljósmæðrum upp spretta nýrra hugmynda um þróun þjónustunnar. Því leitaði ritnefnd Ljós­ mæðrablaðsins til nokkurra öflugra og hugmyndaríkra ljósmæðra og fékk þær til að velta fyrir sér hvað hægt væri að gera í framhaldinu. Hvaða dyr eru að opnast sem áður voru lokaðar? Hvað vilja þær gera, innan núverandi vinnustaðar eða utan, sem þessi stefna gæti stutt þær við? Þessar ljósmæður deila nú með lesendum Ljós­ mæðrablaðsins hugmyndum sínum, framtíðarsýn og draumum. Sumir draumar eru jarðbundnir, aðrir nýjungagjarnari, en allir geta þeir verið okkur leiðar ljós þar sem við höldum áfram að berjast fyrir bættri þjónustu fyrir íslenskar fjölskyldur á frjósemisskeiði sínu. höfundur berglind hálfdánsdóttir upplögð til að ræða fæðingarupplifun, líðan og lífið með nýburanum en má einnig nýta til eflingar kyn­ heilbrigðis. Saumaskapur, gróandi á rifum, virkni grindarbotns, þvagleki og blæðingar eru meðal efna sem gott væri að fara yfir. Einnig mætti ræða kynlíf og parsambandið, frjósemi og getnaðarvarnir og taka leghálsstrok þar sem við á. Þegar ljósmæður hafa fylgt konum í gegnum fyrrgreind lífsskeið er sjálfsagt framhald að fylgja þeim í gegnum lok frjósemisskeiðsins, sjálf tíðahvörfin. Breytingaskeiðið getur reynst mörgum konum erfitt og mikil þörf er fyrir stuðning, fræðslu og ráðgjöf fagfólks. Ljós mæður eru sérfræðingar í kven­ og kynheilbrigði og breytingaskeiðið ætti að vera hluti af þekkingu og menntun ljósmæðra. Minn draumur er að ljósmæður öðlist einn daginn rétt til að ávísa hormóna lyfjum fyrir konur á breytingaskeiði líkt og þær hafa nú fengið rétt á að ávísa hormóna­ getnaðarvörnum. Ég hef þá trú að flestir þeirra drauma sem hér eru reifaðir muni að endingu rætast. Sumir þeirra eru meira að segja vel komnir á veg. Í júní 2021 sendi heilbrigðisráðherra bréf á stjórn Heilsugæslu höfuð­ borgarsvæðisins um opnun kvennamóttöku innan heilsugæslunnar. Í bréfinu kemur fram að mót­ tökunni sé meðal annars ætlað að annast fræðslu og ráðgjöf um breytinga skeið kvenna, getnaðarvarnir og sjúkdóma sem herja sérstaklega á konur. Í dag starfa ég sem ljós móðir í hlutastarfi hjá HH í þver ­ faglegu teymi sem vinnur að því að setja þessa mót ­ töku á laggirnar. Auk mín starfa í teyminu hjúkrunar­ fræðingur, heimilislæknir og sérnámslæknir í kven­ sjúk dóma­ og fæðingarlækningum. Mitt hlutverk í teyminu er að útbúa, þróa og veita fræðslu og ráð ­ gjöf tengda breytingaskeiði kvenna sem og að sinna getnaðarvarnarráðgjöf. Annað stórt verkefni er í burðarliðnum, en það er Fæðingarheimili Reykja­ víkur sem mun bjóða upp á kven­ og kynheil brigðis­ þjónustu frá kynþroska til tíðahvarfa. Margar dyr eru því að opnast fyrir ljósmæður á sviði kynheil­ brigðis og forvarna og þar með fjölmörg tækifæri til að bæta heilsu og kynheilbrigði kvenna á Íslandi. Anna María Oddsdóttir Héraðsljósmæður „Ég er héraðsljósmóðir“ var það fyrsta sem ég hugsaði eftir að ég las skýrsluna um skipulag barn eignar­ þjónustu á Íslandi. Samfelld þjónusta í barneignar­ ferlinu er grunnurinn þar sem engin skil greind fæðingarþjónusta er til staðar. Ef það þarf að slíta í sundur keðjuna eins og á mínu land svæði, þar sem konur þurfa að fæða börn sín utan héraðs, þá þurfa hinir hlekkirnir að standa ansi þétt saman og halda þegar mest á reynir. Nú hef ég starfað sem ljósmóðir á Sauðárkróki í 10 ár. Ég kom hingað nýútskrifuð og full af eldmóði án þess að hafa þá reynslu og þekkingu sem þarf til að standa ein í héraði og taka þá ábyrgð sem nauðsynlegt er að standa undir svo hægt sé að veita þjónustuna og hún sé til fyrirmyndar. Ég væri sannarlega að ljúga ef ég segði að þetta væri ekkert mál, því þetta er oft á tíðum mjög erfitt og ábyrgðin sem maður finnur fyrir er oft mjög yfir­ þyrmandi. En alltaf held ég áfram og þakka ég það m.a. þeim frábæra stuðningi sem ég hef haft frá fæðingardeildinni á Sjúkrahúsinu á Akureyri hjá öllum þeim frábæru læknum og ljósmæðrum sem þar starfa, án þeirra væri starfið ekki eins og það er. Það er svo mikilvægt að finna stuðning og hafa gott aðgengi að ráðleggingum. Einnig hef ég haft gott bakland hjá þeim heimilislæknum sem ég hef starfað með, þeir hafa sannarlega staðið þétt við bakið á mér og er það ómetanlegt. Hér hef ég staðið vaktina dag og nótt, með það eitt að leiðarljósi að mínir skjólstæðingar upplifi sig örugga, hafi greiðan aðgang að mér og geti treyst því að þeir fái sam bæri ­ lega þjónustu og ef þeir hefðu búsetu nær fæðingar ­ stað. Það þarf mikla seiglu til að búa fjarri fæðingar­ stað, sérstaklega á veturna þegar allra veðra er von og færðin ekki góð. Reynslan hefur kennt mér að það að vera til staðar fyrir konurnar og fjölskyldur þeirra skiptir gríðarlega miklu máli og er algjör for ­ senda fyrir því að fólk hreinlega treysti sér til að búa hér á barneignaraldri. Þess vegna fagna ég því sem stendur í skýrslunni, að auka eigi stöðugildi fyrir ljósmæður í héraði. Draumurinn væri að geta verið með tvö stöðugildi ljósmæðra til að geta deilt ábyrgð og verkum og standa áfram vörð um gæði þjónustunnar sem veitt er. Starfið er svo fjölbreytt og gefandi þó auðvitað komi kaflar sem manni finnast mjög erfiðir og gefa lítið af sér, en yfir þá kafla reynir maður að skauta hratt og heldur svo sínu striki og finnur eldmóðinn sem maður hafði í upphafi, leitast við að viðhalda honum með endur menntun, um­ gangast annað fagfólk og deila reynslu. Ég er svo óendanlega þakklát fyrir starfið mitt, ég er stolt ljós ­ móðir og þann dag sem ég finn ekki eldmóð til að standa vörð um þjónustu fyrir „mínar“ konur og fjöl­ skyldur þeirra, vona ég að mér beri gæfa til að finna mér annað starf og hleypa nýrri ljósmóður að sem brennur fyrir besta starf í heimi. Áfram ljósmæður, aldrei missa sjónar á því sem skiptir mestu máli í okkar starfi, þ.e skjól stæðingar okkar og fjölskyldur þeirra. Vissulega væri himneskt að fá greidd laun í samræmi við vinnuframlag en ég óttast að þessi frábæra framtíðarsýn á barneignar­ þjónustu eins og hún birtist í skýrslunni kosti of Steinunn Zophoníasdóttir Kynheilbrigði Þó heiti nýrrar skýrslu um stefnu og aðgerðaráætlun um barneignarþjónustu til ársins 2030 beri það ekki með sér, þá tekur hún líka á málefnum kven­ og kyn ­ heilbrigðis utan barneigna. Eitt af fjórum fræða sviðum ljósmæðra er einmitt kynheilbrigði og for varnir og innan þess felast mörg sóknarfæri fyrir ljósmæður. Minn draumur er að ljósmæður verði rauði þráðurinn í kynheilbrigðisþjónustu kvenna á öllum lífsskeiðum, frá tíðabyrjun fram yfir tíðahvörf. Ég vil að ljósmæður verði sá fagaðili sem kemur fyrstur upp í huga kvenna þegar þær leita sér ráðgjafar um getnaðarvarnir, frjósemi og breytingaskeið. Alveg á sama hátt og konur hugsa fyrst til ljósmæðra þegar þær ganga í gegnum barneignarferlið. Til að draumar geti orðið að veruleika þarf margt að ganga upp. Fræðasviðið er þegar til staðar og stefnan skýr. Ljósmæður eru að taka fyrstu skrefin í átt að aukinni þjónustu á sviði kyn heilbrigðis. Með leghálsskimunum og rétti til ávísunar getnaðarvarna hafa ljósmæður stækkað skjólstæðingahóp sinn og sinna nú konum á fleiri lífsskeiðum en áður. Sú þróun veitir ljós mæðrum möguleika á að víkka starfsvið sitt enn frekar. Í draumsýninni sé ég fyrir mér einingar þar sem ljósmæður sinna kven­ og kynheilbrigði á breiðum grundvelli. Þjónustan væri í boði í þverfaglegu sam ­ starfi við aðrar starfsstéttir eins og lækna, hjúkrunar­ fræðinga, kynfræðinga, félagsráðgjafa, sálfræðinga og sjúkraþjálfara. Eitt sóknar færi ljósmæðra er að efla aðgengi ungs fólks að kynheilbrigðisþjónstu. Í því gæti falist aukin um ræða og fræðsla um kyn­ þroskann, blæðingar, kynlíf og samskipti, getnaðar­ varnir og þungunar rof. Annað sóknarfæri er heilsu­ eflandi ráðgjöf (e. preconcepitonal care) fyrir fólk sem hyggur á barn eignir. Mikil þörf er fyrir slíka þjónustu þar sem ófrjósemi er að aukast hjá báðum kynjum og heilsa fólks fer versnandi með aukinni tíðni offitu, sykursýki og hjarta­ og æðasjúkdómum. Með heilsu eflandi ráðgjöf gætu ljósmæður hjálpað fólki að bæta heilsu og frjósemi sem gæti skilað sér í far sælli meðgöngu en ella. Ljósmæður eru sérfræðingar í barneignarferlinu og sinna því af faglegheitum og kost gæfni. Til við ­ bótar við núverandi fyrirkomulag mætti bjóða upp á komu 6­8 vikum eftir fæðingu. Slík viðtöl eru
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.