Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1986, Qupperneq 8

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1986, Qupperneq 8
3<pJagsmál Eftir síðara stríð urðu asfalthúðaðar stálpípur algengar. Þetta voru ýmist valsaðar og rafsoðnar eða heildregnar stálpípur sem varðar voru gegn tæringu með asfalti utan sem innan. Að utan- verðu voru pípurnar auk þess vafðar milli asfaltlaga með striga, pappa eða síðar nælonstriga. Þetta var gert til þess að verja asfalthúðina hnjaski. Stálpíp- umar voru mun veggþynnri en pottpíp- umar og því léttari og var því unnt að hafa þær lengri, oftast 8-12 m. Asbest- pípur vom vinsælar á tímabili þar eð þær reyndust ódýrar, og ekki vom þá kunn heilsuspillandi áhrif asbestsins. Nokkuð hefur verið notað af forspennt- um steinsteyptum pípum í aðalæðar. Á síðari árum hafa komið fram svonefndar "ductil"-pípur, sem ég hefi leyft mér að nefna seigjámspípur. Þetta er í raun steinsteypujárn eins og potturinn og grafítblandað eins og hann. Hér er þó sá reginmunur á að grafítinu er þannig fyrir komið að það myndar kúlur í blöndunni en ekki flögur eins og í pottinum. Afleiðing þessa verður að seigjámspípumar verða seigar en ekki stökkar, þær geta bognað en hrökkva ekki, og jafnvel er unnt að rafsjóða þær, þótt varlega skyldi farið í þær sakir. Seigjárnspípurnar eru því veggþynnri og léttari en pottpípumar, en talið er að þær hafi sömu eiginleika gagnvart tæringu, þar eð grafítmagnið í blöndunni er svipað. Plast mun nú algengasta efnið í vatnsveitupípum. Pípumar hafa verið framleiddar á Reykjalundi í mörg ár og eru svo algengar að vart þarf að lýsa þeim hér. Plastið er talið mjög end- ingargott en er þó ekki gallalaust. Þar sem plastpípur em lagðar langa leiðir og vatnsnotkunin er ekki mikil þá vill koma plastbragð af vatninu. Þetta er hvimleitt og ekki hefur verið rann- sakað, svo vitað sé hvort það kann að hafa einhver áhrif á heilsu neytendanna. Að lokum skal minnst á venjulegar zinkhúðaðar vatnspípur sem á vatns- veitumáli hafa verið kallaðar galvan- iserað jám. Heimæðar húsa frá götuæð og inn fyrir vegg vom framan af nær eingöngu lagðar úr slíkum pípum. Menn höfðu þá trú að zinkhúðin verði þessar pípur gegn tæringu um alla framtíð og því mætti leggja þær í jörð óvarðar að öðm leyti. Slíkt var mikill misskilningur eins og síðar verður að vikið. Plastpípur hafa nú leyst galvan- iseraðar jámpípur af hólmi. Ekki verður farið mörgum orðum um samskeyti pípnanna. Áður hefur blý- þéttingum verið lýst. Samskonar þétt- ingar vom algengar á asfaltvörðum stál- pípum. Nú eru gúmmíþétt samskeyti orðin yfirgnæfandi og em af ýmsum gerðum, sem of langt mál yrði að lýsa út í æsar. Plastpípurnar eru bræddar eða soðnar saman á lagnarstað eða tengdar með sérstökum skrúfuðum eða boltuðum tengjum. Nokkuð hefur tíðkast að notað sé mismunandi efni í tengistykki þau er fylgja plastpípunum þ.e. annars vegar stykki úr léttmálmi eða áli og hins vegar stálboltar. í rökum jarðvegi hljóta að myndast galvanískir straumar við slíkar aðstæður með mikilli hættu á hraðri tæringu. Þess háttar tengi eru því stórlega varasöm. AUKNINCAR Þótt vatnsveita hafi verið sniðin vel við vöxt í upphafi kemur að því að stækka þarf veituna og auka það vatnsmagn sem hún veitir til bæjarins. Hér koma til ýmsar orsakir svo sem aukinn íbúafjöldi og umsvif framleiðslu- og iðngreina o.fi. Aukningarþörf lýsir sér oftast í því að bera fer á vatnsskorti í háttliggjandi hverum upp úr hádegi en á þeim tíma er venjulega mest vatns- notkun. Vatnsskorturinn ágerist og vatnsleysistíminn lengist ef ekkert er að gert. Tekið skal fram að slíkur vatnsskortur kann a.m.k. að hluta til að stafa af lekum á vatnsveitukefinu og einnig vegna loftpokasöfnunar á aðal- æðum er stafað getur af auknu þrýsti- falli við aukna notkun eða vegna þess að aðfærsluæð hefur verið lögð um lítillega mishæðótt land án þess að séð væri fyrir útloftun. Leiðir til úrbóta eru þrjár eftir að gengið hefur verið úr skugga um að skorturinn stafi ekki af stórfelldri bilun á vamsæðum. 1. Bygging vatnsgeymis til þess að anna þörfinni á mesta notkunar- tíma. 2. Bygging dælustöðvar til þess að t auka vatnsrennsli til bæjarins. 3. Lögn nýrrar aðalæðar frá vatnsbóli. 4. Endurbætur á leku dreifikerfi. Það byggist á aðstæðum og hag- kvæmni hvaða leið skal farin hverju sinni. í sumum tilvikum eru allar þessar leiðir famar eftir því sem þörf krefur t.d. hjá Vatnsveitu Reykjavíkur sbr. áðurnefnda grein í Sveitarstjómar- málum. VATNSNOTKUN OG VATNS- ÞpRF- Vatnsnotkun er oftlega mæld í lítram á íbúa á sólarhring. Þegar Vatnsveita Reykjavík var hönnuð í upphafi var «. þessi notkun áætluð 67,5 1/íbúa/ sólarhring. Notkun hefur aukist hröðum skrefum. Lengi vel var reiknað með að meðal heimilisnotkun mætti áætla 250 1/íbúa/sólarhring en nú virðist þessi tala vera orðin nokkuð hærri. Við þetta bætist iðnaðarnotkun, sem í stærri bæjum hækkar þessa meðalnotkun pr. c íbúa ekki veralega. Öðra máli kann að gegna í smærri sjávarþorpum úti á landi þar sem starfrækt era stór og vatnsfrek fiskvinnsluhús. Til þess að gera sér fulla grein fyrir þessum þáttum þarf að mæla vatns- notkunina, bæði í einstökum afmörk- uðum íbúðahverfum og í iðnfyrirtækj- unum. Að lokum þarf að mæla vatns- þörfina þ.e. það vatnsmagn, sem flutt , er til bæjarins. í Reykjavík er vatns- þörfin talin liggja á bilinu 7-800 1/íbúa/sólarhring. í Kópavogi er þessi tala nú um 450 1/íbúa/sólarhring. Dæmi eru þess að vatnsþörfin hafi farið upp í 1000 1/íbúa/sólarhring. Aug- ljóslega er hér nokkur mismunur á vatnsnotkun og vatnsþörf og sums staðar verulegur. Mismunurinn er það vatn, sem ekki nýtist heldur hripar út úr kerfinu yfir í holræsalagnirnar eða jarðveginn. Með öðrum orðum, það vatn, sem lekur út engum að gagni. Æskilegt er að mælingar á vatns- þörfinni séu gerðar með síritandi mælum, sem skrá vatnrennslið niður á línurit. Munur á rennsli dags og nætur < á að vera umtalsverður. Næturrennslið ætti að vera 4-5 sinnum minna en mesta dagrennsli. Ef munur á rennsli

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.