Veiðimaðurinn - 01.03.1963, Page 18

Veiðimaðurinn - 01.03.1963, Page 18
skorpunni, og ég dró hann hægt og var- lega að bakkanum, þar sem ég gat seilst til sporðsins og kippt honum upp á bakkann — en um leið slitnaði upp úr lykkjunni. — Dag nokkurn fyrir mörgum árum var ég á gangi meðfram ánni, var að fara á engjar. Ég hafði veiðistöngina með mér, eins og jafnan, er ég var við heyskap nærri ánni. — Þetta var áður en farið var að leigja ána fastri leigu. — Ég sé lax stökkva nær hinum bakka árinnar, þar sem hún rennur undir brattri hlíð. Sjálfsagt að bjóða honum flugu. — Á þeim árum þekkti ég ekki annað agn en flugu. — Að laxinum varð ekki komizt öðru vísi en á báti. Reri ég því ofan við staðinn, þar sem hann stökk og lét fluguna berast þangað. Reyndi ég nokkra stund árangurslaust. Næsta dag sá ég laxinn stökkva á sama stað og reyndi við hann á sama hátt, en án árangurs. Þannig gekk í nokkra daga. Alltaf sá ég hann stökkva á sama stað. Ég sá næsta vel, að þetta var alltaf sami lax- inn, 15 punda hængur, nokkuð leginn. Daglega reyndi ég að tæla hann með flugunni, en hann stóðst freistinguna; þar til loks að ég fór upp í brekkuna og kastaði fyrir hann þaðan. Aðstaðan var óhæg með snarbratta brekkuna að baki, en þetta dugði. í öðru eða þriðja kasti var hann á og kominn á land eftir stutta viðureign. Harðskeyttasti og skapversti lax, sem ég hef fengist við, tók flugu hjá mér þar, sem svo hagar til, að áin er um 80 m breið, djúp og straumlítil milli brattra marbakka, ofan við allharðan streng. Laxinn tók ofarlega í strengnum. Hann kom á eftir flugunni leifturhratt í fallegum boga, og festi öngulinn, að því er mér virtist, á hinum venjulega stað í neðri kjálkanum, framan við kjaftvikið. Fyrst tók hann geysiharða roku upp fyr- ir strenginn, þar sem lygnara var og dýpra, þeyttist yfir að andstæðum bakka, sneri þar snöggt við og stefndi að landi mín megin svo hratt, að ég hafði ekki við að draga inn línuna, þó ég hlypi jafnframt frá ánni svo hratt sem ég gat. Rétt við marbakkann sneri hann við og þaut enn yfir að hinum bakkanum og til baka aftur með svo miklum hraða, að í þetta sinn gat hann ekki stöðvað sig við grunnshallið, en stakk hausnum í snar- brattan marbakkann. Þegar ég loks hafði dregið inn línuna, kom flugan laus og laxinn farinn. Hefur hún vafalaust losnað í árekstrinum, hver sem örlög fisksins hafa orðið. En ég vona að hann hafi getað skolað sandinn úr tálknunum og náð sér eftir höggið. Oft er skopast að veiðimönnum fyrir frásögur þeirra af stórum fiskum, sem þeir hafa misst. Sannleikurinn er samt sá, að óvenju- lega stórir laxar missast ákaflega oft, einkum ef þeir taka flugu. Veiðarfæri og allur útbúnaður veiðimannsins miðast við hið algenga og venjulega. Sé áin vatnsmikil og botn ósléttur hefur stór fiskur og orkumikill margfalda mögu- leika umfram minni fisk til að losa sig. Einhverju sinni var ég á veiðum einn míns liðs. Áin var svo breið þar sem ég ætlaði að reyna, að ég náði ekki á líkleg- asta staðinn. Tók ég því bát, lagðist við 8 Veiðimaðurinn

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.