Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1986, Side 18

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1986, Side 18
18 sfcpuiagsmál Eftirfarandi mynd sýnir á einfaldan hátt hvemig verðgildi bygginga breytist í tímans rás. HH Q ►J 5 © W > Meðan á byggingu stendur (lína A-B) eykst verðgildi byggingar mjög ört. Eftir að byggingu lýkur eykst þetta verðgildi nokkuð (lína B-C) vegna endurbóta, vegna þess að umhverfið verður gróið og vegna fleiri atriða. Að þessum tíma liðnum fer byggingin að ganga úr sér, fyrst hægt (lína C-D) en síðan mun hraðar (lína D-E). Ef þess er gætt að endurnýja bygginguna á tímabilinu frá C til D er það oft ekki mikið mál, en verður því erfíðara og dýrara sem lengra líður frá punkti D. Mörg önnur atriði hafa áhrif á þetta ferli, m.a. herbergjaskipan og fyrir- komulag innandyra sem getur orðið úrelt mun fyrr, t.d. vegna félagslegra breytinga eða tækniþróunar. Allt eru þetta atriði sem þeir sem skipuleggja og hanna byggt umhverfi ættu að hafa í huga. Hönnuðir geta t.d. haft mjög mikil áhrif á það hve tíminn A-C eða A-D er langur, hvort heldur um er að ræða byggingarhluta, heilar byggingar eða önnur mannvirki. Þar sem um mjög örar breytingar er að ræða gæti verið rétt að stytta þennan tíma, auk þess sem fasteignasköttun gæti cinnig haft áhrif á þessi mál. Ef litið er á byggingar á höfuðborgar- svæðinu og viðhald og endurnýjun þeirra er rétt að vekja sérstaka athygli á tveimur atriðum í þcssu sambandi. Endurstofnverð allra bygginga á þessu svæði mun vera um 220.000 milljónir króna (heimildir: Fasteignamat ríkis- ins). Um 80% þessara bygginga eru byggð eftir stríð og eru því einhvers staðar á línunni B-C. Aætlað hefur verið að skynsamlegt sé að verja um 1/2% -1% af endurstofnverði bygginga að meðaltali til viðhalds á ári. Hér er því um að ræða upphæð sem gæti numið 1.000-2.000 milljónum króna á ári á þessu svæði. Æskilegt verður að telja að þeir sem skipuleggja og hann byggingar og önnur mannvirki á þessu svæði geri sér grein fyrir mikilvægi þessara mála og samræmi ákvarðanir um æskilegan end- ingartíma þessara mannvirkja eða tækja, ef þau eiga að koma að tilætl- uðum notum. í öðru lagi er rétt að vekja sérstaka athygli á því sem hér var minnst á að ofan, að mikill meirihluti mannvirkja á höfuðborgarsvæðinu er nú á ferlinu B-C. Það má því búast við að þau komist á punkt C og punkt D á svip- uðum tíma og að þá þurfi mjög veru- legt fjármagn til endumýjunar bygginga á þessu svæði. Þeim sem efast um mikilvægi þessa máls nægir að benda á önnur tæki sem við höfum þurft að endurnýja nýverið, nýsköpunartogara- flotann. Ef séð væri fram á verulega aukinn mannfjölda eða auknar tekjur á höfuð- borgarsvæðinu á komandi árum, væri hér eflaust ekki um mikið mál að ræða. Nú má hins vegar búast við því að fólksfjöldi á þessu svæði aukist óvem- lega á næstu áratugum, að fólki á atvinnualdri fækki, en fjöldi aldraðra aukist mjög verulega. Allt em þetta atriði sem rétt er að gefa sérstakan gaum, ef þau mannvirki sem við höfum byggt og emm að byggja eiga að reynast okkur þau tæki til fram- fara sem að er stefnt. Kópavogi 10.10.1986.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.