Víkurfréttir - 22.02.2023, Blaðsíða 14
Það var talsvert gagnrýnt að
Birna hafi ekki verið valin í lands-
liðshópinn að þessu sinni en hún
hefur átt flott tímabil og er næst-
stigahæst af íslensku leikmönnum
deildarinnar. Reyndar kom svo í
ljós að Birna hafði ekki gefið kost
á sér í liðið, það lá því beinast við
að spyrja hana: Af hverju hverju
gafstu ekki kost á þér?
„Ég fékk skilaboð frá Körfuknatt-
leiksambandinu um að ég væri ekki
í tólf manna hópi, væri sú þrett-
ánda eða fjórtánda – þannig að ég
þakkaði bara gott boð en sagðist
ekki gefa kost á mér í þetta skipti.“
Birnu f innst tímabilið hafa
gengið vel þótt vissulega hafi þær
átt nokkra upp og niður leiki. „Það
er búið að vera ótrúlega gaman
hjá okkur og vonandi náum við að
halda því áfram. Andinn í hópnum
er mjög góður og við erum allar
góðar vinkonur, það skiptir mjög
miklu máli þegar verið er að spila
svona langt tímabil – að það sé
góður andi og að við náum allar vel
saman. Ekki bara inn á vellinum
heldur líka utan hans.“
Hvað finnst þér um þína frammi-
stöðu í vetur?
„Jú, heilt yfir er ég mjög ánægð
að vera komin heim og að spila
heima. Það tók smá stund að detta
inn í þetta, finna taktinn, en mér
finnst það alveg vera að koma.
Ég er búin að eiga nokkra lélega
leiki undanfarið en maður getur
ekki alltaf spilað fullkomna leiki.
Ég reyni bara að einbeita mér að
næsta verkefni.“
Þú hefur nú bætt tölfræðina
töluvert frá því að þú lékst hérna
heima síðast [var með 9,4 stig
að meðaltali í leik og 3,4 fráköst
árið 2019 en er nú með 15,1 stig
og 4,1 fráköst].
„Já, ég er náttúrlega orðin aðeins
eldri og kannski reyndari í þessum
leik,“ segir Birna og hlær.
Hrikalega erfitt
Við vindum nú okkar kvæði í
kross og spyrjum Birnu hvernig
henni hafi fundist að fara út í
nám.
„Það var hrikalega erfitt en ótrú-
lega skemmtilegt og lærdómsríkt,“
segir hún. „Ég óx mjög mikið sem
leikmaður og manneskja á þessum
þremur árum sem ég var úti. Ég sé
eiginlega ekki eftir neinu.“
Birna fór fyrst til Arizona en
skipti yfir til Binghamton í New
York-fylki. „Það var mjög stórt
stökk að flytja héðan og til Arizona,
í raun mun stærra stökk en ég gerði
ráð fyrir – en ég fílaði mig töluvert
betur í Binghamton.
Í Arizona var rosalegt prógram
og ég lærði ótrúlega margt á þessu
ári þar. Ég spilaði ekki mikið fyrsta
árið, eiginlega ekkert fyrr en undir
lok tímabilsins, en þvílík reynsla
sem ég öðlaðist á að vera í þessu
liði. Ótrúlega gaman að vera að
æfa með þessum stelpum, tvær
þeirra eru einmitt komnar í WNBA
[bandarísku atvinnumannadeild
kvenna]. Eins erfitt og það ár var
þá sé ég það eftir á hvað ég lærði
mikið – hvað þetta var gefandi og
skemmtilegt þrátt fyrir allar erfiðu
stundirnar.“
Birna segir að það hafi verið
mikil viðbrigði að flytja héðan
og þurfa að standa á eigin fótum
í fjarlægu landi og ólíkri menn-
ingu. „Það var erfitt að fara úr öllu
örygginu hér og stinga sér beint
í djúpu laugina, þurfa að venjast
öllu upp á nýtt og vera í fullu pró-
grammi alla daga, engar pásur.“
Varstu alein? Voru engir aðrir
Íslendingar þarna?
„Já, í rauninni. Ég bjó með
tveimur stelpum sem voru í svip-
uðum sporum og ég, önnur var
frá Ástralíu og hin Lettlandi. Við
vorum allar þrjár í þessum sama
pakka, allar á fyrsta ári og í burtu
frá fjölskyldum okkar í fyrsta
skipti. Við vorum svolítið að finna
út úr þessu í sameiningu og það
gekk svona misvel.
Áður en ég fór út var maður
búinn að heyra af krökkum sem
vildu bara koma heim aftur eftir
eitt ár og ég hugsaði: „Er þetta
virkilega svona erfitt?“ Já, þetta
er virkilega svona erfitt – en eins
og ég sagði, mjög gefandi.“
Birna ákvað að prófa að skipta
um skóla eftir fyrsta árið og flutti
sig í Binghamton-háskólann í
New York-fylki. Í Arizona var hún
fyrst í almennu námi en byrjaði
svo í sálfræði. Í Binghamton fór
hún að læra Human Develop-
ment. „Sem er nokkurs konar
blanda af sálfræði og félagsfræði,“
segir hún. „Ég kláraði námið ekki
áður en ég kom heim. Af því að ég
Hrikalega
erfitt
en ótrúlega
skemmtilegt og
lærdómsríkt„Ég óx mjög mikið sem leikmaður
og manneskja á þessum þremur
árum sem ég var úti,“ segir Birna
Valgerður Benónýsdóttir, leik-
maður meistaraflokks kvenna hjá
Keflavík, sem var orðin spennt að
hefja keppni á ný þegar Víkur-
fréttir heyrðu í henni nú um
helgina en Subway-deild kvenna í
körfuknattleik fór þá aftur af stað
eftir landsleikjahlé.
Það var mjög stórt stökk að flytja
héðan og til Arizona, í raun mun stærra
stökk en ég gerði ráð fyrir ...
Birna er elst þriggja systkina, hér er hún með þeim Finnboga Páli og Hrönn Herborgu.
ÍÞRÓTTIR
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
Birna með mömmu og pabba í Arizona.
Birna stóð sig vel
í sigri Keflavíkur á
Grindavík um helgina.
Keflvíkingar unnu
84:61 og var Birna með
átján stig og tók þrjú
fráköst í leiknum.
VF/JPK
sport