Víkurfréttir - 01.01.2023, Blaðsíða 11

Víkurfréttir - 01.01.2023, Blaðsíða 11
Ert þú 60+ og vilt starfa með okkur í Félagi eldri borgara á Suðurnesjum? Vetrarstarfið komið á fulla ferð og ætti hver og einn að geta fundið eitthvað við sitt hæfi til að létta sér lund. Á Nesvöllum er boðið upp á ýmislegt sér til dægrastytt- ingar svo sem: Mánudaga kl. 13.30 Brids Þriðjudaga kl. 13.30 Bingó Miðvikudaga kl. 13.30 Spilavist Fimmtudaga kl. 19.30 Bingó Föstudaga kl. 14.00 Ýmis skemmtidagskrá. Auk þess er boðið upp á leikhúsferðir, vor- og haustferðir um landið og ýmislegt annað sem gleður og kætir. Meðal annars: Glervinnslu, postulínsmálun og ýmislegt handverk, dans, boccia, gönguhópa, billjard, sundleikfimi og leikfimi. Þegar aldurinn er farinn að nálgast efri ár er upplagt að spyrja sig hvað vil ég gera og hvernig vil ég eyða mínu ævikvöldi. Allir þurfa félagsskap og að umgangast annað fólk. Við í Félagi eldri borgara bjóðum þig velkomin til okkar. Til að gerast félagi þá er best að senda póst á netfangið: gjaldkerifebs@simnet.is Með upplýsingum um nafn. kennitölu og heimilisfang, eða í símanúmer hjá Sigurbjörgu í síma 782-9661. Að lokum vil ég biðja þá sem hafa skipt um heimilisfang að tilkynna það svo þau fái ný gögn þegar þau koma út, á netfangið hér fyrir ofan. Guðrún Eyjólfssóttir, formaður Félags eldri borgara á Suðurnesjum. Það var kátt á hjalla í Grindavík laugardaginn 28. janúar en þá var loksins hægt að halda þorra- blót. Sökum ásóknar dugði gamla íþróttahúsið ekki og því var blótið haldið í fyrsta sinn í nýja salnum, HS Orku-höllinni. Veislustjórn var í öruggum höndum Gísla Einars- sonar, Lalli töframaður sýndi listir sínar, Sílamávarnir fluttu nokkur lög en hljómsveitin er eingöngu skipuð meðlimum þorrablótsnefndarinnar. Tveir meðlima, Hávarður Gunn- arsson og Bogi Rafn Einarsson, sáu um fjöldasöng en rúsínan í pylus- endanum var hið rómaða skaup- myndband þorrablótsnefndarinnar. Það má nánast ennþá heyra hlátra- sköllin. Kvöldinu lauk svo með dans- leik hinnar frábæru hljómsveitar Stuðlabandsins og var varla þurr þráður á neinum þegar haldið var heim á leið að kvöldi loknu. Hávarður Gunn- arsson er einn meðlima þorra- blótsnefndarinnar. „ Þ að e r m i k i l ánægja með blótið sem stækkaði tals- vert frá því að við gátum haldið það síðast en vonandi fengu allir miða sem vildu fá miða. Við í nefnd- inni slökum okkur aðeins núna en samt, maður er strax með eyru og augu opin fyrir nýjum sketsum en hópurinn sem myndar nefndina vinnur einstaklega vel saman. Við erum orðin ansi rúteneruð í þessu og núna förum við yfir alla þætti blótsins, hvað gekk vel og hvað hefði betur mátt fara,” sagði Hávarður. Meðfylgjandi myndir tók Ingibergur Þór Jónasson. Hlátrasköllin við myndbandinu heyrast nánast ennþáÞorrablót Grindvíkinga haldið með pompi og prakt Aukinn umferðarþungi vegna pökkunar á eldislaxi Umferð vöruflutningabíla og lyftara mun aukast töluvert í kringum vinnsluhús Vísis við Hafnargötu 18 í Grindavík næstu vikur. Vísir hefur tekið að sér nýtt verkefni við pökkun á eldislaxi og vegna þess mun aukinn umferðarþungi liggja um vinnsluhúsið. Áætlað er að verkefnið muni taka fjórar til sex vikur. Vinnsluhúsið er staðsett á Hafnar- götu 18, á milli Ránargötu og Selja- bótar austan við saltfiskvinnslu Vísis og gegnt slökkvistöðinni í Grindavík. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi á svæðinu. Tvær milljónir í ljósmynda- sýningu utanhúss Bæjarráð Grindavíkur hefur sam­ þykkt að leggja til við bæjarstjórn tveggja milljóna króna viðauka á rekstrareininguna Viðburðardag­ skrá/menningarvika vegna ljós­ myndasýningar utanhúss. Þetta kemur fram í nýjustu fundargerð bæjarráðs Grindavíkur. Þar kemur fram að sviðsstjóri frístunda­ og menningarsviðs hafi setið fundinn undir þessum dagskrárlið og að Helga Dís Jakobsdóttir hafi jafn­ framt vikið af fundi við umræður og afgreiðslu málsins. Öflugasti jarðskjálfti síðasta árs var 5,4 stig í Grindavík Yfir 36 þúsund jarðskjálftar hafa verið staðsettir á Íslandi árið 2022, samanborið við rúmlega 50 þúsund árið áður. Veðurstofa Ís­ lands greinir frá þessu. Stærsti skjálftinn varð þann 31. júlí, um 2 km norðaustur af Grindavík, og var hann sá öflugasti sem fundist hefur í Grindavík síðan umbrotin á Reykjanesskaga hófust árið 2020. Sá skjálfti mældist 5,4 stig. Fjölmargir skjálftar urðu á Reykja- nesskaga í tengslum við kvikuinn- skot við Fagradalsfjall í lok júlí. Í kjölfar skjálftahrinu í lok júlí braust út eldgos í Meradölum 3. ágúst en gosið stóð í um þrjár vikur. Séð yfir byggðina í Grindavík sem jarðskjálftar hafa ítrekað verið að hrista. Sigurbjörn Daði Dagbjartsson stendur vaktina fyrir Víkurfréttir í Grindavík. Ef þú vilt koma á framfæri efni eða ert með ábendingu um áhugavert efni sem á erindi við miðla Víkurfrétta, þá endilega hafðu samband í gegnum póstfangið sigurbjorn@vf.is VÍKURFRÉTTIR vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM // 11

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.