Mosfellingur - 17.11.2022, Page 14

Mosfellingur - 17.11.2022, Page 14
 - Fréttir úr bæjarlífinu14 Listasalur Mosfellsbæjar Litandi, litandi, litandi Góður svefn í íslenskum ullarfaðmi eykur vellíðan Íslenskar ullarsængur Fáanlegar á Lopidraumur.is Síðasta sýning ársins í Listasal Mosfells- bæjar er Litandi, litandi, litandi eftir Jón Sæmund Auðarson. Opnun er föstudaginn 18. nóvember kl. 16-18. Jón Sæmundur er kröftugur listamaður sem er bæði þekktur í heimi myndlistar og tónlistar. Viðfangsefni verka hans á sýning- unni eru andar en tengsl lífsins, dauðans og þess sem bíður handan dauðans hafa verið listamanninum hugleikin um langt skeið. Fyrir 12 árum byrjaði Jón Sæmundur að mála einn anda á striga í upphafi hverra tónleika með hljómsveit sinni Dead Skeletons. Þetta gerði hann til að undirbúa sig andlega fyrir tónleikana og komast yfir sviðsskrekk. Jón Sæmundur er enn að mála anda og nú ekki bara fyrir tónleika heldur hvenær sem andinn kemur yfir hann. Síðasti sýningardagur er 16. desember. Mikil kátína var á Bókmenntahlaðborði barnanna sem fór fram í bókasafninu laugardaginn 12. nóvember. Þrír höfundar komu í heimsókn, lásu upp úr nýjustu bókunum sínum og spjölluðu við krakkana. Gunnar Helgason kynnti bókina Alexander Daníel Hermann Dawidsson: Bannað að ljúga. Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir las upp úr tveimur bókum sínum, Héragerði og úr hinni skrautlegu Mamma kaka. Arndís Þórarinsdóttir sagði okkur frá fimleikabókinni Kollhnís. Upplesturinn var fjörugur og mikið hlegið. Að honum loknum var boðið upp á föndur í Fiskabúrinu, fjölnota rými safnsins, þar sem urðu til mörg jólaleg bókamerki sem ættu að nýtast vel við lestur jólabókanna í ár. Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna. Bókasafn Mosfellsbæjar Bókmenntahlaðborð barnanna rithöfundarnir ásamt nokkrum aðdáendum upplestur

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.