Veiðimaðurinn - 01.03.1963, Síða 14
Halldór Vilhjálmsson:
Sá stóri úr Miðstrengnum
í Grímsá.
MARGIR veiðimenn munu hafa heyrt getið
um stóra laxinn, sem Halldór heitinn Vilhjálms-
son, skólastjóri á Hvanneyri, veiddi í Grímsá.
Sumir hafa ef til vill séð líkanið af þessum laxi,
en það hefur a.m.k. til skamms tíma hangið
uppi á vegg hjá Kristjáni Fjeldsteð í Ferjukoti
í Borgarfirði. En vér væntum að ýmsum muni
þykja fengur í frásögn Halldórs sjálfs um við-
ureignina. Líkanið er þannig til komið, að þegar
Halldór kom heim með laxinn, lagði hann
skepnuna á blað og merkti útlínurnar nákvæm-
lega. Líkanið var síðan gert eftir þeirri teikn-
ingu.
Guðmundur Einarsson frá Miðdal, sem oft
hefur reynst Veiðimanninum vel áður, var svo
vinsamlegur, að lána oss bréf frá Halldóri Vil-
hjálmssyni, þar sem eftirfarandi frásögn er
geymd. Kunnum vér Guðmundi beztu þakkir
fyrir birtingarleyfið. — Ritstj.
Úr gömlu fréfi til Guðmundar Einars-
sonar frd Miðdal.
SÍÐUSTU dagana í ágúst, árið 1917, var
ég staddur upp við Grímsá, að veiða lax
1 svo nefndum Strengjum. Stöngin, sem
ég notaði, var létt og lipur greenheart-
stöng. Þá var það seinni hluta dags, ég
þá búinn að veiða 6 væna laxa, að allt í
einu var kippt harkalega í færið neðst
í Miðstrengnum og um leið sá ég gríð-
arstóran lax bylta sér af önglinum. Þótt-
ist ég aldrei fyrr hafa séð slíka skepnu.
Sennilega mér til láns, datt mér þá þegar
í hug, að betra mundi vera að hvíla og
bíða um stund, og rölti ég þá niður í
Litlafossinn og Hörgshyl, ef vera kynni
að ég yrði þar var við lax. Eftir rúman
klukkutíma kom ég aftur upp í Mið-
streng. Hafði ég stöðu efst í honum og
veiddi strenginn hægt og rólega niður,
en varð ekki var. Loks renndi ég með
maðki niður í botn á sama stað og ég
hafði orðið var fyrr um daginn, en þá
festist færið og virtist óbifandi. Ég bölv-
aði í huga mínum, að hafa eytt fullum
klukkutíma til einskis og þurfa svo að
slíta af mér kast og öngul. Kippti ég nú
í færið allsterklega í fyrsta og annað sinn,
án þess að nokkuð léti undan, og í þriðja
sinn kippti ég með þeim fulla ásetningi
að slíta, en þá kvað við í hjólinu og upp
strenginn geystist með þungum skrið
stórlax, svo sauð á færinu, en slík músík
lætur vel í eyrum veiðimanns. Laxinn
stöðvaði ekki strik sitt fyrr en efst í Efsta-
streng, sneri þar við snögglega og strik-
aði með miklum hraða niður alla strenm
og niður undir Litlafoss; þar bylti hann
sér, sneri við og strikaði með siná kipp-
um og útúrdúrum upp í bæli sitt neðst
í Miðstreng og lagðist þar niður, sem
klettur væri.
Ekki veit ég hve lengi ég stóð þar yfir
honum með stöngina beygða í hálfhring,
en að lokum leiddist honum þófið og fór
að gera smá rokur fram og aftur um
4
Veujimaburinn