Mosfellingur - 17.11.2022, Side 2

Mosfellingur - 17.11.2022, Side 2
Í þá gömlu góðu... Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is) MOSFELLSPÓSTURINN 1983 Héðan og þaðan Fréttin er nærri því 40 ára gömul. Mosfells- sveitin er að taka örum breytingum og ýmsar nýjungar að skjóta upp kollinum. Ein var sú að setja upp hraðahindranir og var sú fyrsta sett í Langatanga. Textinn frá íbúa í Tangahverfi fylgir og athugasemd ritstjóra. Skopteikningin sýnir svo afleiðingar og reynslu af því, sem þessi nýjung í bæjar- umferðinni hefur í för með sér. Enn er ekki vitað hver gerði myndina. Líklegast var að Pétur Baldvinsson í Lágholti 5 væri höfundur hennar. Eftir samtal við Pétur minnist hann þess ekki að hafa teiknað myndina. Vinsamlegast sendið upplýsingar ef einhver þekkir teiknarann. MOSFELLINGUR www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is Næsti Mosfellingur kemur út 8. desember Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is Ritstjórn: Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is Prentun: Landsprent. Upplag: 5.000 eintök. Dreifing: Afturelding. Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf. Próförk: Ingibjörg Valsdóttir ISSN 2547-8265 Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag. Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti. Að undanförnu hefur tökulið verið á ferðinni í Mosfellsbæ að taka upp nýja sjónvarpsþætti sem nefnast Afturelding. Hrikalega spennandi verkefni hjá Dóra DNA og félögum. Stórskotalið leikara kemur við sögu og söguþráðurinn forvitnilegur. Um er að ræða átta þætti sem frum- sýndir verða um páskana. Það er ekki við öðru að búast en að þættirnir verði mikil upplyfting fyrir ungmennafé- lagið okkar og bæjarfélagið í heild. Mikið tilhlökkunarefni. En fyrst eru það jólin, sem eru eftir rúman mánuð. Skreytingum fjölgar nú með hverjum deginum sem líður. Ekki veitir af í þessu skammdegi sem fram undan er. Jólagarðurinn við Hlégarð sló heldur betur í gegn í fyrra og verður leik- urinn endurtekinn í ár. Hugmyndin kom úr lýðræðisverkefninu Okkar Mosó. Stefnt er að því að lýsa upp garðinn um helgina enda hátíð ljóss og friðar handan við hornið. Ég hlakka svo til... Ég hlakka svo til... Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings www.isfugl.is 6 - Fréttir úr bæjarlífinu2 „Hraðahindrunin á Langatanga hefur orðið til þess að nýjar og áður óþekktar atvinnugreinar blómstra í Mosfellssveit“ voru skilaboðin sem við fengum send með þessari skemmtilegu teikningu. (MP1983)

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.