Fjarðarfréttir - 08.06.2022, Blaðsíða 4
4 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2022
Var bæjarstjóra
stóllinn aðalumræðu
efnið í stjórnar mynd
unarviðræðum Sjálf
stæðisflokks og
Fram sóknar? Hvern
ig stendur á því að
oddvitum stjórnmálaflokka dettur í
hug að deila með sér bæjar stjóra
stólnum, 2½ ár og 1½ ár? Bæjar
stjóra embættið eins og það er í Hafn
arfirði er ekki pólitískt embætti.
Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri
sveitar félagsins og bæjarstjórnin
legg ur línurnar, mótar stefnu og
samþykkir fjárhagsáætlanir. Fyrir átta
árum var starfið auglýst af m.a.
núverandi bæjarstjóra og þá voru
miklar kröfur gerðar til menntunar og
reynslu. Hvers vegna ekki fyrir
fjórum árum og hvers vegna ekki nú.
Við höfum pólitískt embætti sem er
forseti bæjarstjórnar. Það hefur áður
verið notað sem eins konar pólitískur
bæjarstjóri sem kom út á við fyrir
hönd sveitarfélagsins og var tals mað
ur hans en bæjarstjórinn fékk meiri
frið til að sinna sinni vinnu sem
framkvæmdastjóri sveitarfélagsins.
Eru það launin?, upphefðin?,
titillinn eða hvað er það sem gerir fólk
svona þyrst í að verða bæjarstjóri?
Spyr sá sem ekki veit.
Nú ríkir meirihluti sem hefði ekki
átt að vera í meirihluta ef lýðræðið
væri virkt. Hvers vegna er notast við
undarlegar reiknireglur til að ákveða
úthlutun bæjarfulltrúasæta á meðan
einfalt atkvæðahlutfall væri miklu
sanngjarnara. Bæði Sjálfstæðisflokkur
og Samfylking fengu einu sæti meira
en hlutfallslegt fylgi þeirra sagði til
um og af sömu ástæðu misstu Vinstri
græn og Píratar af því að eiga fulltrúa
í bæjarstjórn. Ætlar enginn að taka
þetta mál upp? Sem dæmi um
vitleysuna fékk D í Garðabæ aðeins
rétt rúmlega 49% atkvæða en 64%
bæjarfulltrúa, 7 af 11.
Fyrir utan það að 17,5% greiddra
atkvæða duttu dauð niður þar sem
flokkarnir sem það fólk kaus náði
ekki inn og aðeins um 43% kosninga
bærra bæjarbúa nýttu atkvæði sín til
að kjóa þá sem í bæjarstjórn sitja.
Í bæjarstjórn sitja fulltrúar bæjarbúa
og flokkslínur ættu lítt að ráða för.
Gott gengi til nýrrar bæjarstjórnar!
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Útgefandi: Hönnunarhúsið ehf. kt. 450106-1350
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Guðni Gíslason
Ritstjórn og auglýsingar: sími 896 4613
fjardarfrettir@fjardarfrettir.is
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja • Dreifing:
Póstdreifing
ISSN 2298-8858 Vefútgáfa: ISSN 2298-8866
www.fjardarfrettir.is
www.facebook.com/fjardarfrettir.is
Hönnunarhúsið ehf.,
Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Víðistaðakirkja
Sumarmessur í Garðakirkju
alla sunnudaga kl. 11:00.
Víðistaðakirkja
tekur þátt í Sumarmessunum sem er samstarfsverkefni
kirknanna í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi.
Kaffi og dagskrá á Króki eftir messur.
Sjá nánar á Facebook: Sumarmessur í Garðakirkju
Skráning í fermingu 2023
á vidistadakirkja.is
Heiðdís
sýnir
Á fyrstu sýningu sinni STYTTIR
UPP að Norðurbakka 1 sýnir Heiðdís
Helgadóttir olíumálverk sem hún hefur
unnið að síðastliðin fjögur ár.
Sorg, vonbrigði og tilfallandi geð
sveifl ur eru hluti af eðlilegri líðan
manns ins. Dapurleikinn varir ýmist stutt
eða lengi, stundum of lengi. Hegðun
hugans var Heiðdísi hugleikin við
vinnslu verkanna og hvernig hann á það
til að koma aftan að manni með látum
þegar maður á síst von á því. Birtan og
blæbrigðin í verkunum er áminning um
það að vonir glæðast, vorsólin yljar
vetrarhríð og blómin birtast á ný, um
leið og það styttir upp.
Heiðdís Helgadóttir (38) nam listfræði
í HÍ áður en hún útskrifaðist með BA
gráðu í arkitektúr frá Lista háskóla Íslands.
Sýningin stendur yfir til 11. júní 2022