Veiðimaðurinn - 01.03.1963, Síða 28

Veiðimaðurinn - 01.03.1963, Síða 28
ÞJÓSTÓLFUR: Við árósftoa. FYRIR mörgum árum var ég á veiðum við neðri hluta Laxár í Dölum. Lítið var um lax í ánni, enda var þetta fyrri hluta sumars, áin lítil og bjart veður. Þarna hagar svo til, að stórt lón er neðst í ánni. Fellur inn í það um flóð. Fyrsta kvöldið, sem ég var þarna, gekk ég út á höfðann, norðan við útfallið úr lóninu. Er þarna mjög kvöldfagurt í góðu veðri og dvaldist mér þar fram yf- ir flóðið. Horfði ég ýmist til allra átta og naut útsýnisins, eða ég horfði niður í ósinn milli lóns og sjávar. Þar var töluverð laxför, bæði út og inn. Óskaði ég auð- vitað, að laxarnir gengju í ána. Man ég sérstaklega eftir einum laxi, sem ég sá þarna á sveimi og varð mjög hrifinn af. Hann var ákaflega stór og með Ijósan blett á vinstri síðunni. Hefir sennilega hlotið áverka nokkurn á yngri árum. Loks lagði ég af stað heim í tjald, sem stóð í hvammi, ofan við brúna. Þegar ég kom þar að, sem áin fellur út í lónið, var nokkuð farið að falla út. Settist ég VEIÐIMENN! Geri við veiðistengur og hjól. Einar Þ. Guðmundsson. Njálsgötu 9. Stmi 20290. 18 þar niður til þess að athuga, hvort nokk- ur laxaferð væri þar um. Er ég hafði setið þarna um stund, án þess að verða nokkurs vísari, heyrði ég allt í einu annarlegan nið. í fyrstu var mér ekki ljóst, hvaðan hann barst, en brátt sá ég hvar lág, bogmynduð alda reis yzt í lóninu og nálgaðist óðum. Hún kom alla leið inn í vikið, sem ég sat við, þar sem áin fellur út í lónið. Vikið fylltist af laxi á svipstundu og sumir fóru lítið eitt upp í árstrauminn, en sneru svo frá og allt varð kyrrt aftur. Margt af þessu voru stórir laxar. Á fjöldann get ég ekki gizkað, en mér fannst hann hljóta að skipta hundruð- um. Eftir drjúga stund heyrði ég aftur sama niðinn og áður og allt fór fram með sama hætti. Sat ég enn og beið, því að mér þótti þetta furðulegt og hafði aldrei séð neitt þvílíkt áður. Biðin varð mun lengri í þetta sinn og sá ég verulegan mun á því, hvað lækkað hafði í lóninu meðan ég sat þarna. Loks komu laxarnir í þriðja sinn, fóru nákvæmlega eins að og í hin skiptin og sneru við á sama stað. Ég beið ekki eftir fleiri atrennum, þar sem ég þurfti að sofa. Fór ég varlega upp með ánni í tjaldstað og sannfærðist um, að enginn lax hafði gengið upp í ána. Sá ég þess heldur engin merki daginn eftir. Þó var þá alveg álíka mikil umferð um Veidimadurinn

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.