Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1980, Blaðsíða 10

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1980, Blaðsíða 10
nokkur verkefni skipulagsstofunnar Mat á umhverfisáhrifum framkvæmda. (Environmental Impact Assessment). Á síðastliðnum áratug hafa menn í vaxandi mæli leitast við að meta og koma í veg fyrir neikvæð áhrif framkvæmda bæði á umhverfi manna og á íbúa viðkomandi svæða. Árið 1970 voru sett lög um þessi mál í Bandaríkjunum (National Environmental Policy Act). Síðan hefur það mat á umhverfisáhrifum framkvæmda sem lögin gera að skyldu verið tekið upp mjög víða um heim, enda verður að telja það algera forsendu fyrir flestum stórframkvæmdum. Á skipulagsstofunni er nú verið að vinna að athugun á því hvort og með hvaða hætti væri æskilegt að taka upp álíka vinnubrögð hér á landi. Náttúruve md í tilefni af fyrirhugaðri endurskoðun Náttúruverndarráðs á yfirliti um náttúruminjar og náttúruverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins hefur þeirri ábendingu verið komið á framfæri að æskilegt væri að skipta hverjum verndunarflokki eftir mikilvægi t.d. í 5 stig. Sem dæmi um þannig flokka mætti nefna varðveisluverð hraun eða fjörur, sem þá yrðu frekar flokkuð eftir ákveðnum stigum. Ennfremur hefur verið bent á að sennilega kæmi það hlutaðeigandi sveitar- félögum best að þetta verk væri unnið á kortgrunn í mælikvarða 1:10.000 sem þá yrði sambærilegur við önnur kortfærð gögn sveitarfélaganna í þeim mælikvarða. Kortagerð og skráning upplýsinga. Að undanförnu hafa átt sér stað töluverðar umræður um æskilega samræmingu á kortamælikvörðum og skráningu á nauðsynlegum upplýsingum fyrir skipulags vinnu á Höfuðborgarsvæðinu. Mjög mikið er nú þegar til af upplýsingum um t.d. núverandi og fyrirhugað skipulag, gróður, bergrunni, jarðveg, landa- og lóðamörk þessa svæðis, en töluvert skortir á að þessar upplýsingar séu tiltækar, þegar á þarf að halda. Á skipulagsstofunni er nú verið að gera yfirlitskort um núverandi og fyrirhugað skipulag þessa svæðis í mælikvarða 1:10.000 og til umræðu er að skrá ofangreindar upplýsingar og aðrar land- tengdar upplýsingar um þetta svæði í sama mælikvarða til þess að auðvelda samanburð. Þessar upplýsingar mætti t.d. skrá á glærur sem væru unnar á grunnkorti í ofangreindum mælikvarða á eftirfarandi hátt: aðalskipulagskort jarðvegsdýpi náttúruve rnd eignarhald ýmsar upplýsingar hnitmerkt grunnkort í m, 1:10.000

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.