Mosfellspósturinn - 12.12.1980, Side 6

Mosfellspósturinn - 12.12.1980, Side 6
Útgefandi: Útgáfufélagið Búbót. Ritstjóri: Anna Bjamason. Útgáfa og hönnun: Olafur Geirsson. Ritstjóm og auglýsingar: Merkjateig 2, Mosfellssveit, sími 66142. Setning og umbrot: Leturval s.f., Dugguvogi 23, sími 33840. Prentun: Prentval s.f., Súðarvogi 7, sími 33885. LEXA HÁLSBINDI LEXA ULLARTREFLAR LEXA HERRASLAUFUR Sfmi 66280 Mosfellssveit ___________________♦fOSTumi Unnið að vegarlýsingu frá Hlíðartúni að Kaupfélaginu: Loks er aurinn fékkst fengust engir staurar — þingmennimir björguðu viðbótarfjárframlagi of seint „Auðvitað er það eðlilegast, að allur Vesturlandsvegurinn frá Höfðabakka og Suðurlandsvegar- mótum og allt í gegnum þéttbýli Mosfellssveitar verði lýstur upp. A nauðsyn þess hefur hreppsnefndin margoft lagt áherslu og því loka- takmarki verður að ná sem fyrst,” sagði Jón Baldvinsson, sveitar- stjóri í samtali við M-póstinn. ,,En til lýsingar vegarins þarf fjármagn og það er ekki auðsótt til ríkisins.” Jón sagði að gerð hefði verið áætlun um brýnustu áfanga í þess- um efnum og eru áfangarnir fjórir. 1. áfangi er lýsing Vesturlandsveg- ar frá Kaupfélaginu að Þver- holti. Þessi kafli er þegar upp- lýstur. 2. áfangi er kaflinn milli Hlíðar- túns g að Kaupfélaginu. Byrjað er á þessum kafla en honum varð ekki lokið í vetur. 3. áfangi er kaflinn frá Þverholti að Þingvallavegamótum. 4. áfangi er Reykjavegur (Hafra- vatnsvegur) frá Þverholti að Teigahverflnu. „Það átti svo sannarlega að ljúka við 2. áfanga áætlunarinnar í haust. Ákveðin fjárupphæð var ætluð til vegamála í kjördæminu og þegar þingmenn kjördæmisins gerðu tillögu um skiptingu fjárins komu 15 milljónir kr. til lýsingar Vesturlandsvegar. V'egagerðinni var falið að vinna verkið og gerði hún áætlanir þar um, fékk síðan Rafmagnsveitu Reykjavíkur til að sjá um það eftir gerðum teikning- um og áætlunum og RR fær síðan verktaka til framkvæmdanna. Þegar verkið var unnið í haust kom í ljós að fjárupphæðin var ekki næg til lýsingar á öllum kaflanum. Salóme Þorkelsdóttir. sá þingmað- ur kjördæmisins, sem í Mosfells- Jón Baldvinsson sveitarstjóri. sveit býr, fékk því framgengt með stuðningi annarra þingmanna kjördæmisins, að meira fé fékkst til lýsingarinnar. Þá brá svo við, að þegar það var fengið reyndust ekki til í landinu nægilega margir staur- ar til lýsingarinnar og ólýstur er því 500 metra vegarkafli í vestan- verðu Lágafellsklifi. Verður hann að bíða unz staurar fást,” sagði Jón. Mosfells-Pósturinn telur að mikill fengur sé að þeim staurum sem upp fengust fyrir þá litlu fjár- veitingu sem uþphaflega fékkst til lýsingar vegarins í vor. Þessi nýi lýsti kafli vegarins undirstrikar nauðsynina á upplýstum vegi allt til dyra Reykjavíkur. Yfirverkfræðingur Rafveitunnar segir: Lýsing Vesturlandsvegar ekkert stórvirki — en hver kílómetri kostar í dag 22,5 milljónir „Það er ekkert stórmál né lang- tímaverk að lýsa upp \'esturlands- veg á þeim 6,4 km kafla frá Höfða- bakkavegamótum að Hlíðartúni. En lýsing vega er nokkuð dýr. Hver staur í slíkri stefnu kostar lið- lega milljón krónur á núverandi verðlagi, eða með öðrum orðum: Hver kílómetri kostar 22,5 milljón- ir. Heildarkostnaður á áðurnefndri leið myndi í dag kosta 145 milljónir króna.” A þessa leið fórust Hauki Pálmasyni, yflrverkfræðingi hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur orð er M-pósturinn ræddi við hann. „Ég held að ég geti fullyrt það að þegar beiðnin kom til okkar fylgdi áætlun um nokkra staura Hlíðar- túnsmegin á þesum spotta og nokkra staura Kaupfélagsmegin á spottanum. Það var að minnsta kosti ekki Rafveitan, sem ákvað að vinna verkið á þennan hátt. Það var svo ekki fyrr en í septem- ber að beiðni kom um það að setja lýsingu einnig á þann kafla, sem fyrri áætlunin sem okkur barst náði ekki til. Þá brá svo við að allir staurar voru upp urnir, enda eru þeir dýrir og erfltt vik og eiga þá á lager,” sagði Haukur Pálmason. Gróöurhúslö v/Sigtún sími 36770

x

Mosfellspósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellspósturinn
https://timarit.is/publication/1781

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.