Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Blaðsíða 12
MANNGERT
UMHVERFI
ÁHRIF UMHVERFIS Á LÍÐAN FÓLKS
ÁSLAUG BRYNJÓLFSDÓTTIR
fræðslustjóri
Þjálfa þarf
hreyfifærni barna.
Það er löngu staðreynd að umhverfið hefur mikil
áhrif á velferð og þroska einstaklingsins. Margir
andlegir og félagslegir eiginleikar fullþroska
manns hafa orðið fyrir miklum áhrifum frá þvt
umhverfi sem hann ólst upp í frá blautu bams-
beini.
Með umhverfi er átt við nánast allt sem í kringum okkur er. Hn
til að skilja betur við hvað er átt í þessum fyrirlestri, vil ég fyrst
nefna nokkra mismunandi þætti, sem þetta víðtæka hugtak
spannar.
I fyrsta lagi tölum við um náttúrlegt umhverfi, þá er átt við
náttúruna sjálfa, jörðina, himin oghafið, loftið sem við öndum
að okkur og allar hinar fjölbreytilegu lífverur. Það má vera
ljóst að hið náttúrlega umhverfi hefur áhrif á velferð mannsins
í ríkum mæli. í öðru lagi tölum við um manngert umhverfi og
eigum þá við það umhverfi sem maðurinn hefur skapað eða
umbreytt á einn eða annan máta, innan sem utan dyra.
Auk þess vil ég leyfa mér að nefna sérstaklega það umhverfi
semmennirnir sjálfirskapameðathöfnumsínum,þ.e.a.s. það
andrúmsloft sem maðurinn sjálfur skapar og myndast í sam-
skiptum manna í millum. Eiginlega má segja að þetta síðast-
nefnda hafi einna mest að segja varðandi áhrif umhverfis á
líðan fólks. Verum minnug þess sem stendur í Hávamálum,,
maður er manns gaman”.
Að sjálfsögðu er oftast samhengi milli allra þessara þriggja
þátta, þegar við hugum að vellíðan mannsins og þeir skarast
á ýmsa vegu. Þess vegna er kennsla um umhverfið mjög
mikilvæg og nauðsyn þess að vekja athygli og skilning allra á