Veiðimaðurinn - 01.03.1963, Side 15
strenginn. Ennþá hafði ég ekki séð hann
greinilega og vissi ekki hve stór hann
mundi vera; en þá kom upp bakugginn
og hélt ég fyrst að það væri sporðurinn!
Nokkru síðar skaut upp sporðinum.
Blöskraði mér stærðin og hljóp veiði-
titringur og tryllingur um mig allan, og
þá fyrst byrjaði bardaginn upp á líf og
dauða!
En loks tókum við að þreytast báðir
tveir, og þó til hamingju laxinn meira.
Tókst mér að draga hann úr strengnum
inn í pollinn, hnédjúpan, sem er fyrir
ofan klöppina, sem aðskilur Mið- og
Neðstastreng, en strax og kenndi grunns,
þaut laxinn út í strenginn aftur. A þessu
gekk um hríð og var mér ekki unnt,
vegna þyngsla og átaka, að lenda hon-
um. Loks datt mér í hug að vaða straum-
megin fram fyrir hann og reyna að koma
höggi á hann, þegar hann færi fram hjá
mér út í strenginn, því enga hafði ég
ífæru. Þetta tókst vonum betur í fyrstu
tilraun; því nú var laxinn farinn mjög
að þreytast. Hæfði ég hausinn með fæt-
inum, og fannst mér hann heldur linast
við. í annað sinn óð ég fram fyrir hann,
og höggið kom á miðjan bol. Stöngin var
iveigð, færið þanstrengt, og láðist mér
að lina á taki, svo að kastið slitnaði!
Þarna var þessi stóra skepna laus orðin
á hnévatnsdýpi og skamrnt út í streng-
inn. En á sama augnabliki kastaði ég
mér yfir laxinn, náði tveim höndum um
sporðinn, sletti honum upp í mig, beit
þéttan og draslaði honum í land, eftir
nálega klukkutíma viðureign.
Þegar ég var búinn að rota laxinn og
dást að honum, fór ég að líta eftir stöng-
inni. Sá ég hana hvergi; en brátt kom ég
Halldór Vilhjálmsson á laxveiðum.
auga á hana úti f streng, þar sem ég náði
henni. Hafði ég kastað henni af hendi
út í á um leið og ég henti mér yfir lax-
inn!
Enga hafði ég vog til að vega hann á,
en þegar ég kom heim með hann nokkru
síðar, vóg hann 15i/£ kg. eða 34 lb.
Hér fylgja nokkur stœrðarmál: Lengd
120 cm, hauslengd 29 cm, sporðbreidd
30 cm, ummál fyrir framan bakugga 56
cm. Laxinn var allmjög leginn.
STÆRSTI sverðfiskur, sem veiðst hefur við Af-
ríku, veiddist þar í júní s.l. sumar. Hann var 700
ensk pund. Ekki fylgir fréttinni, hver veiddi hann
eða hve langan tíma tók að ráða niðurlögum hans.
Veiðimaðurinn
5