Mosfellspósturinn - 12.12.1980, Side 1
^Drekkið
Verður það fátið viðgangast, að taka muni heilan
áratug að lýsa upp Vesturlandsveginn
frá Reykjavík og í gegnum Mosfellssveitina?
Blaðið og
framtíðin
— leiðari bls. 6
Mosfellssveit
er enginn
svefnbær
Viðtal við
Jón á Reykjum
— bls. 4
Myndirfrá
húsráðenda-
ballinu
— bls. 3
Þarf að bíða eftir að slysin verði í myrkrinu?
Lýsiug Vestnrlandsvegar
kostar 145 miUjónir kr.
— sveitarstjóm, alþingismenn og Mosfellingar ættu að gera þetta öryggismál
að forgangskröfu sinni til ríkisins
Koldimmur Vesturlandsvegur-
inn á löngum vetrarmánuðum er
eitt mesta böl Mosfellinga. I
margra augum er dimmur vegur-
inn einn lielzti ókosturinn við að
búa í sveitarfélaginu. Verst er
þetta í byljóttum landsynningnum
þegar ljós bíla, sem á móti koma,
speglast í vatnsflaumi vegarins
þannig að útsýnið hverfur að kalla.
Mörg eru þau sekúndubrotin, sem
ökumenn aka að hálfu leyti eða
öllu í blindni og væri eitthvað ljós-
laust, dökkt eða dökkklætt á vegi
þeirra yrði árekstri ekki Krðað.
Oryggi manna og dýra á Vest-
urlandsveginum er núna langt fyr-
ir neðan það sem sómasamlegt get-
ur talizt. Hvorki sveitarstjórn, al-
þingismenn kjördæmisins, Mos-
fellingar né aðrir geta látið við-
gangast að það eigi e.t.v. að taka
heilan áratug til viðbótar að lýsa
þessa leið. Pað er algjör krafa Mos-
fellinga og enn fleiri höfuðborgar-
búa sem sækja vinnu sína til stór-
fyrirtækjanna Álafoss og Reykja-
lundar í Mosfellssveit, að þarna
verdi úr oætt og öryggi aukið.
Öryggið í umferðinni þarna er
marga morgna og mörg kvöld nán-
ast á núllpunkti. Þarf endilega að
bíða þangað til slysin verða?
Sveitarstjórn Mosfellshrepps
hefur margoft látið þann vilja sinn
í ljós og einlæga ósk að vegurinn
verði upplýstur. Sveitarstjórinn,
Jón Baldvinsson, lýsir því í viðtali
við M-póstinn í dag, hvernig áætl-
að er að lýsa smábúta þjóðvega í
þéttbýli Mosfellssveitar, sinn bút-
inn á hverju ári.
Haukur Pálmason, yíirverk-
fræðingur Rafmagnsveitu Reykja-
víkur, lýsir því einnig í viðtali við
Mosfellspóstinn í dag, að hver kíló-
metri lýsingar og krafizt er á slíkri
þjóðbraut sem Vesturlandsvegur-
inn er, kosti á núverandi verðlagi
22,5 milljónir. Vegurinn milli Ar-
bæjarvegar og Hlíðartúns þar sem
lýsing er nú komin, er 6,4 km. að
lýsa þennan vegarspotta allan
kostar því aðeins 145 milljonir.
Jafnfjölmennt sveitarfélag og,
Mosfellssveitin er orðin á kröfu á
að í þennan kostnað verði lagt.
Auk þess sækir fleira fólk atvinnu
sína hingað en héðan fer til at-
vinnu. Ekki þarf því blöðum unr að
fletta að um er að ræða mál sem
forgang á að hafa.
Hver einstakur Mosfellingur,
sveitarstjórn og alþingismenn
kjördæmisins ættu að gera þessa
úrbót að forgangskröfu um bættan
aðbúnað Mosfellinga.
— Sjá nánur víðtöl
a hls. 6