Milli mála - 2022, Blaðsíða 195
MILLI MÁLA
194 Milli mála 14/1/2022
aðstæður hvor annars er saga landsins sögð frá ólíku sjónarhorni
drengjanna og fjölskyldna þeirra.30
Frá aldamótum hafa fleiri og fleiri kvikmyndir beint sjónum
að tungumálum og menningu frumbyggja álfunnar. Fyrir þeirra
tilstuðlan gefst tækifæri til að beina sjónum nemenda að áhrifum
tungumála þeirra á málnotkun og málsnið spænskunnar og fjöl-
menningu landanna sem álfuna mynda. Meðal umræddra mynda
má nefna Perúsku kvikmyndina Madeinusa (2005), myndina Ixcanúl
(2015) frá Gvatemala, Roma (2018) frá Mexíkó, auk kvikmynda leik-
stjórans Jorge Sanjinés frá Bólivíu o.fl. Í myndunum er teflt fram
sögupersónum af indíánaættum og ljósi varpað á lítt þekkt sjónar-
horn, annars konar heimssýn, hugmyndafræði, tengsl við móður jörð,
Pachamama, mótlætið sem frumbyggjar búa við og jaðarsetningu
menningar þeirra. Tónninn er gjarnan ljóðrænn og framandi, áleitinn
og óvæginn, en fyrir nemendur á fjarlægum slóðum veita þessar
myndir innsýn í einstaka samfélagsskipan sem nauðsynlegt er að
kunna skil á og þekkja (González Rodríguez 2020).
Af framsögðu er ljóst að kvikmyndir álfunnar eru mikilvægur
samfélagsspegill. Þær eru í senn hentugt verkfæri til þjálfunar í
menningarlæsi og hæfni og færni í tungumálinu (Shaw 2003).31
Þegar horft er til efnistaka einstakra mynda má velta fyrir sér hvort
þær hafni eða styrki staðlaðar ímyndir um Rómönsku-Ameríku og
íbúa hennar. Hugmyndir argentínsku kvikmyndagerðarmannanna
Solanas og Getino um „þriðju kvikmyndina“, þ.e. kvikmyndir sem
vettvang pólitískrar umræðu, fólu í sér að hvorki mætti fegra né
sverta, ýkja né draga úr, heldur segja söguna eins og hún væri (2003,
296). Í því ljósi staðfestist hlutverk kvikmynda sem kennsluefnis. Þær
beina sjónum að viðfangsefnum eins og ólíkum birtingarmyndum
þjóða, þjóðfélagshópa, kynja og kynþátta, samtímis því að veita inn-
sýn í raunverulegar aðstæður og margvíslega málnotkun. Þær varpa
ljósi á það hvernig stjórnmálaátök, sögulegir jafnt sem hversdags-
legir viðburðir, trúarleg efni og átök um áhrif og völd hafa mótað
30 Vert er að vekja athygli á brasilísku myndunum Pixote (1981), um líf götubarna í Ríó de Janeiro,
Borg guðs (2002), um íbúa eins illræmdasta fátækrahverfis í nágrenni Ríó, og myndinni Carandiru
(2003) um aðbúnað og uppreisn í samnefndu fangelsi í útjaðri São Paulo. Um eins konar útskýr-
ingamyndir er að ræða þar sem sammannlegum tilfinningum er tvinnað saman við hápólitíska
samfélaggagnrýni.
31 Sjá hér ítarlega umfjöllun um best þekktu myndir álfunnar frá tíunda áratugnum.
INNSÝN OG AUKIN FÆRNI: AÐ „LESA“ MENNINGU ÞJÓÐA MEÐ AÐSTOÐ KVIKMYNDA
10.33112/millimala.14.1.9