Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Blaðsíða 61

Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Blaðsíða 61
Efri mynd: Grunnmynd 1. hæðar. Neðri mynd: Snið og aksonometría. áratugarins, teiknað af Skarphéðni Jóhannssyni. Þessi hús eru mjög áþekk að stærð, en ólík í útliti, og er um 70 m. fjar- lægð á milli þeirra. I greinargerð með vinningstillögunni segir m.a.: Viðviljumí þessari tillögu gefa nýbyggingunni veglegan sess í umhverfi sínu í samræmi við hlutverk hennar. Samt sem áður er þess vandlega gætt að ganga í engu inn á umráðasvæði Gamla skóla í götumynd Eyrarlandsvegar eða að þrengja um of að hinu friðaða húsi. Við úrlausn þessa verkefnis er lögð áhersla á að allar byggingar Menntaskólans vinni saman og myndi eina heild, bæði hvað varðar innra skipulag og ytra útlit. Nemendur og kennarar eiga að geta ferðast hind'runarlaust milli allra staða innan skólans og verið í vissu um að þeir séu allan tímann í sama skólanum. I þessum tilgangi eru helstu samkomustaðir og aðalumferðarpunktar staðsettir miðsvæðis, en kennsluálmur- nar, þ.e. Gamli skóli og Möðruvellir, látnar standa sem útverðir skólans. Við skipulag lóðarinnar er göngustígurinn, sem liggur eftir endilangri lóð Menntaskólans, látinn halda sér og mynda ás, sem tengir saman vestur- og austurhluta lóðarinnar. Annar mikilvægur ás í þessari tillögu er gangur, sem tengir saman Gamla skóla og Möðruvelli, en við hann standa eða tengjast á annan hátt öll rými nýbyggingarinnar. Nýbyggingin er í raun tvær byggingar, aðalbygging og bóka- safn. Þær standa sitt hvorum megin við göngustíginn og myndast á milli þeirra torg, inngangstorg Menntaskólans. Bókasafnið er norðan við stíginn og hefur hluti trjákransins verið numinn brott og bókasafnið sett inn í staðinn. Því er snúið þannig að það stendur skakkt í bilinu og myndast með því spennandi samspil milli húss og garðs. Bókasafnið sjálft er á jarðhæð og snúa stórir gluggar inn í garðinn, sem við það verður hluti af lestrarumhverfi safnsins. I umsögn dómnefndar segir m.a.: Tillagan felur í sér einnar hæðar aðalbyggingu og tveggja hæða bókasafnsbyggingu með látlausu og stílhreinu yfirbragði. Innri rými eru fjölbreytt og tengingar innanhúss góðar og tengingar við önnur kennslu- hús ágætar og fella þau í eina starfræna heild. Gangar framan við kennslustofur eru rúmir og vistlegir. í bókasafni er opið milli lestrarsalar og vinnurýmis kennara sem telja verður ókost svo og legu skrifstofu bókavarðar. Vörulyfta við bóka- safnið er á röngum stað. í húsinu er auðvelt að uppfylla ákvæði um brunavamir, þ.á m. rýmingarleiðir. Tillagan felur í sér bestu lausnina að mati dómnefndar hvað varðar gott og vistlegt skólaumhverfi í víðasta skilningi. Alvarlegir annmarkar felast aftur á móti í því að fjarlægja þarf núverandi íþróttahús og skólinn að vera án húsnæðis fyrir þá starfsemi nema aðstaða verði sköpuð annars staðar. ■ 59
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Arkitektúr og skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.