Víkurfréttir - 01.01.2023, Blaðsíða 8
Solla hefur verið með ljósmynda
stofu við Iðavelli frá árinu 2004.
Þar áður var hún að Hafnargötu
90 í mörg ár en fyrstu stofuna
sína opnaði hún í Ásbergshúsinu
að Hafnargötu 26 árið 1982. Það
má segja að Solla og Víkurfréttir
hafi átt samleið á upphafsárunum.
Solla stofnaði Nýmynd árið 1982 og
Víkurfréttir ehf. voru stofnaðar ári
síðar en Nýmynd sá um alla fram
köllun á ljósmyndum fyrir blaðið
á upphafsárunum. Auglýsingar frá
Nýmynd voru áberandi í Víkur
fréttum á þessum árum og ávallt
mátti sjá ný og ný andlit í auglýs
ingunum. Solla segir að samstarfið
hafi verið ánægjulegt, Víkurfréttir
fengu sína vikulegu framköllun á
svarthvítum myndum og hún gat
auglýst fyrirtækið sitt sem hún var
að koma á legg.
Aðspurð hvers vegna hún hafi
ákveðið að gerast ljósmyndari, þá
segist hún ekki vita ástæðuna. Hún
hafi sem unglingur fengið myndavél
sem heitir Diana í jólagjöf og fannst
það æði. „Þegar ég þurfti svo að
hugsa út í það hvað ég ætlaði að
verða þegar ég yrði stór varð ljós-
myndun fyrir valinu,“ segir Solla.
Hún fékk fljótlega vinnu hjá Heimi
Stígssyni, sem var ljósmyndarinn í
Keflavík. Sólveig var hjá Heimi í
ellefu ár. Hún segist hafa gaman af
fólki. Það voru alltaf ný andlit fyrir
framan myndavélina. Þá segist hún
alltaf hafa haft meira gaman af því
að vinna með svarthvítar myndir en
litmyndir.
Alltaf betra að mynda á
ljósmyndastofunni
Solla stofnaði Nýmynd 11. nóvember
1982 og fyrirtækið fagnaði því 40
ára afmæli seint á síðasta ári. Hún
segir að á fyrstu árunum hafi fjörið
verið meira, ef þannig mætti komast
að orði. Hún hafi farið víða til að taka
myndir. Henni hafi þó alltaf fundist
betra að taka myndir í stúdíóinu og
fundist hún ráða betur við verkefnin
þannig.
Ljósmyndarinn Sólveig hefur upp-
lifað miklar breytingar í sínu starfi
á þessum árum. Hún myndaði allt á
filmu en árið 2008 skipti hún yfir í
stafræna tækni. Hún gerði einnig allt
sjálf, nema að hún framkallaði ekki
litfilmur. Í myrkraherberginu gerði
hún allar prufur af filmum og allar
stækkanir á myndum.
Og núna ertu bara að pakka
saman?
„Já, núna er ég að hætta. Það er
komin hálf öld, er það ekki bara
ágætt?,“ spyr Solla á móti.
Á veggjum ljósmyndastofunnar
eru ýmsar myndir úr myndatökum
Sólveigar í gegnum áratugina. Hún
er spurð að því hvað sé erfiðast,
hvort fjölskyldumyndir séu erfiðari
en einstaklingsmyndir. Hún segir að
fyrst og fremst sé gaman að mynda
fólk. Það sé ekki kennt í ljósmynd-
anáminu að fá fólk til að brosa og
hver hafi sína aðferð til þess. Solla
hafi ekki notast við broshjálpartæki
eins og lærifaðir hennar, Heimir
Stígsson. Hann var með gervitennur
sem hann skellti á fingurnar til að fá
bros á andlit fólks.
Uppvaxtarárin mynduð á síma
og myndir ekki varðveittar
Það hafa orðið miklar breytingar í
áranna rás. Hér áður fyrr mættu öll
fermingarbörn í fermingarmynda-
töku og það sama átti við um brúð-
kaupsmyndir. Nú er miklu meira um
að fólk sé bara að smella af þessum
myndum á símana sína, sem taka
orðið stórfínar myndir. Foreldrar
mynda líka uppvaxtarár barnanna
sinna á símana en gæta svo ekki að
því að varðveita myndirnar. Solla
segir að hún hafi myndað fjölmargar
fjölskyldur árum saman og á tíma-
mótum í fjölskyldum. Það séu mikil-
vægar minningar að eiga.
Vinnan sem Solla vann áður í
myrkraherberginu við ljósmynda-
stækkarann er núna unnin í tölvunni.
Það er mikil breyting á vinnuháttum
en mikill misskilningur að tölvuvinna
sé eitthvað fljótlegri. Solla sagði það
drjúgt að fara í gegnum allar mynd-
irnar, velja þær bestu og vinna þær
fyrir útprentun.
„Í dag eru myndir lagaðar í tölvu
og auðvelt að fjarlægja bólur og
þess háttar. Þegar unnið var með
myndir á pappír voru blýantar,
sköfur og lakk á spraybrúsum þau
verkfæri sem notuð voru við mynd-
vinnsluna,“ segir hún og tekur undir
að stafræna byltingin sé mögnuð.
Sýslumaður tekur passamyndir
Þá varð mikil breyting á högum ljós-
myndara fyrir nokkrum árum þegar
sýslumannsembættin fóru sjálf að
taka myndir í vegabréf og ökuskír-
teini. Ljósmyndarar eru þó ennþá
að bjóða uppá passamyndatöku því
ennþá þarf myndir í ýmis skírteini og
aðgangskort. Þá fá ljósmyndararnir
í dag ennþá til sín í myndatöku ein-
staklinga sem starfsfólk sýslumanns
ræður ekki við að mynda, s.s. börn
sem eiga erfitt með að stilla sér upp
í myndabás sýslumannsins og fara að
þeim fyrirmælum sem þar eru gefin.
Á árum áður kom það oft í hlut
Sollu að bjarga myndatöku í bráða-
birgðavegabréf sem gefin voru út hjá
sýslumanni. Talsvert var um það á
sínum tíma en slík vegabréf eru ekki
gefin út lengur. Þá kom fulltrúi sýslu-
manns með einstaklingum í mynda-
töku og þessu var reddað.
Þegar þú horfið aftur í tímann, er
þá eitthvað eftirminnilegt?
„Já, já. Margt og mikið.“
Hafa nýgift brúðhjón nokkuð skilið
fyrir framan myndavélina?
„Nei, það hefur ekki gerst,“ segir
Solla og hlær með blaðamanni. Hún
bætir við að það hafi þó ýmislegt
spaugilegt gerst.
„Ég hef verið að fá fólk til að
kyssast fyrir framan myndavélina.
Hingað kom eldra par með upp-
komin börn og ég er að reyna að
hafa þetta eitthvað svona yndislegt
og spyr brúðgumann hvort hann vilji
ekki kyssa hana. Hann svarar bara
um hæl með „nei“ og segist bara geta
kysst hana heima. Ég var alveg að
deyja úr hlátri yfir þessu.“
Ennþá að vinna úr myndum
Það er alls ekki auðvelt fyrir ljós-
myndarann að hætta. Þó svo Solla
sé búin að loka stúdíóinu þá er hún
ennþá að vinna með myndir úr
myndatökum og fólk hefur ennþá að-
gang að henni með þær myndir sem
hún hefur tekið í gegnum tíðina, ef
það vantar myndir sem þegar hafa
verið teknar, hvort sem það eru
myndir af filmum eða úr stafrænu
safni.
Spurð hvað eigi svo að takast á
hendur nú þegar ljósmyndastofunni
hefur verið lokað, segir Solla vera
óljóst. Kannski ætli hún að fara í golf.
Það verði bara að koma í ljós.
Hætt eftir hálfa öld
sem ljósmyndari
Ljósmyndarinn
Sólveig Þórðardóttir
er að hætta sem ljós
myndari og hefur lokað
Nýmynd, ljósmyndastofu
sinni til 40 ára. Sjálf
hefur Sólveig verið ljós
myndari í fimmtíu og eitt
ár. Sjónvarpsmenn Víkur
frétta heimsóttu Sólveigu,
eða Sollu í Nýmynd, í síð
ustu viku eins og sjá mátti
í Suðurnesjamagasíni
síðasta fimmtudag.
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Sólveig Þórðardóttir í stúdíóinu sínu árið 1983 þegar ljósmyndastofan var að Hafnargötu 26.
Gömlu filmuvélarnar voru
stórar og fyrirferðarmiklar.
Vinnan í myrkraherberginu er í dag komin í tölvuna.
Solla myndar litla frænku
sína í stúdíóinu við Iðavelli.
8 // vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM