Veiðimaðurinn - 01.03.1963, Síða 8
H.f. Eimsgipafélag íslands:
Aðalfundur
Aðalfundur H.f. Eimskipafélags íslands, verður haldinn í fundar-
salnum í húsi félagsins í Reykjavík, föstudaginn 3. maí 1963 og hefst
kl. 1,30 eftir hádegi.
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu
starfsári og frá starfstilhögun á yfirstandandi ári, og ástæðum
fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða rekst-
ursreikninga til 31. des. 1962 og efnahagsreikning með at-
hugasemdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og tillög-
um til úrskurðar frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu
ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn íélagsins í stað þeirra sem úr
ganga samkvæmt samþykktum félagsins.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins
varaendurskoðanda.
5. Tillögur til breytinga á reglugerð Eftirlaunasjóðs H.f. Eim-
skipafélags íslands.
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem udd kunna
að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og um-
boðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 29.
apríl til 2. maí næstk. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess
að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Óskað er eftir
að ný umboð og afturkallanir eldri umboða séu komin skrifstofu
félagsins í hendur til skráningar, ef unnt er, viku fyrir fundinn.
Reykjavik 12. febrúar 1963.
STJÓRNIN.
Veibimaciirinn