Víkurfréttir - 01.01.2023, Blaðsíða 7
Sölustaðir í Reykjanesbæ: Reykjanesapótek,
Apótekarinn, Lyfjaval Apótek Suðurnesja, Fríhöfnin
Afsláttur og apptilboð á Heilsu-
og lífsstílsdögum Nettó
Heilsu- og lífsstílsdagar Nettó hófust 26. janúar og standa yfir til 5. febrúar. Boðið er
upp á allt að 25% afslátt af margs konar vöruflokkum sem tengjast heilsu og lífsstíl.
Síðan verða sérstök apptilboð í boði fyrir notendur Samkaupa-appins.
Appdagatal með
tilboðssprengjum
Samkaupa-appið er orðið eitt af
stærstu vildarvinakerfum landsins.
Einfalt er að sækja það í AppStore
eða á Google Play og byrja að spara.
„Við hvetjum viðskiptavini til að
sækja appið, ef þeir hafa ekki gert
það nú þegar, og nota það, ekki bara
á Heilsudögum heldur í hvert skipti
sem þeir versla. Í hverri verslunar-
ferð fá notendur 2% af vöruverðinu
til baka sem inneign í appinu og
reglulega eru auglýst sérstök app-
tilboð þar sem veglegur afsláttur er
veittur af tilteknum vörum og skilar
hann sér einnig í formi inneignar,“ út-
skýrir Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir,
markaðsstjóri Nettó.
Viðskiptavinir Nettó þekkja
margir appdagatölin sem hafa notið
mikilla vinsælda fyrir jólin. Núna
verður sérstakt appdagatal á Heilsu-
og lífsstílsdögum með tveimur
spennandi tilboðum hvern dag sem
þeir standa yfir. Hægt er að kynna
sér tilboðin í Heilsublaðinu á netto.is.
Tilboðin gilda í öllum verslunum
Nettó um allt land og í netverslun á
netto.is
Mikið úrval af heilsu-
og lífsstílsvörum
Í takt við kröfur viðskiptavina um
heilsusamleg hráefni og aukna sam-
félagsábyrgð er úrval Nettó af heilsu-
og lífsstílsvörum sífellt að aukast.
Heilsu- og lífsstílsdagar eru kjörið
tækifæri til að kynna sér nýjungar
og gera góð kaup á vítamínum, fæðu-
bótarefnum, grænmeti og ávöxtum,
lífrænum vörum, veganvörum,
ketóvörum, heilsudrykkjum og
-stykkjum, barnavörum, umhverfis-
vænum hreinlætisvörum o.fl.
Heilsu- og lífsstílsdagar voru
fyrst haldnir árið 2011 og njóta þeir
mikilla vinsælda. Þeir eru haldnir
tvisvar á ári, í janúar og september,
og eru áminning fyrir marga um að
huga betur að heilsunni og setja sér
markmið um betri lífsstíl.
„Viðskiptavinir og starfsfólk taka
Heilsudögum fagnandi og það ríkir
alltaf mikil eftirvænting fyrir þeim,
enda eru þeir fyrir löngu orðnir
fastur liður. Þetta er kjörið tækifæri
fyrir fólk til að kynna sér nýjungar í
heilsu- og lífsstílstengdum vörum og
birgja sig upp af sínum uppáhalds-
vörum,“ segir Ingibjörg.
Hún minnir fólk á að fylgjast vel
með á Facebook-síðu Nettó því þar
verða skemmtilegir leikir með veg-
legum vinningum birtir og fjallað
verður um kynningar á heilsuvörum
sem fara fram í verslunum Nettó.
Rafrænt heilsublað
Í tengslum við Heilsu- og lífsstíls-
daga Nettó kemur út að vanda veg-
legt heilsublað en í ár verður það
eingöngu rafrænt. Hægt er að lesa
það á netto.is.
Blaðið er stútfullt af áhugaverðum
greinum um heilsusamlegan lífsstíl,
girnilegum uppskriftum og auglýs-
ingum á heilsuvörum. „Þar er hægt
að finna út hvaða vörur eru á tilboði
og bendum við sérstaklega á app-
dagatalið fremst í blaðinu þar sem
fram kemur hvaða vörur verða á
appslætti hvern dag fyrir sig,“ segir
Ingibjörg.
Meðal viðmælenda eru Ómar
Ingi Magnússon, landsliðsmaður í
handbolta og Íþróttamaður ársins,
Kristjana Steingrímsdóttir, heilsu-
kokkur, Ragga nagli, sálfræðingur,
Anton Sveinn McKee, sundmaður,
og Guðlaug Edda Hannesdóttir, þrí-
þrautakona. Auk þeirra eru ýmsir
aðrir íþróttakappar, þjálfarar, mat-
gæðingar og sérfræðingar um nær-
ingarefni teknir tali. Í blaðinu er
einnig gnægð girnilegra uppskrifta.
„Við hvetjum viðskiptavini til að
kynna sér blaðið og skipuleggja inn-
kaupin á Heilsu- og lífsstílsdögum
vel,“ segir Ingibjörg. „Tökum glöð
á móti nýju ári og njótum alls þess
besta sem lífið hefur upp á að bjóða!“
Alvarlega gengið fram hjá einu af
flaggskipum Reykjanesbæjar
Guðbergur Ingólfur Reyn-
isson segir í bókun sem hann
lagði fram á fundi umhverfis-
og skipulagsráðs að alvarlega
sé gengið fram hjá einu af
flaggskipum Reykjanesbæjar,
íþróttum, í drögum að mark-
aðsstefnu Reykjanesbæjar.
Á fundi umhverfis- og skipulags-
ráðs Reykjanesbæjar var tekin fyrir
ósk menningar- og atvinnuráðs um
umsögn við drög að markaðsstefnu
Reykjanesbæjar.
„Í drögum að markaðsstefnu
Reykjanesbæjar eru settar fram
„Stoðir sem eru settar í fókus“ en
þær eru þrjár samkvæmt framlagðri
tillögu: Skapandi greinar (menningin,
söfnin, skapandi íbúar og skólarnir),
Nýsköpun og Náttúran.
Okkur í Sjálfstæðisflokknum
finnst sérstakt að þrátt fyrir að
á öðrum stað í stefnunni
sé rætt um íþróttabæinn
Reykjanesbæ sé ekki orð
um íþróttir sem meginstoð
sveitarfélagsins.
Í stefnunni segir að þessar
stoðir séu settar fram annars
vegar byggðar á styrkleikum
bæjarfélagsins og hins vegar á þeim
þáttum sem teljast mikilvægastir
til að efla ímynd bæjarins, eins og
stendur í stefnunni.
Okkur í Sjálfstæðisflokki finnst al-
varlega gengið fram hjá einu af flagg-
skipum Reykjanesbæjar, íþróttum, í
þessum drögum.“
Umhverfis- og skipulagsráð lýsti á
fundinum yfir ánægju með drög að
markaðsstefnu Reykjanesbæjar sem
er vel undirbyggð, ítarleg og getur
nýst sem mikilvægt tæki til ímyndar-
styrkingar fyrir sveitarfélagið.
Hvatt til þátttöku í Lífshlaupinu
Lýðheilsuráð Reykjanesbæjar
skorar á íbúa, stofnanir og fyrir-
tæki að vera með í Lífshlaupinu
2023, sem hefst 1. febrúar næst-
komandi.
Kynning á verkefninu og
skráning fara fram á slóðinni
lifshlaupid.is og eru bæjarbúar
hvattir til að taka þátt og fá alla
fjölskylduna með sér í verkefnið.
Þakkir frá lýðheilsuráði vegna gönguskíðabrauta
Lýðheilsuráð Reykjanesbæjar færir þakkir til þeirra sjálfboðaliða sem
stóðu að göngusporum í Leiru og Ásbrú. „Mikilvægt er þegar litið er til
framtíðar að skapa aðstöðu sem miðar að aukinni hreyfingu enda hreyf-
ingarleysi ein helsta ógn tuttugustu og fyrstu aldarinnar, einnig er mikil-
vægt að bjóða upp á sem fjölbreyttasta afþreyingu til að höfða til breiðari
hóps íbúa Reykjanesbæjar,“ segir í þökkum ráðsins.
Takmörkuð þjónusta á hluta innritunar-
borða í flugstöðinni vegna framkvæmda
Framkvæmdir við töskufæribönd aftan við innritunarborð í brottfararsal
flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli hófust í þessari viku og standa fram
í apríl. Framkvæmdirnar eru liður í endurbótum á töskuflokkunar og inn
ritunarkerfi í flugstöðinni sem nú standa yfir og hafa staðið yfir síðastliðin
ár. Breytingarnar munu tryggja að kerfið uppfylli þær alþjóðlegu kröfur
sem gerðar eru til þess.
Farþegar munu verða varir við
breytta starfsemi á innritunar-
borðum 25–42 í brottfararsal flug-
stöðvarinnar þegar þeir innrita sig
þar í flug en ekki verður hægt að
skila af sér töskum á þeim borðum.
Farþegum verður þá bent á að fara
á annað innritunarborð með tösk-
urnar sem verður sérstaklega tekið
frá til töskumóttöku. Farþegar eru
hvattir til að hafa það í huga fyrir
brottför að framkvæmdirnar gætu
hægt á innritun við þau borð sem
um ræðir. Önnur innritunarborð í
brottfararsalnum verða starfrækt í
óbreyttri mynd.
Upplýsingar verða á skjáum í
salnum um hvernig farþegum beri að
haga innritun við borðin og starfs-
fólk flugvallarins boðið og búið að
aðstoða fólk ef þörf er á. Þá verða
innritunarborð í einhverjum til-
vikum opnuð fyrr en vanalega og þá
munu flugfélög upplýsa farþega sína
um það.
„Breytingarnar við farangur-
skerfið er liður í heildstæðum fram-
kvæmdum í flugstöðinni á Keflavík-
urflugvelli,“ segir Maren Lind Más-
dóttir, forstöðumaður mannvirkja
og innviða hjá Isavia. „Þetta verk-
efni og önnur sem hefjast á næstu
mánuðum hafa m.a. það markmið
að bæta enn frekar upplifun farþega
á flugvellinum og efla þjónustu við
þá. Samhliða breytingum á farangur-
skerfinu hafa verið settar upp nýjar
sjálfsþjónustuleiðir, bæði fyrir inn-
ritun og afhendingu á töskum. Ég
vona því að farþegar nýti tækifærið
við þessar aðstæður og prófi sjálfs-
þjónustuleiðirnar. Fjölmörg flugfélög
bjóða nú upp á möguleikann á sjálf-
innritun og höfum við séð mikinn
mun á biðtíma farþega þegar slíkar
þjónustuleiðir eru notaðar.“
vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM // 7