Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1980, Blaðsíða 13

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1980, Blaðsíða 13
13 sölukynning- magnús kjartansson Tekinn hefur verið upp sá háttur að halda sölukynningu á verkum lista- manna sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu, á skipulagsstofunni að Hamraborg 7, Kópavogi. Nú stendur yfir kynning á málverkum og grafik Magnúsar Kjartanssonar. Magnús lauk stúdentsprófi 1969 og stundaði síðan nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands 1969-1972 og á Listaakademíu Kaupmannahafnar 1972- 1975. Hann hefur haldið þrjár einkasýningar í Reykjavík og tekið þátt í ótal samsýningum hérlendis og erlendis. Hlaut viðurkenningu á alþjóðlegri samsýningu ungra myndlistarmanna í Luxemborg 1972. Verk hans eru ma. í eigu Kópavogskaupstaðar, Reykjavíkurborgar, Listasafns íslands og Sveriges Allmanna Konstförening. Magnús hefur verið kennari við Myndlista- og handiðaskóla Islands siðan 1977. Eru opinberir aðilar, forráðamenn fyrirtækja og einstaklingar sem vilja kynna sér og / eða kaupa verk Magnúsar velkomnir á Skipulagsstofuna að Hamraborg 7. HAMRABORG SÍMÍ 45060 OFFSET FJÖLRITUN: LJÓSRIT! 'N, VÉLRITUN, KOPERING. Afgreiðslutími: mánudaga — föstudaga kl. 9.15 —16.00 nema fimmtudaga frá 9.15 — 18.00 Sparisjóður Kópavogs Digranesvegi 10 - Sími 41900

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.