Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1986, Blaðsíða 13

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1986, Blaðsíða 13
13 ■■■^■^■^■■■■■■■■■■H^^HH^^^^^HHBBsRipjagsmál Birgir H. Sigurðsson, skipulagsfræðingur HVERFASKIPULAG - NÝ TEGUIMD SKIPULAGSÁÆTLANA Hér á landi eru einkum tvær tegundir skipulagsáætlana í notkun, aðalskipu- lag og deiliskipulag. Hlutverk aðal- skipulags er að sýna meginatriði stefnu- mörkunar í þróun byggðar, land- notkunar og umferðarkerfis. Samkvæmt skipulagslögum skal aðalskipulag móta ramma fyrir deiliskipulag og staðfestast af ráðheira. Hlutverk deiliskipulags er að gera nánari grein fyrir notkun lands, tilhög- un gatna, lóða, íbúðarhúsa, atvinnu- og þjónustuhúsnæðis, stofnana, leiksvæða og útivistarsvæða. Samkvæmt lögum þarf ekki að staðfesta deildiskipulag nema um sé að ræða nýtt deiliskipulag í þegar byggðu hverfi eða ef sveitarstjóm eða skipu- lagsstjórn óskar sérstaklega eftir stað- festingu. A Borgarskipulagi Reykjavíkur er nú unnið að nýju aðalskipulagi er nær til alls lögsagnarumdæmis sveitarfélags- ins. Mun framsetning aðalskipulagsins verða einfaldari en áður hefur tíðkast, lesmál stutt og hnitmiðað auk mikils myndefnis, bæði ljósmynda og skýring- armynda. Aðalskipulagið getur því aðeins tæpt á meginþáttum byggða- þróunar næstu 20 ára. Með einfaldari framsetningu eykst hættan á að hin lögboðnu tengsl aðalskipulags og deiliskipulags rofni. Aðalaskipulagið verður því ekki eins leiðbeinandi fyrir deiliskipulag og æski- legt er. Því var ákveðið að vinna nýtt skipulag, hverfaskipulag, sem verður millistig á milli aðalskipulags og deiliskipulags. Hefur borginni verið skipt í alls 9 ÞREP í GERÐ SKIPULAGSÁÆTLANA í REYKJAVÍK l.ÞREP AÐALSKIPULAG 2.ÞREP HVERFASKIPULAG 3.ÞREP DEILISKIPULAG 4.ÞREP SKIPULAG LÓÐA

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.