Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Page 13

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Page 13
ljósmæðrablaðið ljósmæðrablaðið 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 1312 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 almennt efni „Það er komið undir ljósmæðrum þessa lands, hvort þær hafa þann metnað að halda úti blaði fyrir stétt sína.“ Litið um öxl í tilefni af aldarafmæli Ljósmæðrablaðsins höfundar steinunn h. blöndal og s. rut guðmundsdóttir Í október síðastliðnum voru 100 ár frá því að Ljós­ mæðrablaðið kom út í fyrsta sinn. Það er auðvelt að finna til aðdáunar á huguðu framtaki nýstofnaðs Ljós mæðra félags á síðustu öld, að hefja útgáfu Ljós­ mæðra blaðs árið 1922, aðeins fáeinum árum eftir stofnun félagsins. Ljósmæðrafélag Íslands fetaði þannig í fótspor Læknafélags Íslands, sem hóf út gáfu fag tímarits fyrir lækna árið 1915. Ljósmæðrafélagið braut blað í sögunni á margvíslegan hátt, meðal annars með því að ráðast í útgáfu fyrsta fagtímarits kvenna. Fyrsta tölublað Ljósmæðrablaðsins kom út í október árið 1922 í prentaðri útgáfu. Fyrirmynd að út liti blaðsins var hið virta bókmenntarit landsins, Skírnir. Á fyrstu forsíðunni var auglýsing um væntan­ lega útgáfu bókarinnar Ljósmóðurfræðin nýja. Sagt var að bókin væri skyldueign allra ljósmæðra og myndi kosta 10 krónur. Í sömu auglýsingu frá Bóka­ verslun Sigfúsar Eymundssonar var auglýsing um barna bókina Gosa. Verðið á henni var þrjár krónur. Til samanburðar voru lágmarkslaun ljós mæðra á þessum tíma 70 krónur á ári. Fjárhags legur grunnur útgáfunnar byggðist á áskrift ljósmæðra og aug­ lýsinga tekjum. Þótt greina megi í gegnum öldina áhyggjur forsvarskvenna blaðsins af afdrifum blaðsins hefur það komið út óslitið á ári hverju sl. 100 ár, frá einu tölu blaði á ári upp í sex tölublöð. Þuríður Bárðardóttir, fyrsti formaður Ljós­ mæðra félagsins var jafnframt fyrsti ritstjóri blaðsins. Aðrar í ritstjórn voru þær Þórdís Elín Jónsdóttir Carlquist og Þórunn Á. Björnsdóttir, en þær þrjár skipuðu líka í stjórn félagsins. Í fyrsta ávarpi rit stjórnar er brýnt fyrir lesendum blaðsins hversu mikil vægt það sé fyrir þessa fámennu stétt að eiga sitt eigið blað, sem muni „flytja greinar um alt það, sem varðar stöðu ljósmæðra og starf þeirra alt, eftir því, sem framast er unt. Færi vel á að ljósmæður úti um landið sendu því af og til ritgerðir, eða þó ekki væri nema smábendingar, um hitt og þetta, sem þær teldu þess vert að vekja athygli á.“ Svo er haldið er áfram: „Vitanlega er þetta ekki nema tilraun: Það er komið undir ljósmæðrum þessa lands, hvort þær hafa þann metnað að gera það sem þær geta til þess að halda úti blaði fyrir stétt sína, eða kjósa heldur að hýrast, hver í sínu horni, og láta ekkert á sjer kræla, og láta sjer standa á sama um stjettarmálefni sín, hvort sem til frama er eða fræðslu.“ (Ljósmæðrablaðið, 1922, 3­4). Hvort króginn verður látinn lognast út af úr hor eða hungri? Grunntónn í skrifum ritstjórnar á þessum upphafs­ árum var löngun til að breiða út þá bestu þekkingu í ljósmóðurfræði sem völ var á fyrir ljósmæður Íslands, í okkar strjálbýla landi. Metnaðurinn var að reyna þannig að standast alþjóðlegar kröfur af því að það ættu konur og börn á Íslandi skilið. Þannig vildu íslenskar ljósmæður feta í fótspor systurfélaga sinna á hinum Norðurlöndum sem öll gáfu út ljós mæðra­ blöð. Okkar ljósmæður voru fáar og dreifðar út um allt land, en þær voru líka töff. Þannig segir til dæmis í fjórða tölublaði blaðsins: Kæru stjettarsystur! Verið nú allar samtaka í því að styðja þessa við leitni vora eftir megni, gerist áskrifendur, þið sem ekki eruð orðnar það, og útvegið áskrifendur utan stjettarinnar, eins marga og þið getið, og sendið andvirðið til gjaldkera blaðsins, frú Sigríðar Sigfúsdóttur, Lokastíg 9, fyrir nýárið. Þær, sem enginn skil hafa gert, mega ekki búast við að fá blaðið sent efirleiðis, og hafa það auk þess á samviskunni að hafa orðið valdar að því, að þessi litli vísir til samheldni og stjettar með­ vitundar, og metnaðar með ljósmæðrum Íslands krókni út af úr hor á 1. aldursári. (s.56­57). Forsíðan á allra fyrsta tölublaðinu; Nafnalisti yfir þær ljósmæður sem greitt hafa félagsgjöld og þær sem greitt hafa fyrir blaðið, úr 2. tölublaði blaðsins; Fimmburarnir frægu frá Ontario, birtist í Ljósmæðrablaðinu árið 1935, 4. tbl. Þ ur íð ur B ár ða rd ót tir Þ ór dí s J. C ar lq ui st Þ ór un n Á . B jö rn sd ót tir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.