Víkurfréttir - 01.01.2023, Page 7

Víkurfréttir - 01.01.2023, Page 7
Sölustaðir í Reykjanesbæ: Reykjanesapótek, Apótekarinn, Lyfjaval Apótek Suðurnesja, Fríhöfnin Afsláttur og apptilboð á Heilsu- og lífsstílsdögum Nettó Heilsu- og lífsstílsdagar Nettó hófust 26. janúar og standa yfir til 5. febrúar. Boðið er upp á allt að 25% afslátt af margs konar vöruflokkum sem tengjast heilsu og lífsstíl. Síðan verða sérstök apptilboð í boði fyrir notendur Samkaupa-appins. Appdagatal með tilboðssprengjum Samkaupa-appið er orðið eitt af stærstu vildarvinakerfum landsins. Einfalt er að sækja það í AppStore eða á Google Play og byrja að spara. „Við hvetjum viðskiptavini til að sækja appið, ef þeir hafa ekki gert það nú þegar, og nota það, ekki bara á Heilsudögum heldur í hvert skipti sem þeir versla. Í hverri verslunar- ferð fá notendur 2% af vöruverðinu til baka sem inneign í appinu og reglulega eru auglýst sérstök app- tilboð þar sem veglegur afsláttur er veittur af tilteknum vörum og skilar hann sér einnig í formi inneignar,“ út- skýrir Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir, markaðsstjóri Nettó. Viðskiptavinir Nettó þekkja margir appdagatölin sem hafa notið mikilla vinsælda fyrir jólin. Núna verður sérstakt appdagatal á Heilsu- og lífsstílsdögum með tveimur spennandi tilboðum hvern dag sem þeir standa yfir. Hægt er að kynna sér tilboðin í Heilsublaðinu á netto.is. Tilboðin gilda í öllum verslunum Nettó um allt land og í netverslun á netto.is Mikið úrval af heilsu- og lífsstílsvörum Í takt við kröfur viðskiptavina um heilsusamleg hráefni og aukna sam- félagsábyrgð er úrval Nettó af heilsu- og lífsstílsvörum sífellt að aukast. Heilsu- og lífsstílsdagar eru kjörið tækifæri til að kynna sér nýjungar og gera góð kaup á vítamínum, fæðu- bótarefnum, grænmeti og ávöxtum, lífrænum vörum, veganvörum, ketóvörum, heilsudrykkjum og -stykkjum, barnavörum, umhverfis- vænum hreinlætisvörum o.fl. Heilsu- og lífsstílsdagar voru fyrst haldnir árið 2011 og njóta þeir mikilla vinsælda. Þeir eru haldnir tvisvar á ári, í janúar og september, og eru áminning fyrir marga um að huga betur að heilsunni og setja sér markmið um betri lífsstíl. „Viðskiptavinir og starfsfólk taka Heilsudögum fagnandi og það ríkir alltaf mikil eftirvænting fyrir þeim, enda eru þeir fyrir löngu orðnir fastur liður. Þetta er kjörið tækifæri fyrir fólk til að kynna sér nýjungar í heilsu- og lífsstílstengdum vörum og birgja sig upp af sínum uppáhalds- vörum,“ segir Ingibjörg. Hún minnir fólk á að fylgjast vel með á Facebook-síðu Nettó því þar verða skemmtilegir leikir með veg- legum vinningum birtir og fjallað verður um kynningar á heilsuvörum sem fara fram í verslunum Nettó. Rafrænt heilsublað Í tengslum við Heilsu- og lífsstíls- daga Nettó kemur út að vanda veg- legt heilsublað en í ár verður það eingöngu rafrænt. Hægt er að lesa það á netto.is. Blaðið er stútfullt af áhugaverðum greinum um heilsusamlegan lífsstíl, girnilegum uppskriftum og auglýs- ingum á heilsuvörum. „Þar er hægt að finna út hvaða vörur eru á tilboði og bendum við sérstaklega á app- dagatalið fremst í blaðinu þar sem fram kemur hvaða vörur verða á appslætti hvern dag fyrir sig,“ segir Ingibjörg. Meðal viðmælenda eru Ómar Ingi Magnússon, landsliðsmaður í handbolta og Íþróttamaður ársins, Kristjana Steingrímsdóttir, heilsu- kokkur, Ragga nagli, sálfræðingur, Anton Sveinn McKee, sundmaður, og Guðlaug Edda Hannesdóttir, þrí- þrautakona. Auk þeirra eru ýmsir aðrir íþróttakappar, þjálfarar, mat- gæðingar og sérfræðingar um nær- ingarefni teknir tali. Í blaðinu er einnig gnægð girnilegra uppskrifta. „Við hvetjum viðskiptavini til að kynna sér blaðið og skipuleggja inn- kaupin á Heilsu- og lífsstílsdögum vel,“ segir Ingibjörg. „Tökum glöð á móti nýju ári og njótum alls þess besta sem lífið hefur upp á að bjóða!“ Alvarlega gengið fram hjá einu af flaggskipum Reykjanesbæjar Guðbergur Ingólfur Reyn- isson segir í bókun sem hann lagði fram á fundi umhverfis- og skipulagsráðs að alvarlega sé gengið fram hjá einu af flaggskipum Reykjanesbæjar, íþróttum, í drögum að mark- aðsstefnu Reykjanesbæjar. Á fundi umhverfis- og skipulags- ráðs Reykjanesbæjar var tekin fyrir ósk menningar- og atvinnuráðs um umsögn við drög að markaðsstefnu Reykjanesbæjar. „Í drögum að markaðsstefnu Reykjanesbæjar eru settar fram „Stoðir sem eru settar í fókus“ en þær eru þrjár samkvæmt framlagðri tillögu: Skapandi greinar (menningin, söfnin, skapandi íbúar og skólarnir), Nýsköpun og Náttúran. Okkur í Sjálfstæðisflokknum finnst sérstakt að þrátt fyrir að á öðrum stað í stefnunni sé rætt um íþróttabæinn Reykjanesbæ sé ekki orð um íþróttir sem meginstoð sveitarfélagsins. Í stefnunni segir að þessar stoðir séu settar fram annars vegar byggðar á styrkleikum bæjarfélagsins og hins vegar á þeim þáttum sem teljast mikilvægastir til að efla ímynd bæjarins, eins og stendur í stefnunni. Okkur í Sjálfstæðisflokki finnst al- varlega gengið fram hjá einu af flagg- skipum Reykjanesbæjar, íþróttum, í þessum drögum.“ Umhverfis- og skipulagsráð lýsti á fundinum yfir ánægju með drög að markaðsstefnu Reykjanesbæjar sem er vel undirbyggð, ítarleg og getur nýst sem mikilvægt tæki til ímyndar- styrkingar fyrir sveitarfélagið. Hvatt til þátttöku í Lífshlaupinu Lýðheilsuráð Reykjanesbæjar skorar á íbúa, stofnanir og fyrir- tæki að vera með í Lífshlaupinu 2023, sem hefst 1. febrúar næst- komandi. Kynning á verkefninu og skráning fara fram á slóðinni lifshlaupid.is og eru bæjarbúar hvattir til að taka þátt og fá alla fjölskylduna með sér í verkefnið. Þakkir frá lýðheilsuráði vegna gönguskíðabrauta Lýðheilsuráð Reykjanesbæjar færir þakkir til þeirra sjálfboðaliða sem stóðu að göngusporum í Leiru og Ásbrú. „Mikilvægt er þegar litið er til framtíðar að skapa aðstöðu sem miðar að aukinni hreyfingu enda hreyf- ingarleysi ein helsta ógn tuttugustu og fyrstu aldarinnar, einnig er mikil- vægt að bjóða upp á sem fjölbreyttasta afþreyingu til að höfða til breiðari hóps íbúa Reykjanesbæjar,“ segir í þökkum ráðsins. Takmörkuð þjónusta á hluta innritunar- borða í flugstöðinni vegna framkvæmda Framkvæmdir við töskufæribönd aftan við innritunarborð í brottfararsal flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli hófust í þessari viku og standa fram í apríl. Framkvæmdirnar eru liður í endurbótum á töskuflokkunar­ og inn­ ritunarkerfi í flugstöðinni sem nú standa yfir og hafa staðið yfir síðastliðin ár. Breytingarnar munu tryggja að kerfið uppfylli þær alþjóðlegu kröfur sem gerðar eru til þess. Farþegar munu verða varir við breytta starfsemi á innritunar- borðum 25–42 í brottfararsal flug- stöðvarinnar þegar þeir innrita sig þar í flug en ekki verður hægt að skila af sér töskum á þeim borðum. Farþegum verður þá bent á að fara á annað innritunarborð með tösk- urnar sem verður sérstaklega tekið frá til töskumóttöku. Farþegar eru hvattir til að hafa það í huga fyrir brottför að framkvæmdirnar gætu hægt á innritun við þau borð sem um ræðir. Önnur innritunarborð í brottfararsalnum verða starfrækt í óbreyttri mynd. Upplýsingar verða á skjáum í salnum um hvernig farþegum beri að haga innritun við borðin og starfs- fólk flugvallarins boðið og búið að aðstoða fólk ef þörf er á. Þá verða innritunarborð í einhverjum til- vikum opnuð fyrr en vanalega og þá munu flugfélög upplýsa farþega sína um það. „Breytingarnar við farangur- skerfið er liður í heildstæðum fram- kvæmdum í flugstöðinni á Keflavík- urflugvelli,“ segir Maren Lind Más- dóttir, forstöðumaður mannvirkja og innviða hjá Isavia. „Þetta verk- efni og önnur sem hefjast á næstu mánuðum hafa m.a. það markmið að bæta enn frekar upplifun farþega á flugvellinum og efla þjónustu við þá. Samhliða breytingum á farangur- skerfinu hafa verið settar upp nýjar sjálfsþjónustuleiðir, bæði fyrir inn- ritun og afhendingu á töskum. Ég vona því að farþegar nýti tækifærið við þessar aðstæður og prófi sjálfs- þjónustuleiðirnar. Fjölmörg flugfélög bjóða nú upp á möguleikann á sjálf- innritun og höfum við séð mikinn mun á biðtíma farþega þegar slíkar þjónustuleiðir eru notaðar.“ vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM // 7

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.