Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Page 21

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Page 21
ljósmæðrablaðið ljósmæðrablaðið 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 2120 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 almennt efni Því hvað er ljósmóðurinni dýrmætara en góð þekking? Þuríður Bárðardóttir ljósmóðir, fyrsti formaður Ljós mæðrafélags Íslands og jafnframt fyrsti rit­ stjóri Ljósmæðrablaðsins. höfundur steinunn h. blöndal Þuríður Bárðardóttir fæddist 14. ágúst árið 1877 að Raufarfelli undir Eyjafjöllum þar sem hún ólst upp. Árið 1902 hélt hún utan til Kaupmannahafnar og lærði þar meðal annars kjólasaum og aðrar verk legar greinar, en tók svo þá ákvörðun að fara í ljós mæðra­ nám þar ytra árið 1904 í ljósmæðraskólanum danska. Þuríður útskrifaðist ári síðar í Kaupmannahöfn og varð lögskipuð ljósmóðir í Reykjavík það sama ár, 1. október 1905. Fyrir þann tíma var Þórunn Á. Björns dóttir, eina lögskipaða ljósmóðirin í Reykja­ vík, en ásamt Þuríði var skipuð þriðja ljós móðir Reykja víkur umdæmis, Þórdís Carlquist. Þessar þrjár ljós mæður fylgdust svo að og skipuðu fyrstu stjórn Ljós mæðra félags Íslands og fyrstu ritstjórn Ljósmæðrablaðsins. Á þessum árum var það hluti af starfsviði lög­ skipaðrar ljósmóður að taka að sér ljósmóðurnema sem fylgdu viðkomandi ljósmóður allan náms tímann og voru viðstaddar fæðingar og hjúkrun sængur­ kvenna, allt þar til fæðingardeild Land spítalans tók til starfa seint á árinu 1930. Fyrir því hafði Þórunn Á. Björnsdóttir barist í góðri sam vinnu við Guðmund Björnsson landlækni upp úr alda mótum 1900, að nemarnir fengju betri verklega kennslu. Þuríður var, rétt eins og Þórunn, mjög áhuga­ söm um bætt nám ljósmæðra og endurmenntun stéttarinnar. Henni var og umhugað um lengingu á kennslu ljósmóðurnámsins allan sinn starfsferil. Á tímabili var Ljósmæðraskólinn staðsettur í húsi hennar að Tjarnargötu 16 í Reykjavík, eða þar til fæðingar deild Landspítalans opnaði árið 1930. Ljós­ mæðrafélagið, undir hennar stjórn, beitti sér fyrir því þegar fæðingardeildin á Landspítalanum opnaði að ljós mæðranemum væri ætluð „rúm til bú staða í Landspítalanum og hafa þær þannig miklu betri að­ stöðu til þess að fylgjast með og sjá alt, sem fram fer á fæðingardeildinni. Með þessu fyrirkomulagi hafa þær Þuríður Bárðardóttir, ljósmynd eftir Pétur Brynjólfsson. fyllri not af skólaveru sinni en ef þær hefðu átt að búa einhvers staðar út í bæ, eins og upp hafl ega var í ráði.“ (Ljósmæðrablaðið, 1934, s.41). Þuríður var kennari við Ljósmæðraskóla Reykjavíkur frá árunum 1905­ 1931 og prófdómari eftir að Ljós mæðra skóli Íslands fluttist á Landspítalann árin 1931­1943 og síðar 1950­53. Þuríður hafði forgöngu um stofnun Ljósmæðra­ félagsins og var formaður félagsins frá stofnun til ársins 1946 þegar hún sjálf óskaði eftir að hætta. Í 6. tölublaði Ljósmæðrablaðsins frá árinu 1930 er 25 ára starfsafmæli Þuríðar gerð skil: Tuttugu og fimm ára starfssaga, þegar um ljós móðurstarf er að ræða, getur aldrei smásaga talist. Hvað þá þegar unnið hefur verið í einu stærsta umdæmi landsins, og það með þeim dugnaði sem einkennir frk. Þuríði. Hefir hún ætíð verið jafn hiklaus í heimanbúnaði fátækra og ríka. (s.62). Þar eru henni þökkuð brennandi áhugi og bar­ átta fyrir breyttum og bættum kjörum ljósmæðra­ stéttarinnar og því bætt við „að hún hafi alloft staðið eins síns liðs í þeirri baráttu, og mætt þar allri þeirri andúð og að kasti sem rétt hefir verið að ljósmæðra­ stéttinni í heild.“ (s.63). Í ljósmæðraþönkum í fyrsta tölublaði Ljósmæðrablaðsins árið 1932 lýsir Þuríður landslagi í fæðingar hjálp sem hún óttast, en fæðingardeild Land spítalans hafði opnað rúmu ári áður: Það hefur mjög færst í móð hér á landi, einkum í Reykja vík, að hafa lækni við allar fæðingar, þótt ekkert sé að, og ljósmóðir við, með bestu menntun sem völ hefur verið á. Að voru áliti er þetta óþarfi og ósiður. Fólk hugsar ekki út í, að það er ein af höfuðskyldum ljósmæðranna að sækja alltaf lækni, sé þess nokkur kostur, þegar eitthvað ber út af, enda mun það síst gleymast þeim, svo að fólkið getur þess vegna verið alveg rólegt. (Ljósmæðrablaðið, 1932, s.2). Máli sínu til stuðnings grípur Þuríður til gagn reyndrar þekkingar. Til að sýna „að þetta sé ekki tómt grobb og órökstutt traust á ljósmæðrum“ (Ljósmæðrablaðið, 1932, s.3) bendir hún á útgefnar skýrslur um dánartölur ungbarna og mæðradauða. Hér á landi séu þær tölur með lægsta móti í alþjóðlegu sam hengi, eftir að menntun ljósmæðra varð ásættan leg. Það séu ljósmæður sem hafi borið ábyrgð á fæðingar hjálp hérlendis með góðri samvinnu við lækna. Þá vitnar hún í grein í Læknablaðinu frá árinu 1930 þar sem sagt er frá fæðingarhjálp í breska heimsveldinu og þar komi í ljós „að enn stafar sængurkonum meiri hætta af læknum en ljósmæðrum.“ (Ljósmæðrablaðið, 1932, s.3). Til dæmis séu það læknar í Ástralíu sem beri ábyrgð á 90% allra fæðinga og að þar sé mæðradauði með mesta móti í breska heimsveldinu, 5,6%. Þuríður bendir á að samanburðurinn sé þó ekki sann gjarn að öllu leyti, þar sem læknirinn fái oft erfiðustu verk­ efnin, en heldur áfram: Mikil hjálp er oft hættuleg, en læknum hættir meira til en ljós mæðrum, að hefjast handa, í stað þess að láta tímann og náttúruna ráða. Með­ fram er sökin hjá mæðrunum og þeirra nánustu. Læknirinn er eggjaður til framgöngu og í allra þágu er að flýta úrslitum og mikil laun í boði. (Ljósmæðrablaðið, 1932, s.4). 25 ára starfsafmæli Þuríðar, Ljósmæðrablaðið, 12(6), 61. Auglýsing úr Morgunblaðinu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.