Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1980, Síða 2
Staóa aóalskipulags og fyrirhuguó
byggingarsvcBÓi
Eftirfarandi yfirlit gefur til kynna stððu aðalskipulags í þeim
8 sveitarfélögum sem aðild eiga að Skipulagsstofu höfuðborgar-
svæðisins og hvaða byggingarsvæði er fyrirhugað að taka í notkun
á næstunni. Ráðgert er að gefa út álíka yfirlit yfir framkvæmdir
þessara sveitarfélaga, eftir því sem tilefni gefst til. Mynd á
næstu síðu sýnir legu fyrirhugaðra byggingarsvæða.
KJALARNESHREPPUR
Kjalameshreppur var úrskurðaður skipulagsskyldur árið 196 3, samkv.
beiðni hreppsnefndar.
í Kjalameshreppi hefur verið gert deiliskipulag af þéttbýlishverfi
(1) í landi hreppsins á jörðinni Grund, skammt vestan Klébergsskóla
og félagsheimilisins Fólkvangs. Þetta skipulag var staðfest árið
1975.
\
ÍBÚÐARHVERFI VIÐ BERGVÍK - SKIPULAG RlKISINS
1 hverfinu í heild er gert ráð fyrir 154 íbúðxim, en í þeim hluta
sem búið er að undirbúa fyrir byggingar eru 40 einbýlishús og 11 rað-
hús. Þegar er búið að úthluta 34 einbýlishúsa- og 5 raðhúsalóðum,
en eftir eru 8 einbýlishúsa- og 5 raðhúsalóðir.
1 fyrsta byggingaráfanga eru 5 iðnaðarhúsalóðir, sem ekki hefur verið
úthlutað ennþá. Lóðimar eru að mestu tilbúnar til notkunar og eru
efst í hverfinu, meðfram Vesturlandsvegi.
1 sumar (1980) verður aðalgata hverfisins malbikuð, alls 412 m.
Götuljós hafa verið sett upp og verður aukið við þau í ár. Tenging
sjálfvirkra síma stendur yfir í hreppnum. Hverfið er á veitusvæði
Rafmagnsveitu Reykjavíkur.