Milli mála - 2022, Blaðsíða 56
MILLI MÁLA
Milli mála 14/1/2022 55
jákvætt viðhorf til tungumála nemenda og hún efldi skilvirk sam-
skipti við erlenda foreldra. Móðurmálskennarinn Anna var menntuð
sem pólskukennari, hún hafði góða þekkingu á íslenska skólakerfinu
og íslenskri tungu, og hún var fær um að byggja á tungumálaforða
nemenda sinna eða færni þeirra í íslensku og pólsku. Kennsla Erlu
og Önnu hafði í för með sér skilvirkar kennsluaðferðir sem náðu til
nemenda, samstarf, réttmætt mat, einlægan áhuga á nemendum og
árangursrík samskipti og samvinnu við foreldra. Kennsla þeirra var
líka tengd námsrýmum og skólastefnum.
Anna lýsti því hvernig hún byggði á tungumálahæfni og menn-
ingarþekkingu nemenda sinna í öðrum tungumálum:
[...] vinna miklu meira svona orðaforða og ekki þá bara, svona, ekki út-
skýra svo mikið í málfræði, frekar að segja hvernig gera á íslensku, hvernig
gera á pólsku, bara sjá hvað er svona munurinn, ekki frekar betra að gera
svona og nota, þú veist, grunnur sem er frá íslenska skólanum til að út-
skýra hvernig gera á pólsku. (Anna, móðurmálskennari)
Hún byggði á áhugasviðum nemenda sinna og skapaði tækifæri fyrir
þá að bera saman tungumál sín:
[...] leika sér saman, gera eins konar leikur, til dæmis sem er á íslensku,
þú veist, bara [...] á íslensku leiðbeiningu og, þú veist, við ætlum að gera
þetta bara á pólsku. Það er líka skemmtilegt. (Anna, móðurmálskennari)
Erla sýndi áhuga á því sem verið var að kenna í pólska skólanum en
á sama tíma virti hún sjálfsmynd nemenda og hvaða hliðar af henni
þeir vildu sýna:
En ég veit að það er til dæmis samfélagsfræði, ég veit það er verið að kenna
sögu og svo pólsku sko, en svo eru þau ekkert mikið að [...] ég er svo sem
ekki mikið að spyrja um það heldur, ekki nema þau séu, svona, vilja að
segja mér það. (Erla, bekkjarkennari)
Mikilvæg aðferð til að efla alla nemendur er að efla samvinnu á milli
nemenda og notkun hópavinnu:
RENATA EMILSSON PESKOVÁ