Fréttablaðið - 28.02.2023, Page 9

Fréttablaðið - 28.02.2023, Page 9
Markmiðið með tollasamningi Evr- ópska efnahagssvæðisins var að auka samkeppni á íslenskum matvöru- markaði. Eins og alþekkt er leiðir ein- okun og fákeppni til minna vöruúr- vals og hærra verðlags. Því er aukin samkeppni óneitanlega til góða fyrir neytendur. Á smáum markaði, eins og hinum íslenska, erum við sérstak- lega viðkvæm fyrir þessu. Af þessum sökum lagði ég fram fyrirspurn til matvælaráðherra í kjölfar frétta um að innlendir framleiðendur væru að kaupa upp tollkvóta í stórum stíl. Og að þeir gerðu það meðal annars með það fyrir augum að koma í veg fyrir innflutning á ódýrari erlendum kjöt- vörum, þrýsta upp tollverðinu sem samkeppnisaðilar þeirra greiða og drepa niður samkeppnina. Fyrirspurnin var einföld: 1. Hversu miklu magni tollkvóta á matvörum frá öðrum löndum var úthlutað til framleiðenda á sömu eða sambærilegum vörum á tíma- bilinu frá janúar 2017 til dagsins í dag? 2. Hvert var hlutfall nýtingar á þeim tollkvóta? Svar frá ráðuneytinu barst síðan 23. Jóhannes V. Reynisson Blái naglinn Ég er staddur á hjartadeild Land- spítalans við Hringbraut á sex manna stofu. Stofan er full og kona liggur á ganginum. Allt í einu víbrar gemsinn á borðinu og ég tek hann upp. Dagurinn er 22. september 2021 kl. 09:20:56. Pétur H. Hannes- son, yfirlæknir röntgendeildar, er að senda mér tölvupóst. Hann tilkynnir mér að Land- spítalinn hafni ómtækjum fyrir brjóstamyndgreiningu sem spítal- inn var búinn að samþykkja. Þá voru fá tæki í Evrópu, núna eru á annað hundrað talsins. Tækið er frá General Elcetric og heitir Invenia ABUS 2.0 og greinir 30% meira en röntgentækni gerir. Ómtækin eru hugsuð sem við- bótargreiningartækni við röntgen- tæknina. Upphaflega var hugmynd mín að fá þrjú tæki, en krabba- meinsy f irlæknir, hún Monika Vajde, vildi frá fjögur tæki. Tvö fyrir LSH eitt fyrir SAk og eitt færanlegt. Hvert tæki kostar 23 milljónir plús vsk. Þegar hér er komið eru níu dagar þangað til að tilkynna ætti spítalanum að það væru til pen- ingar, 68,4 milljónir fyrir tveimur tækjum með vsk. Þannig að í október í hinum bleika mánuði átti að tilkynna Landspítalanum, Brjóstamiðstöð við Eiríksgötu, að hún fengi tvö ómtækitæki til krabbameinsrann- sókna fyrir jól 2021. Daginn eftir hófust skil á fjármagni. Hugsað til baka Árið 2018 fór ég undirritaður JVR (Blái naglinn) að velta því fyrir mér af hverju svo margar konur dæju úr brjóstakrabbameini eða u.þ.b. 38 konur á ári, konur sem voru undir eftirliti. Þegar menn og konur undir engu eftirliti vegna ristilkrabba- meins deyja ca. 50 manns á ári. Það var það sem vakti athygli mína. Það var eitthvað að þessu forvarnarkerfi fyrir konur. Konum var trúað fyrir því að ef þær kæmu í skimun, og ekkert sæist á myndum væri ekk- ert krabbamein. Staðreyndin er að öll tækni hefur sínar takmarkanir, eins og röntgengeislar höndla illa þétt brjóst og geta misst af meinum. Þannig að ég fór að hugsa að ef rönt- gen gefur ca. 60% öryggi, hvert er þá það tæki sem væri stoðtæki við röntgentæknina? Og leitin hófst þá að fá betri gæðatækni fyrir brjósta skimun. Fyrst skoðum við thermology eða hitatækni. Krabbamein fram- kallar hita sem thermology-tæki geta greint. Eftir töluverðan lestur tókum við þessa tækni út, hún hentaði ekki hér. Vorið 2019 frétti ég að nýju tæki fyrir viðbótarskim- un á brjóstum frá General Electric og er það ómtæki eða ultrasound- tæki. Þarna var komið tæki til þess að bæta gæðastjórnunarkerfi í brjóstaskimun. Á fundi með Landspítalanum og Fastus umboði fyrir þessi tæki, kom ég mínum hugmyndum á framfæri við þá. Haldnir voru nokkrir Zoom- fundir 2020 með læknum í Skand- inavíu og General Electric í Þýska- landi. Í samningum fór ég fram á að fá fjögur tæki á verði tveggja. Niðurstaðan var fjögur tæki á verði þriggja. Spítalinn var búinn að gefa grænt ljós, og söfnunin hófst og gekk mjög vel. Það sem Landspítalinn vissi ekki Það átti að upplýsa Landspítalann í október 2021 um að unnið hefði verið að því að koma á nýsköpunar- verkefninu; krabbamein í brjósti með samanburðargervigreind fyrir röntgen/ómtæki fyrir Landspítala. Leitað var til Háskóla Íslands og fundað með Jóni Atla rektor og tölvudeild HÍ, einnig var fundað með tölvudeild HR. Verkefnið var mjög flókið. Unnið var með f jár festum. Væntanlegir voru erlendir fjárfestar í janúar 2022. Í september 2021 fór margra ára vinna í ruslið, sem er meira háttar mistök hjá LSH. Hugmyndin Á þessari jörðu eru ca. 160.000 spít- alar sem eru af öllum stærðum og gerðum. Hugmyndin var að búa til samanburðargervigreindarforrit fyrir krabbameinsrannsóknir sem getur keyrt röntgen/ultrasound/ MRI/CT eða önnur kerf i fyrir sjúkrahús. Til þess að dæmið gengi upp kostnaðarlega, þurfti greiningar- kerfið að tengjast 0.05% sjúkrahúsa í heiminum eða 80 sjúkrahúsum. Þetta var hluti af B.U.S. og stend- ur fyrir blood, urine, screening- verkefninu: SKIMUN. Óskað var eftir svörum frá for- stjórum Landspítala. Hvorki Páll Matthíasson, þá for- stjóri, né settur forstjóri, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, hafa svarað ósk um upplýsingar um höfnun á ómtækjum fyrir Landspítala. Munnleg beiðni liggur núna fyrir hjá Rafni Pálssyni forstjóra um upplýsingar um höfnun Invenia ABUS 2.0 Landspítalinn - Skimunardeild: Árið 2021 óskaði Skimunardeild eftir gervigreind frá Medtronic vegna ristilspeglana. Blái naglinn brást við kallinu og fjármagnið kom frá félagasamtökum sem vilja ekki láta nafn síns getið. Tækið, sem kost- aði nokkrar milljónir, var afhent Skimun/Landspítala 13. desember 2022. Ekkert hefur verið fjallað um þessa gjöf á innri vef Landspítala eða fréttatilkynning birt í blöðum. Háskóli Íslands - Lífvísinda- setur: Styrkir til grunnrannsókna á krabbameini frá Bláa naglanum. Umsóknarfrestur var til 23. janúar 2023. Upphæðin var 2.375.000 kr. Umsóknir voru opnar fyrir nemend- ur í framhaldsnámi og nýdoktora. Fljótlega verða birtar upplýsingar hverjir hlutu styrki. Nýir tímar, ný hugsun, ný tæki- færi. n Gjöfin Í september 2021 fór margra ára vinna í ruslið, sem er meiri háttar mistök hjá LSH. Guðbrandur Einarsson þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi Allt í plati Ingimundur Gíslason augnlæknir á eftirlaunum Suðurlandsundirlendið er stærsta samfellda landsvæðið undir 400 metra hæðarlínu á Íslandi. Umfang þess telst vera um það bil 3.400 km². Allt Ísland er 103.125 km² að flatar- máli. Þegar ekið er um Suðurland á góð- viðrisdegi frá Hveragerði til Víkur blasir við fjallahringur að heita má í allar áttir ef Vestmannaeyjar ásamt með Surtsey eru taldar með. Hvergi á Íslandi er útsýni til fjalla eins og hér. Ég get endalaust talið upp fjöllin sem sjást frá þjóðvegi eitt frá Ingólfs- fjalli til Surtseyjar. Læt þau hæstu og frægustu duga: Botnssúlur, Kálfa- tindar, Efstadalsfjall, Högnhöfði, Hlöðufell, Langjökull, Bjarnarfell, Jarlhettur, Búrfell, Bláfell, Þríhyrn- ingur, Hekla, Tindfjallajökull, Mýr- dalsjökull, Eyjafjallajökull, Vest- mannaeyjar og Surtsey. En þetta er allt að breytast. Að hluta til á kostnað skattgreiðenda. Adam virðist vera að hörfa úr para- dís. Um er að ræða stórfelldar lands- lagsbreytingar án nokkurs skipulags. Víða sést ekki lengur til fjalla vegna trjáræktar meðfram þjóðvegum landsins. Og þetta versnar með Fagur er fjallahringur Víða sést ekki lengur til fjalla vegna trjáræktar meðfram þjóðvegum landsins. hverju ári sem líður. Trén stækka óðfluga og ræktunarsvæðum fjölgar. Er þetta það sem viljum? Almenn- ingur er aldrei spurður. Þegar ekið er frá Skáni í Svíþjóð í norðurátt um Smálöndin er sára- lítið útsýni til að geta notið lands- lagsins. Leiðin liggur um trjágöng með háum trjám til beggja hliða og útsýni aðeins beint fram á við, á malbikaðan veg. Munu ferðamenn halda áfram að sækja Ísland heim? Munu þeir vilja borga fyrir ferðalag í gegnum þétta skóga og án þess að geta notið hins fagra landslags sem Ísland hefur upp á að bjóða? n janúar sl. og verð ég að viðurkenna að það kom mér á óvart. Öfugt við það sem greint hafði verið frá var ekki hægt að lesa út úr svarinu að íslenskir matvælaframleiðendur væru að kaupa upp tollkvóta í stórum stíl. Þeir keyptu jú eitthvað af tollkvóta en það gæti átt sínar eðli- legu skýringar, til dæmis að bregðast við skorti á innanlandsmarkaði. Fljótlega barst þó greining frá aðilum sem þekkja þennan markað vel. Niðurstaða þeirra var að svar ráðuneytisins væri á engan hátt full- nægjandi og næði alls ekki utan um uppkaup á tollkvótum. Samkvæmt sömu aðilum er veru- leikinn sá að matvælaframleiðendur á Íslandi eru tengdir stórum inn- flutningsfyrirtækjum sem þeir nota m.a. til þess að kaupa tollkvóta fyrir sig. Því séu kaup íslenskra matvæla- framleiðenda á tollkvóta mun meiri en fram kemur í svari ráðuneytisins. Þessu til viðbótar kvaðst ráðu- neytið ekki hafa upplýsingar með höndum um nýtingu tollkvóta. Með öðrum orðum hefur ráðuneytið ekk- ert eftirlit með því hvort tollkvóti sem keyptur er upp sé raunverulega nýttur til innflutnings á vörum. Það hlýtur að vera eðlileg og rétt- mæt krafa að ráðuneytin svari þeim spurningum sem fyrir þau eru lögð á þann hátt að hægt sé að draga eðli- legar og skýrar ályktanir af þeim. Það hlýtur líka að vera krafa að stjórn- völd standi vörð um samkeppni á Íslandi og hagsmuni neytenda. Í þessu tilviki er það ekki raunin. n FréttAblAðið skoðun 928. FebrúAr 2023 ÞRIðJuDAGuR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.